„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jóna lögfræðingur segir stúlkum byrluð ólyfjan með sprautum: „En afhverju varstu ekki í brynju?“

Jóna lögfræðingur segir stúlkum byrluð ólyfjan með sprautum: „En afhverju varstu ekki í brynju?“

„Hvað er að frétta hérna í útland­inu? Jú allt ágætt svona almennt nema ný byrl­un­ar­að­ferð er að skjóta upp koll­inum hér í Edinborg og Liverpool amk, þar sem það er bók­staf­lega verið að stinga konur með byrl­un­ar­efnum.“

Svona hljómar færsla Jónu Þ. Pét­urs­dóttur á Twitter í gær. Jóna er lög­fræð­ingur og ung­menna­full­trúi Íslands á sviði mann­rétt­inda­mála hjá Sam­ein­uðu Þjóðunum.

Færslu sinni til stuðn­ings sýnir Jóna skjá­skot og myndir. Á einni mynd­inni, sem kemur frá Edin­burgh Anonymous, sam­tökum sem birta nafn­lausar frá­sagnir nem­enda í Edinborg um kyn­ferð­is­of­beldi, stendur:

„Við höfum heyrt höfum heyrt ótal frá­sagnir af nem­endum sem lent hafa í því að vera byrluð ólyfjan með sprautu, á skemmti­stöðum í Edinborg. Sprautan skilur eftir sig litla, rauða bólu á baki þeirra.

Ein­kennin eru svipuð því þegar ein­stak­lingum er byrluð ólyfjan með töflum: skyndi­legt ölv­unar­á­stand, sljó­leiki og ógleði.“

Á annarri mynd gefur að líta frá­sögn stúlku sem varð vitni að slíkri árás á systur sína. Með­fylgj­andi er mynd af baki syst­ur­innar, þar sem sjá má rauðan blett.

Hún biðlar til ann­arra stúlkna að fara var­lega:

„Stelpur, vin­sam­leg­ast varið ykkur í kringum mið­borg Liverpool.“

Hún segir frá því að hún, ásamt systur sinni, hafi verið á bar í mið­bænum þegar ein­hverju var skyndi­lega sprautað í bak systur hennar. Systir hennar hafi fundið fyrir því þegar eitt­hvað stakkst inn í bakið á henni og var dregið út. Hún hafi orðið mjög hrædd og þær farið að skoða á henni bakið. Þar sáu þær ummerkin.

Hún tekur það fram að málið sé undir rann­sókn lög­reglu og að systir hennar hafi ekki verið sú eina sem lenti í slíkri árás umrætt kvöld.

„Vin­sam­leg­ast passið að vera öruggar og nálægt vinum ykkar þegar þið farið út að skemmta ykkur, sér­stak­lega þegar þið eruð í kringum karl­menn sem þið þekkið ekki.“

Færsla Jónu vekur hörð við­brögð á Twitter.

Ein athuga­semd undir færslu Jónu hljóðar svo:

„Nú er bara að bíða og sjá hvernig fólk nær að koma ábyrgð­inni yfir á konur. „Þú pass­aði upp á drykk­inn þinn allt kvöldið. En afhverju varstu ekki í brynju?“

„Vá hvað þetta er scary,“ segir Ólöf Tara, með­limur í bar­áttu­hópnum Öfgum.

„Ömurlegt. Og samt eru þolendur alltaf vanda­málið, ein­hvern­veg­inn,“ segir Fríða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins