„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þessir áttu góða og slæma viku…

Þessir áttu góða og slæma viku…

Góð vika

Rit­höf­und­ur­inn Yrsa Sig­urð­ar­dóttir.

Yrsu Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur átti góða viku. Hún er til­nefnt til Petrona verð­laun­anna í Bret­landi sem veitt eru fyrir bestu nor­rænu glæpa­sög­una fyrir bók­ina sína Gatið.

Yrsa hlaut þessi verð­laun árið 2015 fyrir Brakið og var einnig til­nefnd fyrir Aflausn í fyrra. Gatið kom út árið 2017 og hlaut mikið lof íslenskra gagn­rýnenenda sem og erlendra.

Meðal ann­ars sagði gagn­rýn­andi Financial Times að Gatið væri „æsispenn­andi“ og bætti við að „íslenskar nætur væru hvergi eins ógn­vekj­andi og í óhugn­an­legum sögum Yrsu Sig­urð­ar­dóttur.“

Vera Knúts­dóttir sagði á bók­menntir.is að Gatið mark­aði ákveðin þátta­skil í höf­und­ar­verki Yrsu og sýndi hvernig hún leit­að­ist við að þróa formið. Í Gatinu finnst umsvifa­mik­ill fjár­festir lát­inn í Gálga­hrauni, á hinum forna aftöku­stað sem blasir við frá Bessa­stöðum. Barna­verndar yfir­völdum í Reykja­vík er til­kynnt um lít­inn dreng sem er aleinn og yfir­gef­inn í ókunn­ugri íbúð. Og fjórir vinir ótt­ast að leynd­ar­mál þeirra verði afhjúpað.

Að þessu sinni eru verk eft­ir­tal­inna höf­unda til­nefnd til Petrona verð­laun­anna: Anne Holt, Jørn Lier Horst og Thomas Enger, Håkan Nesser, Mikael Niemi Agnes Ravatn, auk Yrsu Sig­urð­ar­dóttur. Vicotria Cribb þýddi Gatið.

Í umsögn dóm­nefndar um Petrona verð­launin segir um bók Yrsu:

„Gatið er fjórða bókin um barna­sál­fræð­ing­inn Freyju og lög­reglu­mann­inn Huldar tvíeyki sem vill helst ekki vinna saman. Samband þeirra léttir á stundum stemn­ing­una fyrir les­and­anum, gefur færi á svörtum húmor inn á milli, jafn­framt því sem þau eru hrifin hvort af öðru. Marg­slungin flétta bók­ar­innar snýst um brenglað sið­ferði og hefnd: upp­hafið er morð sem ber merki helgi­at­hafnar á fornum aftöku­stað, Gálga­kletti, en við rann­sókn máls­ins afhjúp­ast langvar­andi mis­notkun en hræði­legum afleið­ingum hennar er lýst af nær­færni. Höf­und­ur­inn hlaut Petrona verð­launin fyrir Brakið árið 2015.“

Slæm vika

Ingi Tryggva­son, Mynd Rúv

Ingi Tryggva­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, átti skelfi­lega viku.

Talning atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sættu mik­illar gagn­rýni, ekki síst eftir að atkvæða­magn allra flokka breytt­ist í end­ur­taln­ingu og fimm jöf­un­un­ar­þing­menn duttu út af þingi og aðrir fimm komu inn í stað­inn.

Taln­ingin hefur ann­ars vegar verið kærð til lög­reglu og hins vegar til kjör­bréfa­nefndar Alþingis. Gunnar Örn Jónsson, lög­reglu­stjóri hjá lög­regl­unni á Vest­ur­landi, vildi ekki tjá sig um rann­sókn lög­reglu. Það eina sem hann gæti stað­fest væri að lög­reglan hefði mót­tekið kæruna.

Karl Gauti Hjalta­son, Mið­flokks­maður kærði málið til lög­reglu, en hann sagði á Facebook-síðu sinni, að myndin sýni að kjör­gögn séu hand­ó­nýt og end­ur­taln­ingin að engu haf­andi.

Magnús Norðdahl, odd­viti Pírata, spyr hvernig kjós­endur í þessu landi eigi að treysta lýð­ræð­is­legu ferli þegar kjör­gögn eru ekki inn­sigluð eftir taln­ingu, umboðs­menn lista ekki látnir vita af end­ur­taln­ingu atkvæða. Þá var hann ósáttur við það að kjör­gögnin hafi verið óinn­sigluð geymd í opnum sal hót­els í 6 klukku­stundir milli taln­inga meðan taln­inga­fólk fór heim og bendir á að það hafi verið gestir hót­el­inu. Breyt­ingar verða á fjölda ógildra og auðra atkvæða milli taln­inga.

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins