„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bogi í vanda vegna brottreksturs Ólafar Helgu: Verkalýðsfélög segja Icelandair stríð á hendur

Bogi í vanda vegna brottreksturs Ólafar Helgu: Verkalýðsfélög segja Icelandair stríð á hendur
Ólöf Helga

Brott­rekstur Ólafar Helgu Adolfs­dóttur frá Icelandair er orð­inn að stór­máli fyrir félagið og gæti orðið afdrifa­ríkt. Ólöf, sem er ein­stæð móðir, var trún­að­ar­maður hlaðmanna á Reykja­vík­ur­flug­velli og hafði þurft að fást við erfið starfs­manna­mál þegar hún var óvænt rekin. Stjórn­endur Icelandair hafa reynst tví­saga um aðdrag­anda og ástæður þess að Ólöf var rekin úr starfi. Nú er staðan sú að fjár­festar í Icelandair eru undir þrýst­ingi um að axla sam­fé­lags­lega ábyrgð og snúa baki við félag­inu. Þá eru verka­lýðs­hreyf­ingin að safna vopnum sínum gegn flug­fé­lag­inu.

Athygl­is­vert er að Bogi Nils Bogason for­stjóri félags­ins hefur ekk­ert viljað segja um málið sem er orðið grafal­var­legt fyrir almenn­ings­hluta­fé­lagið. For­stjór­inn hefur látið Ás­dísi Ýr Péturs­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Icelandair, senda staðlað svar um að félagið tjái sig ekki um mál ein­stakra starfs­manna. Þar kemur fram að fyrir­tækið hafi farið eftir lögum og kjara­samn­ingum sem einnig eigi við um lög sem kveða um vernd trún­aðar­manna. félags­ins. Nánast öll verka­lýðs­hreyf­ingin er ósam­mála þessu mati stjórn­enda Icelandair.

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar, er einn margra verka­lýðs­leið­toga sem for­dæma upp­sögn trún­að­ar­mann­ins.  Hún upp­lýsti Frétta­blaðið um að stéttar­fé­lagið væri á fullu að und­ir­búa næstu skref í mál­inu.

Ólöfu var sagt upp störfum í ágúst síð­ast­lið­inn en hún var trún­aðar­maður hl­að­deildar Icelandair. Hún sagð­ist í Kvöld­við­tali Mannlífs ekk­ert botna í brott­rekstr­inum.

Ég hef ekki fengið neinar almenni­legar ástæður fyrir upp­sögn­inni

„Ég var búin að vera trún­að­ar­maður í rúm þrjú ár og und­an­farna mán­uði hafði ég verið að vinna í ákveðnum málum fyrir hlað­deild­ina, bæði varð­andi breyt­ingu á vak­taplani og svo færslu á ákveðnu starfi sem snýr að þjón­ustu við hreyfi­haml­aða far­þega. Í raun­inni var ég í sum­ar­fríi þegar ég fékk sím­tal frá yfir­mann­inum mínum um að ég ætti von á upp­sagn­ar­bréfi. Ég fékk svo upp­sagn­ar­bréfið í hend­urnar fimm dögum seinna. Ég hef ekki fengið neinar almenni­legar ástæður fyrir upp­sögn­inni nema að stöðv­ar­stjór­inn nefndi í sím­tal­inu við mig að um trún­að­ar­brest væri að ræða og til­kynnti svo sam­starfs­fólki mínu að mér hafi verið sagt upp störfum vegna alvar­legs trún­að­ar­brests“.

Ljóst er að stjórn­endur Icelandair verða að bregða skjótt við til að ná stjórn á krís­unni sem félagið glímir við vegna brott­rekst­urs Ólafar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins