„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Veik staða náttúruverndar er á ábyrgð íslenskra stjórnvalda: Ófullnægjandi svör frá ráðuneytinu

Veik staða náttúruverndar er á ábyrgð íslenskra stjórnvalda: Ófullnægjandi svör frá ráðuneytinu
Mynd/skjá­skot: Land­vernd

Íslensk stjórn­völd hafa úti­lokað að umhverf­is­vernd­ar­sam­tök geti farið með mál sem varða brot á umhverf­is­lögum fyrir dóm­stóla, sam­kvæmt

réttum Land­verndar, en þau hafa farið með málið áfram sem drög að upp­færðri lands­skýrslu um inn­leið­ingu Árósasamn­ings­ins.

Árósa­samn­ing­ur­inn fjallar um greið­ari aðgang almenn­ings að upp­lýs­ingum, þátt­töku, ákvarð­ana­töku og aðgang að rétt­látri máls­með­ferð í umhverf­is­málum.

Þrátt fyrir að eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hafi fall­ist á öll málsrök Land­verndar í apríl 2020 hafa íslensk stjórnvöld enn ekki fellt úr gildi þau lög sem brjóta gegn EES reglum sem byggja á Árósa­samn­ingnum þar sem leyfa eigi umhverf­is­sam­tökum að fara sýni­leg umhverf­is­brot til dóm­stóla. Þetta atriði verður rætt ítar­lega í lands­skýrslu Land­verndar.

Aðgerðaáætlun ekki fylgt eftir

Land­vernd hefur bent umhverfis og auð­linda­ráðu­neytið á að þau hafi ekki fylgt eftir sinni eigin aðgerðaáætlun um Árósasamn­ing­inn og svo virð­ist sem ófull­nægj­andi svör feng­ist frá ráðuneyt­inu í hvaða far­veg þessi mál séu í, en Land­vernd hefur beðis ráðuneytið að bæta úr þessum vanköntum sem fyrst.

Í drögum að lands­skýrsl­unni er mikið gert úr aðgerðaáætl­un­inni sem hefur að mjög litlu leyti verið fylgt eftir. Að mati Land­verndar er ekki rétt farið með í drögunum um hvernig til hefur tek­ist að vinna eftir aðgerðaáætl­un­inni. Sem dæmi má nefna fræðslu um Árósasamn­ing­inn sem hefur verið mjög lítil eftir árið 2018, engar stöðuskýrslur hafa verið birtar og rangt er að ný lög um mat á umhverf­isáhrifum bæti aðgang almenn­ings að ferl­inu við mat á umhverf­is­á­hrifum.

Enginn gætir hagsmuna náttúrunnar

Ráðu­neytið hefur ekki fylgt eftir aðgerðum sem varða aðgang umhverf­is­vernd­ar­sam­taka að réttlátri málsmeð­ferð. Túlkun íslenskra yfir­valda útil­okar umhverf­is­vernd­ar­samtök frá því að fara með mál sem varða brot á lögum um umhverfið fyrir dómsstóla. Eins og staðan er núna er eng­inn aðili sem getur gætt þess að farið sé eftir umhverf­islöggjöf Íslands með hags­muni náttúrunnar í huga.

Umhverf­is­vernd­ar­samtökum er meinað að leggja mál sín fyrir dómstóla þrátt fyrir að fram­kvæmda­að­ilar hafi til þess fulla heim­ild. Þessi túlkun hefur gert Land­vernd mjög erfitt fyrir að þjóna sem málsvari íslenskrar náttúru. Þessi veika staða á þátt í því að náttúruvernd­ar­sjónar­mið lúta oft­ast lægra haldi þegar hag­munaöfl knýja fram umdeildar fram­kvæmdir.

Það er þjóðréttar­leg skylda íslenskra stjórnvalda að gera umhverf­is­vernd­ar­samtökum kleift að leggja álitamál undir dómsstóla eins og ákvæði Árósasamn­ings­ins kveður á um. Þessu þarf að breyta.

Heimild: Land­vernd

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins