„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll um Helga Seljan: „Undarlegt að geðveikur maður fari með dagskrárvald á ríkisreknum fjölmiðli“

Páll um Helga Seljan: „Undarlegt að geðveikur maður fari með dagskrárvald á ríkisreknum fjölmiðli“
Páll Vil­hjálms­son

„Helgi Seljan játar sig geð­veikan,“ skrifar hinn umdeildi fjöl­miðla­kenn­ari og upp­á­halds­blogg­ari Davíðs Oddsonar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, Páll Vil­hjálms­son. Gjarnan er vitnað til skoð­ana í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins og þeim gert hátt undir höfði.

Páll fer ekki fögrum orðum um fjöl­miðla­mann­inn Helga Seljan eftir heim­sókn Helga í Þátt Gísla Marteins á RÚV, og mögu­legt er að telja að skrif Páls séu á gráu svæði, jafn­vel mjög ógeð­felld og óvið­eig­andi:

„Frétta­maður RÚV, Helgi Seljan, var í við­tali hjá öðrum RÚV-ara, Gísla Marteini, og sagði þetta: „Ég hef svo sem sagt frá því áður, ég er veikur fyrir. Ég hef þurft að leggj­ast inn á geð­deild,“ svar­aði Helgi.

„Sá sem er geð­veikur er hvorki með sjálfan né heim­inn á hreinu. Annars væri hann ekki geð­veikur. Sá sem er læs á sjálfan sig er í standi til að taka ákvarð­anir á lífs­ins veg­ferð. Til að skilja heim­inn í kringum sig þarf maður að botna í sjálfum sér. Skil­grein­ingin á geð­veiki er að tapa áttum, ekki smá­vegis eða í skamma stund, heldur veru­lega og til lengri tíma. Sá sem leggst inn á geð­deild er kom­inn í slíkar ógöngur að aðeins duga stór­tæk inn­grip lækn­is­vís­inda til að færa geð­heils­una í samt lag. Annars eru menn heima, taka lyfin sín, stunda reglu­lega hreyf­ingu og feta sig áfram til að takast á við lífið á ný.“

Og Páll heldur áfram að kasta grjóti í Helga sem og í raun alla þá sem hafa ein­hvern­tím­ann glímt við and­leg veik­indi:

„Helgi sýndi skýr þrá­hyggju­ein­kenni þegar hann skipu­lagði aðför að Samherja árið 2012. Hann afsak­aði ,,linnu­lausa bög­gið“ sitt. Böggið reynd­ist skáld­skapur sem farið var ítar­lega yfir í dóms­kerf­inu og hafnað frá a til ö. En Helgi bögg­að­ist áfram enda illa tengdur veru­leik­anum.

Siða­nefnd RÚV úrskurð­aði að Helgi hefði alvar­lega brotið siða­reglur með fram­göngu sinni í Sam­herj­a­mál­inu. Viðbrögð Helga voru í meira lagi und­ar­leg. Hann sagð­ist hafa fullt leyfi til að flétta saman fréttum og per­sónu­legu mati sínu og gild­is­dómum. Siða­reglur segja eitt en Helgi má það sem öðrum leyf­ist ekki. Stór­mennsku­brjál­æði kemur í ýmsum myndum,“ skrifar Páll og bætir í:

„Kúlt­úr­inn sem Helgi hefur tekið þátt í að móta er þannig lýst af manni sem varð fyrir barð­inu á vinnu­lagi sam­verka­manna Helga á Efsta­leiti:„Það er mögu­legt að búið sé að skrifa hand­ritið og það er mik­il­vægt að vita hvort þú sért í „góða“ lið­inu eða „vonda“ lið­inu.

Ef þú ert í „vonda“ lið­inu er senni­lega ekki þess virði að taka þátt því Kveikur mun ein­ungis birta þau brot úr við­tal­inu sem hentar þeirra mál­flutn­ingi og senni­lega fá við­mæl­endur úr „góða“ lið­inu til að „leið­rétta“ þín orð.“

„Þeir sem búa að heil­brigðri dóm­greind vita að í mann­líf­inu eru hlut­irnir sjaldn­ast svartir eða hvítir. Þeir sem eru skyni skroppnir eru aftur iðu­lega sann­færðir að heim­ur­inn skipt­ist í ill­menni og góð­menni.

Helgi er núna í játn­ing­ar­ferli líkt og þeir sem eru komnir í sjálf­heldu og vilja vinna í sínum málum. Vonandi nær hann bata.

Burtséð frá bata­ferl­inu er í meira lagi und­ar­legt að geð­veikur maður fari með víð­tækt dag­skrár­vald á rík­is­reknum fjöl­miðli, RÚV „.

Geð­veikur Helgi skipu­leggur í ára­vís skandal hægri vinstri, skáldar ef ekki vill betur til. Sá geð­veiki fær fullt umboð yfir­stjórnar RÚV til að flytja áróður klæddan í bún­ing frétta.RÚV fór ómjúkum höndum um borg­ar­stjóra sem var tæpur á geði og sýndi hann gúgú og gaga í skemmti­þætti á besta útsend­ing­ar­tíma. En nú er það gúgú og gaga sem stjórnar dag­skránni á Efsta­leiti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins