„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Steinunn Eldflaug: „Ég kem úr kúka- og morðblokkinni í Bakkahverfinu í svindl-Breiðholti“

Steinunn Eldflaug: „Ég kem úr kúka- og morðblokkinni í Bakkahverfinu í svindl-Breiðholti“

Steinunn Eldflaug Harð­ar­dóttir er raf­tón­list­ar­maður undir nafn­inu dj. flug­vél og geim­skip og list­mál­ari sem hefur mikið látið að sér kveða í lista­sen­unni á Íslandi síð­ustu ár.

Nýverið bætti hún nýrri fjöður í hatt­inn, en hún getur nú titlað sig sem tölvu­leikja­hönnuð. Þessa dag­ana er hún í óða önn við að hanna spenn­andi tölvu­leik, sem blaða­maður fékk að prófa heima hjá Stein­unni, á Ásvalla­göt­unni í Vesturbæ Reykja­víkur. Blaða­maður skemmti sér kon­ung­lega og heill­að­ist af list­rænni hönnun og ævin­týra­legum heimi leiks­ins.

Bakkahverfið í svindl-Breiðholti

Þó Steinunn hafi vissu­lega búið lengi í Vest­ur­bænum, hefur hún þó ekki verið þar alla tíð.

Nei, ég var í Breið­holt­inu. Mér finnst ég vera ein­hvern veg­inn meira úr Breið­holt­inu, en samt flutti ég hingað [í Vest­ur­bæ­inn] þegar ég var 11 ára. Þannig að öll ung­lings­árin mín voru hér.

Steinunn gekk fyrst í Vest­ur­bæj­ar­skóla og fór svo í ung­linga­deild í Haga­skóla. Aðspurð um það hvar í Breið­holti hún hafi búið áður en fjöl­skylda hennar flutt­ist í Vest­ur­bæ­inn glottir hún.

Það eru sumir sem kalla það svindl-Breið­holt. Það er í Bakka­hverf­inu. Það eru þrjú Breið­holt sko. Það er efra-Breið­holtið, sem er alvöru Breið­holt, neðra-Breið­holtið, sem eru Bakk­arnir og svo er það svindl-Breið­holtið, sem er Selja­hverfið. Selja­hverfið er svona… ég man að við vorum eitt­hvað: „Selja­hverfið, haha, það er ekki Breið­holt“. En svo hef ég hitt fólk sem ólst upp í efra-Breið­holti og ég seg­ist vera úr Breið­holt­inu og þau bara: „Úr Bökkunum? Ó nei,“ segir Steinunn og hlær. 

Ég bjó alltaf í bakka sem hét „kúka­blokkin“. Hún var í svona tveimur mis­mun­andi kúka­brúnum litum. Og það var rosa skemmti­legt þegar ég var nýflutt í hverfið og ein­hver spurði mig hvar ég ætti heima og ég svar­aði: „Í þess­ari blokk þarna.“ “Já, kúka­blokk­inni?“

Og svo var hún máluð og þá var ekki hægt að kalla hana kúka­blokk­ina lengur. Þá kom í ljós að það höfðu verið framin ein­hver morð í blokk­inni. Ég man ekki hvort það voru eitt, eða tvö, eða þjú morð, en það var alla­vega eitt­hvað af morðum. Þá var hún kölluð „morð­blokkin“, sem var ekk­ert mikið skárra. Þannig að já, ég kem úr kúka- og morð­blokk­inni, í Bakka­hverf­inu í svindl-Breið­holti.

Steinunn hlær inni­lega að þess­ari upp­rifjun.

Aðspurð hvort henni hafi þótt gaman að alast þar upp segir Steinunn svo vera.

Já, mér fannst það mjög skemmti­legt, af því maður er svo frjáls þegar maður er krakki og í þessum hluta Breið­holts­ins, Bökkunum, þá var bara svona gata í kringum blokk­irnar og ein gata inn. Þannig að maður gat alveg verið frá því maður var fimm ára – ég gat alveg leikið mér út um allt. Ég mátti bara ekki fara yfir götu.

Þannig að þá gat maður bara farið rosa­lega langar vega­lengdir út um allt og heim­sótt krakka í nýju blokk­unum, en svo líka byrj­aði ég að laum­ast stundum, þegar ég var aðeins eldri, því þegar maður var aðeins eldri mátti maður kannski fara yfir eina götu.

Þá gat maður farið niður í hólmann, í Elliða­ár­dal­inn, að leika sér þar. Þannig að mér leið svo­lítið eins og ég byggi í sveit stundum og mér fannst æðis­legt að fara þarna niður í Elliða­ár­dal sem hét alltaf hólm­inn. Maður þurfti að fara yfir svona á til þess að kom­ast inn í þar sem var skógur og spenn­andi að vera. Fossar og svona eitt­hvað sem maður mátti ekki leika sér í. Sem var mjög gaman.

Lenti í stríðni í grunnskóla – „Mér fannst ég vera geimvera“

Steinunn rifjar upp að þegar hún og fjöl­skyldan hennar fluttu svo yfir í Vest­ur­bæ­inn hafi henni fund­ist hún geta byrjað upp á nýtt.

Það þekkti mann eng­inn. Maður gat búið til alveg nýjan sig. Klippt á sér hárið og verið ein­hver annar.

Mér fannst ég alltaf vera geim­vera, alveg frá því ég var pínu­lítil. Ég sagði við mömmu ein­hvern tíma: „Mamma.. þú ert nátt­úru­lega ekki alvöru mamma mín“. Henni fannst ekk­ert voða­lega gaman að heyra það. Ég var bara alveg viss um að ég væri utan úr geimnum. Þannig að ég hélt oft þegar ég hitti ein­hverja nýja, að fólk sæi mig kannski eins og geim­veru, eða eitt­hvað allt annað. Ég leit á mig í spegli, en það var ekki mann­eskjan sem mér datt í hug að fólk myndi sjá þegar það segði halló við mig.

Þannig að mér fannst gaman að koma í Vest­ur­bæ­inn. Enginn þekkti mig og þá var ennþá meira frjálst hvað ég hélt að fólk héldi.  

Mér hafði alltaf verið strítt í skóla og ég var alveg viss um að fyrst ég væri nú að koma hérna í nýtt hverfi þá yrði mér örugg­lega mikið strítt. Og ég ætl­aði bara að vera fyrst til að vera nógu fárán­lega ringluð og rugluð, þú veist, reyna bara að vera nógu mikið ein­hver annar, þannig að þegar krakk­arnir færu að stríða þá væru þau bara að stríða þessum „öðrum“. Þannig að ég bjó til þennan „annan“, held ég.

Ég var með alls­konar ein­hver furðu­leg nöfn á sjálfa mig og hét alltaf ein­hverju nýju nafni þegar ein­hver kynnt­ist mér: bleikur vit­leys­ingur, Hannes, eða Gústi. Þetta voru eig­in­lega alltaf karl­mannsnöfn.

„Hvað heitir þú? Ég er bleiki vit­leys­ing­ur­inn.“ Þá ertu alla­vega búinn að slá út úr hönd­unum á fólki að geta strítt þér á nafn­inu þínu. Og ef þú ert með rosa­lega stutt, blátt hár til dæmis… þá er heldur ekk­ert hægt að… já, bara gera nógu mikið. Þá ertu eig­in­lega bara búinn að segja það fyrir fólk.  

En ég hef örugg­lega verið mjög stressuð að skipta um skóla, enda var þetta ekk­ert rosa gaman. Ég eign­að­ist alveg ein­hverja vini, en ég eign­að­ist líka óvini og ein­hverja sem voru að stríða mér. Ég veit ekki.. kannski af því mér hafði verið strítt, þá var ég að reyna svona að „owna“ það.  

Innt eftir því hvort henni hafi fund­ist áætl­unin virka er Steinunn hugsi.

Já, það var samt… mig lang­aði samt alveg líka til þess að falla inn í hóp­inn. Þannig að inni á milli var ég að reyna að gera eitt­hvað til að falla inn í hóp­inn, en ég vissi ekk­ert hvað það átti að vera. Það var eng­inn búinn að kenna mér. Ég vissi ekk­ert að það væri að vera í eins fötum, eða að hegða sér ein­hvern veg­inn. Ég bara skildi ekki hvernig átti að gera það og svo fannst mér alveg mjög leið­in­legt þegar ég hélt kannski að ein­hver væri vinur minn en svo var hann bara að stríða mér.  

Ég er ein­hvern veg­inn allt í einu að hugsa svo mikið um þetta núna, kannski af því ég á stelpu sem er þriggja og hálfs árs og hún er alltaf að tala um að fara í grunn­skóla, hún er svo spennt að fara í grunn­skóla. Þá fer ég svona að rifja upp: „já grunn­skól­inn, hvernig var það? Já… það var rosa skrýtið“.

Ég verð stressuð yfir því að hún lendi í því sama en aðal­lega af því að ég sagði engum frá því, þannig að mér var ekk­ert hjálpað með það. En svo af því þetta gekk ekk­ert eins og ég vildi þegar ég byrj­aði í Vest­ur­bænum, í 11 ára bekk, þá fannst mér svo leið­in­legt hvað þetta var mikið vesen og þá loks­ins tók ein­hver kenn­ari eftir því að krakkar voru að stríða mér. En þá var mér sagt: „Þú verður að vera venju­leg“. Kannski einmitt eitt­hvað sem væri ekki sagt í dag. „Þú verður að breyta þér“. En ég vissi ekk­ert hvernig ég ætti að breyta mér því ég kunni bara að breyta mér í furðu­verur.  

Svo var ógeðs­lega fyndið þegar ég byrj­aði í Haga­skóla, þar ætl­aði ég sko að eign­ast vini. Þá mak­aði ég vasel­íni framan í mig og hellti glimmeri yfir and­litið á mér áður en ég fór í skól­ann og eitt­hvað svona, til að vera fín, því ég kunni ekk­ert að mála mig. Það eru sko til myndir af mér og.. ekki skrýtið að mér hafi verið strítt.

Steinunn skelli­hlær sínum smit­andi hlátri. Það er eins og allt geti lit­ast með húmor og gleði í hennar með­förum, jafn­vel þungar minn­ingar. 

Þegar Steinunn er spurð hvort henni hafi svo verið strítt þegar í Haga­skóla var komin er hún fljót að svara. 

Já. En ég var alltaf ein­hvern veg­inn að reyna að fara svona rétta leið. „Stelp­urnar eru að gera sig fínar, ég get þetta líka!“ Límdi líka alls­konar lím­miða á mig.. mjög skraut­legt. „Mála sig? Ég kann það ekk­ert, ég skreyti mig bara aðeins.“

Steinunn seg­ist eiga nokkra vini úr Haga­skóla sem voru líka með henni í Vest­ur­bæj­ar­skóla. Svo á hún eina vin­konu enn þann dag í dag sem var með henni í Breið­holts­skóla.

Stelpa sem heitir Edona, hún var alltaf vinur minn, sama hvað bját­aði á. Ég man eftir því að hún sagði ein­hvern tíma að hún skamm­að­ist sín þegar ég var í ein­hverjum skraut­legum snjó­galla og vildi ekki labba við hlið­ina á mér í skól­ann. Og ég skildi ekk­ert í því. Svo var ein­hver sem stríddi mér á skraut­lega snjó­gall­anum í skól­anum og ég bara: „Já og hvað? Hann er geð­veikt fínn“. Ég skildi aldrei afhverju fólk var að stríða mér á svona því mér fannst ég alltaf bara geð­veikt fín. Eins ef ein­hver hefði farið að stríða mér þegar ég var með glimmer í and­lit­inu… það hlýtur að vera betra að vera allur úti í glimmeri í and­lit­inu en ekki?

Þannig að já, við Edona erum ennþá vinir alveg síðan í Breið­holt­inu. Svo eru nokkrir strákar sem voru í Vest­ur­bæj­ar­skóla, sem voru alltaf að stríða mér þá. En einn þeirra kom til mín þegar við vorum orðin ung­lingar, komin í mennta­skóla og svona og baðst afsök­unar. Fyrir hönd hans og hinna strák­anna sem höfðu verið að stríða mér. Bað mig afsök­unar og sagði að sér þætti rosa­lega leið­in­legt hvað þeir voru leið­in­legir við mig. Og þá var það bara búið og þeir eru ennþá vinir mínir í dag. Það var rosa gott að heyra þetta.

Mátti vera skrýtin í MH

Steinunn rifjar upp skiptin úr Haga­skóla yfir í Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð, þaðan sem hún útskrif­að­ist með stúd­ents­próf.

Ég man að ég var búin að heyra áður en ég byrj­aði í MH að þar væri allt í lagi að vera skrýt­inn og það væri venju­legt þar; þar ætt­irðu að vera skrýt­inn. Ég man að ég kom í MH og var bara skrýtin eins og venju­lega og þá voru ein­hverjir eldri sem komu og sögðu: „Heldurðu að maður megi bara vera hvernig sem er í þessum skóla? Það er sko ekki þannig.“ Ég varð fyrir mjög miklum von­brigðum, en svo hlust­aði ég sem betur fer ekk­ert á þau, af því ég kunni ekk­ert annað. Þau vildu sko meina að það mætti alls ekki vera „hvernig-sem-er-skrýt­inn“ í MH, heldur væri alveg ákveðin rétt leið til að vera skrýt­inn. 

Steinunn segir að eftir fyrsta árið í MH hafi henni fund­ist hún geta blómstrað og verið hún sjálf í friði. Hún segir að með tím­anum hafi hún hætt að búa sér til ný nöfn og per­sónur, því það sem hún var virk­aði bara.

Mynd úr einka­safni

Pressan í myndlistinni og frelsið í tónlistinni

Eftir MH lá leið Stein­unnar í mynd­list í Lista­há­skóla Íslands og því má segja að hún hafi verið list­mál­ari fyrst, áður en hún fór að fást við tón­list. Hún hefur alla ævi teiknað og málað mikið, en sem barn bjó hún líka til tón­list og söng.

Ég var kölluð „útvarpið“.

Þegar hún fékk inn­göngu í Lista­há­skól­ann hafi hún upp­lifað mikið af reglum í list­sköp­un­inni.

Líklega af því þetta var skóli. Maður lærði alls­konar reglur og þetta virt­ist allt vera svo flókið. Maður þurfti að sækja um styrki, taka myndir af lista­verk­unum, mæta á sýn­ingar þar sem eru alltaf kveikt ljós…

En svo þegar þú mætir á tón­leika, þá er alltaf slökkt. Það var eins og þar væri ekki alveg saman krafan.

Steinunn segir að hún hafi upp­lifað pressu í mynd­list­inni sem hún upp­lifði ekki í tón­list­inni. Henni fannst hún þurfa að vera „mynd­lista­maður“ þegar hún hafði lært það og fannst það dálítið hlaðið hug­tak. Í tón­list upp­lifði hún hins­vegar frelsi og fannst hún mega gera hvað sem er, því hún var ekki menntuð á því sviði. Þar gat hún leikið sér.

Þannig að eftir skól­ann var ég bara rosa­lega spennt fyrir að gera fullt af tón­list.

Þegar hér er komið sögu í spjall­inu stekkur grár og hvítur, kaf­loð­inn köttur Stein­unnar í fang hennar og hreiðrar svo um sig í kringum háls­inn á henni. Malið heyr­ist yfir eld­hús­borðið og Steinunn strýkur kett­inum rólega, horfir hlýjum augum á hann og hvíslar ein­hverju sem erfitt er að heyra hvað er, en það hefur róandi áhrif á fleiri en kött­inn. Hún hellir því næst meira kaffi í boll­ana tvo á borð­inu.

Gæti fætt barn á sviðinu

Talið berst að lista­verkum Stein­unnar. Stór hluti af sviðs­fram­komu hennar sem dj. flug­vél og geim­skip eru ljós og sviðs­mynd, mynd­bönd og ýmis­legt annað frum­legt og lif­andi sem hrífur áhorf­and­ann með sér inn í undra­ver­öld.

Í Lista­há­skól­anum voru eig­in­lega öll mynd­lista­verkin mín með tón­list og ljósum og mér til dæmis þótti svo gaman að láta ljós bregð­ast við hljóði og gera úr því mynd­lista­verk. Og uppi á sviði er ég með ljós sem bregð­ast við hljóðum og ég geri alls­konar bak­grunns­myndir og mynd­bönd sem passa kannski við tón­list­ina og þetta á allt saman.

Fyrir stóra tón­leika hef ég líka smíðað skúlp­t­úra sem eru á svið­inu og mér finnst alltaf bara að það skipti ekki máli hvort það séu augun eða eyrun sem taka inn skila­boðin. Af því tónar eru bara litir og mis­mun­andi áferðir og litir eru bara eins og ólíkir tónar, ólík hljóð­færi. Þannig að þetta endar allt bara inni í heil­anum sem ein­hver skila­boð. Eins og maður hefur heyrt um lítil börn. Fyrstu mán­uð­ina bland­ast þetta bara allt saman og svo með tím­anum fara þau að aðgreina. En hjá sumum aðgrein­ist þetta aldrei. Ég sé alltaf rosa­lega mikið fyrir mér hvernig lagið mitt lítur út og ég get lýst því fyrir fólki hvernig lagið lítur út og hvað er að ger­ast sjón­rænt í hverju lagi.

Ég var ein­hvern tíma að tala um þetta við Arnljót vin minn, sem er líka tón­list­ar­maður. Við vorum á drum and bass kvöldi og ég spurði hann hvort hann heyrði hvað bass­inn væri djúpur eins og moldin og háu hljóðin eins og ský. Og hann sagði: „Já, manstu ekki eftir orð­inu lands­lag? Afhverju held­urðu að lands­lag sé kallað lands-lag? Það er af því að landið er lag.“  

Steinunn lauk nýverið tveggja ára námi í staf­rænni hönnun. Þar lærði hún að búa til tölvu­leiki, en hún hafði lengi haft mik­inn áhuga á því.

Hún segir íbyggin frá nýju verk­efni sem hún er að vinna að þessa dag­ana. Þann 8. októ­ber mun Steinunn, í sam­starfi við norskan for­rit­ara að nafni Jon Arthur Marrable, frum­sýna nýjan tölvu­leik sem þau hafa unnið að saman. Tölvu­leik­ur­inn er hann­aður þannig að hann bregst einnig við tón­list Stein­unnar og því verður frum­sýn­ingin sömu­leiðis í formi tón­leika. Her­leg­heitin verða sem fyrr segir þann 8. októ­ber, klukkan 19 á Loft Hostel.

Þannig að ég er að fara að frum­flytja tón­list sem sam­einar þetta. Útlit, heim, liti og hljóð. Það verður hægt að koma að sjá þetta á Loft Hostel, 8. októ­ber klukkan 19. Þá getur fólk komið og séð mig og Gígju, vin­konu mína, sýna þetta. Hún dansar og ég spila og syng.

Við verðum í motion capture bún­ing og erum að gera þetta í sam­starfi við Stafræna Hönnun skól­ann og kennar­ann minn sem heitir Ari Knörr. Hann er mikið búinn að vera að hjálpa mér með þessa tækni­legu hluti og ætlar að lána okkur þessa motion capture bún­inga og vera með okkur til þess að passa að þetta virki allt.

Þá mun fólk geta séð þrí­vídd­ar­módel sem er varpað á bak við okkur, inni í þrí­vídd­ar­heimi, þannig að það sér nákvæm­lega hvað við erum að gera á svið­inu og það sem ég er að spila og syngja mun sjást.

Kannski lýs­ast upp stjörnur þegar ég syng og ein­hverjir hlutir breyta um áferð þegar ég spila. Og ef þú kemst ekki þangað get­urðu bara mætt á Twitch. Allir sem stofna Twitchreikning geta mætt á tón­leik­ana heima í tölv­unni hjá sér og fengið að vera lítil geim­veru­dýr. Þá sjá þeir mig og Gígju ekki dansa, en þeir heyra tón­list­ina og sjá heim­inn og allt breyt­ast. Þetta verður rosa­legt!

Steinunn er aug­ljós­lega mjög spennt. Hún bætir þó glott­andi við:

Það eina sem gæti skemmt fyrir þessu er.. að ég er ólétt. Og ég á bara fjórar vikur eftir. Ef barnið kemur fyrir tím­ann, þá veit ég ekki. Ég á að eiga 25. októ­ber. Þannig að það gæti alltaf gerst að barnið væri komið fyrir tím­ann, eða að ég myndi bara fæða á svið­inu. Sem væri pínu skemmti­legt.

Hún hlær við til­hugs­un­ina og bætir við:

Ég er smá að vona það.

Mynd úr einka­safni

„Þetta er stelpa. En það gæti breyst.“

Eldey, dóttir Stein­unnar og Ísaks, kærasta hennar, fædd­ist fyrir tím­ann. Steinunn var sett af stað í fæð­ingu vegna þess að barnið hafði hætt að stækka. Það þótti því örugg­ara að koma henni fyrr í heim­inn á sínum tíma. Það er því fylgst sér­stak­lega vel með þess­ari með­göngu. Steinunn fór nýlega að láta gera mæl­ingar og þar kom í ljós að kúlan hafði stækkað um einn sentí­metra frá því síð­ast. Það er því von um að hún fái að ganga fulla með­göngu í þetta sinn. Hún vonar að svo verði.

Eldey var svo rosa­lega lítil að það þurfti bara að setja mig af stað. Hún var aðeins undir stærð, en svo stækk­aði hún bara ekk­ert í mánuð. Og þá var ákveðið að hún yrði bara að fæð­ast. Hún var ekki að fá nóga nær­ingu, eða eitt­hvað svo­leiðis. Hún var agn­arsmá, það þurfti að gefa henni svona pela því hún kunni ekki að taka brjóst. Svo þegar Ísak hélt á henni pass­aði hún eig­in­lega bara í lófann á honum.

Steinunn segir að sam­kvæmt öllum skoð­unum eigi hún von á stelpu í þetta sinn líka.

Það segja þeir sem hafa skoðað. Ég man alltaf þegar Eldey var, þá gerði afi minn sem er núna dáinn, Bragi afi, svona galdra til að skoða. Hann festi gull­hring í hár úr höfði mínu og var að skoða. Svo sagði hann: „Það er strákur!“ Og hann var alveg hand­viss. Hann var með krabba­mein og hann var rosa veikur á þessum tíma.

Hann dó áður en Eldey fædd­ist. Hann var með hvít­blæði, mjög veikur og lá þarna í rúmi á spít­al­anum þegar ég fór í 20 vikna sónar að láta skoða kynið. Og þegar þau sögðu að þetta væri stelpa krafð­ist ég þess að láta þrjá aðila skoða hvort það væri rétt. Og já, það var stelpa. Svo ég hljóp yfir til Braga afa og hann ætl­aði fyrst ekki að nenna að tala því hann var orð­inn svo þreyttur alltaf þarna. Ég sá á honum að hann ætl­aði ekki að nenna að tala í þetta skiptið. Svo sagði ég honum: „Þau segja að þetta sé stelpa!“ Og þá svona sneri hann sér við í rúm­inu bara: „NEI? HA? Það getur ekki verið!“ Ég sagði honum að jú, þau hefðu verið hand­viss. Hann velti þessu fyrir sér lengi og sagði svo: „Jæja… það gæti breyst.“ Ég hef alltaf hugsað um þetta. Gæti breyst. Ég hugsa þetta stundum ennþá. Jú, hún er með píku og sítt hár og svona. En ég hugsa alltaf: það gæti breyst.

Þannig að þegar fólk spyr mig hvort þetta sé strákur eða stelpa segi ég alltaf: „Þetta er stelpa. En það gæti breyst.“ 

Var búin að ákveða að eignast ekki börn

Aðspurð um það hvort hana hafi alltaf langað til að eign­ast börn segir Steinunn svo vera.

Mig hefur alltaf langað að eign­ast börn, mér hafði aldrei dottið neitt annað í hug. En svo svona ári áður en ég eign­að­ist Eldey hugs­aði ég: „Ah.. mig langar ekk­ert til að eign­ast börn. Mig langar bara að gera tón­list og mynd­list, ferð­ast um heim­inn og vera með Ísaki. Ég nenni ekk­ert að standa í þessu barna­stússi.“ Ég hugs­aði að það væri fínt bara að tón­listin og mynd­listin væru mín börn. Ég þyrfti ekk­ert meira. Og ég var alveg svo alvar­leg með þetta að ég var búin að tala við Ísak um þetta og segja mömmu frá þessu. Ég spurði mömmu meira að segja: „Verðurðu mjög leið ef ég eign­ast engin börn?“ Og hún sagði: „Nei, auð­vitað ekki, þú bara ræður alveg hvað þú gerir.

Svo kom systir mín ein­hvern tíma í heim­sókn og ég og mamma vorum þarna, það var hádeg­is­matur. Litla systir mín, Katrín. Og hún sagð­ist vera ólétt. Við sögðum „til ham­ingju“ og „frá­bært“ og svo fór hún. Þá fór ég að hágráta. Og mamma sagði: „Hvað er að? Systir þín er ólétt, þetta eru gleði­fréttir.“ Þá sagði ég: „Mig langar líka að vera ólétt! Mig langar líka í barn!“ 

Steinunn seg­ist hafa grátið í um það bil tvo daga eftir þetta. Henni fannst hún ekki geta eign­ast barn, því hún hafði ákveðið að gera það ekki. Henni fannst hún líka ekki geta verið tón­list­ar­maður að ferð­ast um heim­inn og átt barn á sama tíma.

En þarna brotn­aði ég bara algjör­lega. Við Ísak ákváðum í fram­hald­inu að við vildum gera þetta saman.

Um það bil tveimur vikum seinna segir Steinunn að hún hafi orðið hrædd og fengið bak­þanka. Hún var aftur komin í þann þanka­gang að hún gæti ekki eign­ast barn, gæti ekki hugsað um barn og lang­aði í raun ekk­ert í barn.

Steinunn segir að sér hafi varla dottið í hug að hún gæti orðið ólétt á svona stuttum tíma.

Ég veit að ég er rosa­lega heppin, að geta orðið ólétt, átt mitt eigið barn og fætt mitt eigið barn.

En já, svo var alltaf að líða yfir mig og svona, en mér datt ekki í hug að ég gæti verið ólétt, því ég vissi hvað þetta gæti verið mikið vesen. Svo var ég á leið­inni í ein­hverja röntgen­mynda­töku til að skoða hvað væri eig­in­lega að mér þegar ein­hver stakk upp á því að ég gæti verið ólétt. Svo það var tekin blóðprufa og já, ég var ólétt af Eldeyju.

Það var mjög gaman en ég var líka ógeðs­lega stressuð. Ég grét á hverjum ein­asta degi örugg­lega fyrstu fjóra mán­uð­ina. Mér fannst það bara hrika­lega stressandi og hélt bara að ég myndi aldrei geta séð um barn og mér fannst líka bara að þá væri lífið búið. Ég man líka eftir því að hafa verið með Ísaki á kaffi­húsi og sagt: „Síðasta skiptið sem við getum farið á kaffi­hús saman.

Steinunn hristir haus­inn að þessu og hlær.

Svo erum við nú bara búin að gera ansi margt saman.

En ég vissi bara ekki hvað væri að fara að ger­ast og hvernig þetta yrði, hvernig barnið yrði. Hvað ef þetta yrði bara eitt­hvað hrika­legt barn? Bara ljótt og leið­in­legt? Ég man eftir því að ein­hver spurði hvort ég væri ekki spennt að eign­ast barnið og ég sagði: „Jú… en svo verður þetta samt kannski bara skíta­leið­in­legur krakki.“ Það fóru allir bara að hlæja. Ég var samt ekk­ert að grín­ast.

Steinunn segir að Ísak, kærast­inn hennar, hafi verið öllu rólegri yfir þessu.

Ég man bara eftir því að Ísak kom heim og ég bara: „Ísak! Ég er ólétt!“ Og Ísak sagði bara: „Já, ókei.“ Eins og honum væri bara alveg sama. Hann var samt glaður. Honum var bara ein­hvern veg­inn alveg sama. Barn eða ekki barn, lífið heldur áfram. En þegar hún fædd­ist, þá held ég að hann hafi orðið mjög glaður. Við vorum bæði mjög glöð með hana.

Fyrsta árið fórum við fimm sinnum með hana til útlanda að spila. Það var svo­lítið heví, en Ísak kom bara með og ég gaf henni alltaf brjóst fyrir tón­leik­ana. Faldi hana bak­sviðs. Einu sinni mátti ekki hafa börn þar sem við vorum að spila, í Bret­landi. Þá náði ég að smygla Ísaki og Eldeyju inn og fela þau þar sem bjór­kút­arnir voru. Þetta var svona undir svið­inu og eftir tón­leik­ana hljóp ég niður að gefa henni brjóst og var svona að fylgj­ast með því hvort dyra­vörð­ur­inn væri far­inn svo við kæm­umst út aftur.

Missti tengslin við raunveruleikann

Steinunn segir að það hafi því alls ekki verið á rökum reist að lífið væri búið eftir barn­eignir. Hún segir í raun aldrei hafa verið meira að gera hjá sér heldur en einmitt árið eftir að Eldey fædd­ist. Hún segir þó að hún hafi hugs­an­lega ofgert sér þetta fyrsta ár eftir fæð­ing­una.

Svo fór ég í skóla strax eftir það, hún fór til dag­mömmu, svo í leik­skóla og ég í skóla. Svo var svona tvisvar í mán­uði sem ég þurfti að fá frí í skól­anum til þess að fara til útlanda að spila. Þá fór ég að vakna um miðjar nætur, vinna skóla­verk­efni á hót­el­inu, svo geð­veikt hress að spila um kvöldið. Svo í skól­ann. Svo þegar hinir krakk­arnir í skól­anum voru kannski að gera eitt­hvað annað þá var ég að sjá um barnið mitt og vera með fjöl­skyld­unni – reyna að vera líka fjöl­skyldumamma.

Já og líka að vinna í búð. Það var bara alltof mikið, þannig að ein­hvern tíma síð­asta sumar var ég að vinna í Pét­urs­búð og þegar ég átti að gefa fólki til baka þá gaf ég sumum bara þús­und kall, sumum eina krónu.. ég var bara að láta fólk fá eitt­hvað, því ég átt­aði mig ekk­ert á því hvað ég var að gera. Þetta var svo skrýtið. Svo var fólk að koma til baka og segja: „Þú gafst mér vit­laust til baka.“ Og ég bara: „Æ, sorrí, ég er eitt­hvað utan­við mig í kvöld.“

Svo bara missti ég ein­hvern veg­inn tengsl við raun­veru­leik­ann.

Steinunn lýsir því hvernig hún hafi hætt að muna verðin í búð­inni, eitt­hvað sem hún kunni utanað áður fyrr. Hún hafi líka hætt að geta lesið – öll orð hafi farið í hringa­vit­leysu og hún hafi þurft aðstoð við að lesa verð­skrána.

Svo kom gam­all maður inn og sá bara að ég var með svima og þurfti að halda mér í borðið. Mér fannst bara allt vera á iði. Hann sagði: „Vina mín! Þú ert ekki alveg með sjálfri þér í kvöld.“ Þá sagði ég bara „nei“ og fór að hágráta. Fór bak­við til að jafna mig. Fólk var bara: „Halló! Er ein­hver afgreiðsla hérna?“ Og ég var bara grát­andi á bak­við.  

Svo komst ég ein­hvern veg­inn, gat klárað vakt­ina og hringdi í vin­konu mína, Gullu. Hún sagði að það hljóm­aði bara eins og ég væri búin að ofgera mér. Að ég þyrfti bara að taka mér smá frí og slaka á. Ég þurfti bara aðeins að taka því rólega í smá tíma. Þá lag­að­ist þetta. Ef ég hefði ekki aðeins slakað á þá hefði ég kannski bara… maður veit ekk­ert hvað getur gerst. Maður getur bara fengið heila­blóð­fall, fengið alls­konar sjúk­dóma, maður getur bara orðið þung­lyndur, maður getur bara dáið í raun­inni. Maður getur fengið gigt.. þú veist, ég veit ekki hvað ger­ist. Allur lík­am­inn og hug­ur­inn er bara rosa við­kvæmur fyrir. Þannig að, kannski gerði ég aðeins of mikið, kannski var ég að vera smá súperman.

Steinunn seg­ist hafa lært af þessu. Markmið hennar núna er að læra að segja nei við verk­efnum og leyfa sér að taka því örlítið rólega eftir að nýja barnið kemur í heim­inn.

Hugleiðsla, drum and bass og saumaskapur

Þar sem talið hefur borist að rækt við heilsu og sál­ar­líf er Steinunn spurð hvort það sé eitt­hvað sér­stakt sem hún geri til að passa upp á þau mál.

Já. Ef ég man eftir því, þá hug­leiði ég. Ég reyni bara svona að setj­ast niður, í upp­hafi dags og lok dags – bara í nokkrar mín­útur. Sit og anda og svona. Ég reyni að þakka fyrir mig alltaf – þakka fyrir það sem ég hef, því stundum gleymir maður því. Stundum nota ég svona hug­leiðslu þar sem maður fer með mön­tru, í tíu mín­útur, tutt­ugu mín­útur… af því þegar maður gerir það þá sér maður svona eins og allar hugs­anir sínar koma og ef ég geri það ekki í svo­lít­inn tíma þá bara fara allar hugs­an­irnar út um allt. Allt fer í ein­hvern svona hræri­graut. Já.. eina mín­útu, tvær, þrjár, í byrjun og lok dags. Þá reyni ég svona að anda rólega í smá stund og hugsa um hvað ég get verið þakk­lát fyrir. Og ef ég man eftir því og gef mér tíma þá reyni ég að fara með svona mön­tru­hug­leiðslu í tíu eða tutt­ugu mín­útur, svona eins og inn­hverf íhugun, transcendental meditation. Og ég tek svona mín tíma­bil þar sem ég er geð­veikt dug­leg í því.

En svo hætti ég því, af því það er svo mikið að gera og ég hef ekki tíma fyrir þetta! Einmitt þegar mikið er að gera þá þarf að gera þetta. Og svo er tvennt annað sem hefur held ég bara bjargað mér. Það er í þau fáu skipti sem ég fer á drum and bass kvöld, fer og hlusta á drum and bass sem er upp­á­halds tón­listin mín og dansa. Það eru þeir hlutir sem ég geri sem ég fæ ekk­ert fyrir; þeir eru ekki eitt­hvað sem ein­hver hrósar mér fyrir, eitt­hvað sem ég fæ borgað fyrir, eitt­hvað sem ég set út og ein­hver gefur ein­kunn, eða „þetta er flott eða ljótt lag“. Þetta er bara eitt­hvað sem… ég fer, er að njóta bara. Bara dansa, eng­inn er að horfa á mig. Ég er ekki að dansa til þess að ein­hver segi: „Ú, flottur dans“ á sviði, heldur er ég bara að dansa fyrir mig. Þú veist, ég fer ekk­ert oft… líka út af því að ég er rosa­lega feimin, því ég er aðeins byrjuð að þekkja ein­hverja sem spila. Ég þekki ein­hverja DJ-a núna og ein­hverja sem mæta á drum and bass kvöldin og mér finnst alltaf erf­ið­ara að fara ef ég þekki ein­hvern.

En svo er hitt, sem er það nýjasta. Ég er komin með áhuga­mál, ég hef aldrei átt svona áhuga­mál. En það er að sauma. Þá sit ég bara svona og sauma eitt­hvað, þú veist. Ég hef saumað mér tón­leika­föt, peysu handa Eldeyju, saumað mér kjól, saumað gard­ínur. Þá er maður ein­hvern veg­inn bara… maður situr, það er bara svona hljóð í sauma­vél, ein­hver tvö efni. Þetta gæti ekki verið ómerki­legra, skiptir engu máli og þetta er bara eitt­hvað sem… ég fæ ekk­ert fyrir þetta, en það er eitt­hvað svo gott. Stundum eftir alveg rosa­lega erf­iðan dag, meira að segja eftir brjál­aðan dag, seint um kvöld. Bara, setj­ast og sauma aðeins, ein­hver tvö efni og setja þau saman með ein­hverjum þræði. Þá kemur bara svona ró.

Steinunn heldur áfram:

Ég elska að keyra.. bíll­inn minn er með enga hátal­ara, ónýta hátal­ara, þannig að ég þarf að vera með svona.. ég veit ekki einu sinni hvort það sé lög­legt, noise cancelling head­pho­nes. En ég held að það sé líka hug­leiðslan mín, að setja á mig þessi noise calcelling head­phone og hlusta á.. yfir­leitt drum and bass. Og keyra eitt­hvert.

Ég er svo léleg í… ég hef reynt að fara í ein­hverja svona göngu­ferð. En ef ég er ekki með ein­hvern áfanga­stað, þá er ég bara svona: „Ég er bara að labba hérna niður að sjó,“ svo enda ég með því að hlaupa bara niður að sjó: „Þarna er sjór­inn! Ókei, til baka!“. Svona heilsu­bót­ar­ganga er það leið­in­leg­asta sem ég veit.  

Ég verð rosa­lega glöð ef ég þarf að spila á Selfossi eða eitt­hvað, því þá fæ ég þetta móment í bílnum. Stundum er ég líka bara að syngja í bílnum, það er mjög skemmti­legt. Enginn heyrir í mér, maður getur bara sungið og sungið. Þá koma oft lög og eitt­hvað svona upp.

Af því það er miklu auð­veld­ara þegar þú ert að keyra, þá kemur kannski bara lag og ein­hver texti, en svo ef þú sest niður og eitt­hvað: „Nú ætla ég að semja meist­ara­verk“ þá bara.. „Hvernig á það að vera? Hvað er ég að gera? Ég veit ekki… hver er ég svosem? Hverjum er ekki sama?“ 

Ég var einu sinni að halda mynd­lista­sýn­ingu, fyrstu mynd­lista­sýn­ing­una eftir að ég útskrif­að­ist úr Lista­há­skól­anum. Og ég sagði við Helga Þórsson vin minn: „Ég er svo stressuð.“ Og hann sagði: „Hverju ertu stressuð fyrir?“

„Að pró­fess­or­arnir komi og þeir sjái að þetta skiptir engu máli!“

Þá sagði hann: „Nú, viss­irðu það ekki? Þetta skiptir engu máli. Hvað hélstu eig­in­lega?“ Þá fatt­aði ég að það er það sem er svo skemmti­legt við þetta. Ekkert skiptir máli. Hvað þá tón­list og mynd­list – skiptir engu máli. Það er bara til gam­ans. Ég þarf ekki að vera að ljúga að sjálfri mér hérna, að þetta þurfi að vera eitt­hvað mik­il­vægt og merki­legt.

Arfgengur taugasjúkdómur í fjölskyldunni

Steinunn virð­ist hugsa mikið út í and­lega og lík­am­lega heilsu. Hún gefur því mik­inn gaum hvernig and­leg heilsa getur end­ur­spegl­ast í lík­am­anum. Hún hefur hins­vegar sér­lega ríka ástæðu til þess að hugsa mikið út í þessi mál, sér í lagi lík­am­lega heilsu, jafn­vel meira en með­al­mann­eskjan.

Já, það er nefni­lega ætt­gengur tauga­sjúk­dómur í fjöl­skyld­unni minni. Ég hélt að hann væri kom­inn bara, þegar ég missti jafn­vægið.

Þetta er nú mjög skemmti­legur tauga­sjúk­dómur að mörgu leyti, hann er bara eig­in­lega alveg eins og maður sé fullur. Maður svona rásar um, verður þvoglu­mæltur og sér tvö­falt og allt. Allt sem maður fær þegar maður er fullur, nema að vera fullur – nema víman.  

Steinunn skelli­hlær þegar hún áttar sig á eigin lýs­ingu.

Já þannig að nei, þetta er ekk­ert skemmti­legt, þetta er eig­in­lega bara ömur­legt!

En ég hef nefni­lega fundið fyrir þessum ein­kennum öllum á svona álags­tímum í líf­inu. Þannig að, hvort sem ég þurfti að halda mér í af því að sjúk­dóm­ur­inn væri að koma eða bara út af álagi.. ég veit að streita, álag og kvíði geta valdið alls­konar svo­leiðis til­finn­ingum. Ég hef lent í því líka í kringum tón­leika og svona, fyrir og eftir, þá er ég bara þvoglu­mælt og kannski bara á erfitt með að tala og hef mjög mikið lent í því á sviði eins og ég sé völt á fót­unum, eins og ég sé full og dett um eina litla snúru kannski. Ég hef spurt aðra hvort þeim finn­ist ekk­ert erfitt að labba inn á sviðið – ein­hver gítar þarna, pedall þarna, snúra þarna.. en fólk bara eitt­hvað: „nei“. Ég hef rosa oft, vand­ræða­lega oft, dottið fram af svið­inu og ég er með svona meiðsli í öðru hnénu þannig að rosa­lega oft á tón­leikum dett ég. Ég veit ekk­ert hvort fólk tekur eftir því, en þá er ég oft bara haltr­andi það sem eftir er af tón­leik­unum.  

Líka í kulda og frosti, þá stundum hætti ég að geta talað. Ef ég hitti ein­hvern á Lauga­veg­inum þegar allir eru að kaupa jóla­gjaf­irnar og allir eru að tala fullt og ég bara: „eeeeeeehhhhh…“.

Þannig að, ég hef svona fundið ein­kenni. Líka, ef ég er kannski í búð og þar er mann­eskja sem ég ætla að labba fram­hjá, þá kannski labba ég bara beint á hana í stað­inn. Mjög vand­ræða­legt. Ég hef unnið í búðum og þar hefur mér svona verið bent á að ég verði að hætta að labba á við­skipta­vini. Það má ekki heldur hlaupa á við­skipta­vin­ina. Ég hleyp oft, því ég nenni aldrei að labba neitt. Svo ég kannski hleyp af stað, hleyp beint á við­skipta­vin­inn sem ég átti að sækja tóbakið fyrir, hleyp svo á skáp­inn sem ég er að sækja tóbakið í…

Þannig að já, ég veit aldrei hvort þetta er sjúk­dóm­ur­inn að koma eða hvort þetta sé álagsein­kenni.  

Þegar hún er spurð nánar út í sjúk­dóm­inn, hvað þetta sé og hverjir í fjöl­skyld­unni séu með hann svarar Steinunn:

Pabbi er með hann, amma mín er með hann. Eftir að pabbi kom ein­hvern tíma með staf í jóla­boð þá var svona eins og hann væri að koma út úr skápnum með þetta, að það væri eitt­hvað að. Og í næsta jóla­boði voru eig­in­lega allar gömlu frænkurnar komnar með stafi, eða svona göngu­grindur.

Málið er að ég á vin­konu sem er tauga­sál­fræð­ingur. Og þetta heitir Cerebellar ataxia og ég sagði henni það, en þá sagði hún að það væri ekki nafn á sjúk­dómi, heldur væru þetta ein­kennin. Þannig að það veit eig­in­lega eng­inn hvað sjúk­dóm­ur­inn heitir eða afhverju hann kemur. Hann er svo sjald­gæfur. Mjög dul­ar­fullt. En ein­kennin heita Cerebellar ataxia og lýsa sér einmitt svona, eins og maður sé fullur.  

Steinunn segir að um sé að ræða sjúk­dóm sem fer stig­versn­andi með tím­anum.

Þetta er, sem betur fer, ekki svona sjúk­dómur sem beint dregur þig til dauða. Hann versnar bara eftir því sem líður á lífið. Líka eftir því sem þú ferð verr með sjálfan þig. Þannig að það er bara um að gera að passa vel upp á sjálfan sig, svo þetta verði ekki of slæmt.

Það kom bara í ljós að þetta væri arf­gengt af því ég eign­að­ist kærasta þegar ég var ung­lingur og kærast­inn minn og besti vinur hans komu með mér í heim­sókn til ömmu minnar. Eftir heim­sókn­ina sögðu þeir við mig: „Skrýtið með ömmu þína, hún og pabbi þinn eru alveg eins. Þau svona halla sér eins upp að veggjum þegar þau labba um. Styðja sig eins við og labba ein­hvern­veg­inn furðu­lega.

Það var alla­vega svona fyrsta ljósið sem kvikn­aði hjá mér og ég held að ég hafi sagt þeim frá því. En svo líka á svip­uðum tíma var pabbi að hitta lækni og var alltaf að kvarta yfir því hvað hann væri eitt­hvað valtur á fót­unum og þá þekkti lækn­ir­inn þetta. En það að strák­arnir höfðu bent mér á að þau væru svipuð með þetta.. þá voru þau skoðuð svona saman. Það eru fleiri í fjöl­skyld­unni með þetta, en þetta er svo­lítið feimn­is­mál, svo ég ætla ekki að nefna nein nöfn. Fólki finnst þetta eitt­hvað vand­ræða­legt. 

Sýnileiki getur læknað fordóma

Þegar Steinunn er spurð hvers vegna það sé seg­ist hún ekki vita það. Hún hugsar sig um en heldur svo ákveðin áfram:

Ég held að þetta séu for­dómar sem eru í sam­fé­lag­inu, bara gagn­vart fötl­unum, sjúk­dómum og veik­indum. Fordómar gagn­vart þung­lyndi, for­dómar gagn­vart því að tala óskýrt, gagn­vart því að stama. Það eru for­dómar gagn­vart því að vera í hjóla­stól. Það eru bara svo miklir for­dómar. Svo þegar fólk upp­lifir að það sé með ein­hvern sjúk­dóm þá held ég að það sé oft með for­dóma sjálft gagn­vart því að vera veikt.

Ég hugsa að ef ég fái þennan sjúk­dóm.. þá vona ég að ég verði ekk­ert feimin við að leita mér hjálpar og ef ég lendi í hjóla­stól þá ætla ég svo sann­ar­lega aldrei að vera feimin við að fara í hjóla­stól upp á svið. Á meðan sumum finnst það kannski óþægi­legt. Ég spurði í Iðnó um dag­inn og það er núna þannig aðstaða þar að það er hægt að vera per­for­mer í hjóla­stól og koma fram.

Það þarf nefni­lega að bæta þetta, þetta þarf að vera sýni­legra og það þarf að tala meira um alla þessa sjúk­dóma eða hvað sem er annað.

Til dæmis, þegar ein­hver stamar eða skrollar, eða talar kannski þvoglu­mælt í búð, þá fer fólk oft að breyta rödd­inni og tala við fólk eins og börn. Ég veit alveg að það er vel meint, en það getur virkað alveg rosa­lega illa á fólk þannig að það vilji bara ekki fara út í búð lengur eða tala við aðra. Það fer að fela.

Og ef fólk þarf að nota staf, göngu­grind eða hjóla­stól.. það er bara oft svo erfitt. Það þarf bara að vera miklu sýni­legra. Sjást miklu meira, til dæmis á sviði. Og það þarf að gera það auð­veld­ara fyrir alla sem eru með ein­hverja sjúk­dóma eða fatl­anir að vera í skóla, vera í stjórn­málum, vera áber­andi, vera í sjón­varpi, vera á sviði. Áður fyrr, ef þú varst í hjóla­stól, þá gastu jafn­vel ekk­ert verið á sviði því þau voru svo hátt uppi og erfitt að fram­kvæma. Nú er það bara þannig að það verður að vera hægt að fara – það verður að vera rampur eða lyfta og þetta er allt að lag­ast hægt og rólega. En það þarf virki­lega að breyta hug­ar­fari hjá fólki og eina leiðin til að breyta því er ef allir kynn­ast ein­hverjum sem eru með fötlun eða sjúk­dóm.

Og fólk sem er ein­hverft… það getur varla sagt frá því að það sé ein­hverft því þá fara sumir að tala við það eins og ein­hvern ruglu­dall.

Fólk sem er með geð­hvarfa­sýki eða geð­klofa og segir frá því lendir stundum í því að fólk taki ekki mark á því og segi eitt­hvað eins og „Hva, tókstu ekki lyfin þín í morgun?“, ef það segir eitt­hvað óvenju­legt og eitt­hvað svona. Það eru svo rosa­legir for­dómar og fólk þorir varla að segja frá því ef það er með ein­hvern sjúk­dóm og er jafn­vel svo feimið að það vill ekki einu sinni leita sér hjálpar. Og ef það fær hjálp þorir það kannski ekki einu sinni að segja fjöl­skyldu­með­limum frá.

Hvar á maður þá að fá stuðn­ing?

Eft­ir­far­andi er slóð á Twitch, fyrir þá sem vilja fylgj­ast með tón­leikum dj. flug­vélar og geim­skips heima í stofu, næst­kom­andi föstu­dag, 8. októ­ber, klukkan 19:

twitch.tv/alienorchestra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu