„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pálmatré í Vogahverfi fær grænt ljós – trjánum fækkað úr tveimur í eitt

Pálmatré í Vogahverfi fær grænt ljós – trjánum fækkað úr tveimur í eitt
Mynd/Reykja­vik.is

Borg­ar­stjórn Reykja­víkur ætlar að láta verða af því að flytja pálma­tré til lands­ins og setja það upp sem úti­lista­verk í nýrri Voga­byggð. Tréð verður eitt, en upp­runa­lega áttu þau að vera tvö tals­ins. Þessu greindi Morg­un­blaðið frá í gær.

Málið komst í hámæli á sínum tíma, eftir að þýski lista­mað­ur­inn Karin Sander bar sigur úr býtum í sam­keppni um úti­lista­verk í Voga­byggð, en nið­ur­staða dóm­nefndar keppn­innar var kynnt á Kjar­vals­stöðum þann 29. jan­úar árið 2019.

Lista­verkið er hannað með það í huga að tveimur pálmatrjám sé komið fyrir í stórum, turn­laga gróð­ur­húsum og frá þeim stafi ljósi og hlýju.

Þegar lista­verkið var kynnt árið 2019 vakti það mikið umtal og ýmsir voru mót­fallnir því að flytja pálma­tré í aðstæður þar sem það myndi mögu­lega ekki lifa af – enda ljóst að íslenskt veð­ur­far og birtu­stig eru ekki kjörað­stæður fyrir hita­beltis­plöntur.

Það var hins vegar útskýrt að inni í gróð­ur­húsa­t­urn­unum yrði hiti, ljós og raki í því magni sem trén þyrftu. Þá var farið að rök­ræða orku­kostnað borg­ar­innar við að halda lífi í tveimur pálmatrjám, sem og verðið á gróð­ur­hús­unum sjálfum. Kostn­að­ur­inn við lista­verkið átti að vera um 140 millj­ónir króna. Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins settu sig upp á móti verk­efn­inu og vildu að áformin yrðu end­ur­skoðuð.

Árið 2020 var ákveðið að fram færi raun­hæf­is­mat á til­lög­unni. Nú liggur nið­ur­staða mats­nefndar fyrir: hægt er að rækta pálma­tré við þær aðstæður sem ríkja í Voga­byggð.

„Ljóst er þó að raun­hæf­is­matið sem fylgdi til­lög­unni er of lágt, en upp­fært kostn­að­ar­mat er enn í skoðun og í sam­ráði við höf­und verks­ins er til­lagan sú að vera með eitt tré á torg­inu í stað tveggja,“ segir Huld Ingi­mars­dóttir, skrif­stofu­stjóri fjár­mála og hjá menn­ingar- og ferða­mála­sviði Reykja­vík­ur­borgar, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Því er reiknað með að kostn­aður við lista­verkið verði lægri en upp­haf­lega var gert ráð fyrir.

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins og garð­yrkju­fræð­ingur, er á meðal þeirra sem gagn­rýna áformin.

Árið 2020 sagði Vigdís að lista­verkið væri algjört flopp og á pari við dönsku braggastráin og grjót­hrúg­urnar úti á Granda. Hún spurði hvers vegna dóm­nefndin hafi valið lista­verk sem þyrfti að fara í raun­hæf­is­mat.

Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði það ótækt að verja ætti tífaldri þeirri upp­hæð sem Reykja­vík­ur­borg ver árlega til lista­verka­kaupa, í eitt verk.

Þess ber þó að geta að kostn­aður við lista­verkin mun vera borg­aður til hálfs af borg­inni. Hinn helm­ing­ur­inn verður greiddur af lóð­ar­eig­endum.

Það eru ekki pálma­trén sjálf, sem nú er orðið aðeins eitt, sem bera svona háan verð­miða. Það er aðal­lega gróð­ur­húsið, gler­kúp­ull­inn og það sem honum fylgir, sem gerir lista­verkið jafn dýrt og raun ber vitni.

Þess ber að geta að engir garð­yrkju­fræð­ingar voru í nefnd­inni sem valdi lista­verkið á sínum tíma. Guðríður Helga­dóttir garð­yrkju­fræð­ingur sagði stuttu eftir að lista­verkið var kynnt að ýmis tor­merki væru á ræktun hárra pálma af suð­rænum upp­runa í gler­hólkum í Voga­byggð.

Hún sagði hávaxna pálma vera hita­kæra og að það geti verið snúið að halda hita- og raka­stigi réttu inni í svona litlu rými allt árið, við íslenskar veð­ur­að­stæður.

„Þarna þyrfti að setja mik­inn hita inn í til­tölu­lega lítið loft­rými til að vega á móti vindá­hrif­um, kulda og frosti fyr­ir utan. Mik­ill hiti kall­ar jafn­framt á að plönt­urn­ar hafi greiðan aðgang að vatni og við hátt raka­stig mynd­ast móða inni á gler­inu og nauð­syn­legt að bregð­ast við því.

Af mynd­um að dæma eru turn­arn­ir líka það háir að það er spurn­ing hvernig þeir stand­ast veður­ham­inn í Voga­hverf­inu. Svo þarf að huga að lýs­ingu fyr­ir plönt­urn­ar því mikið myrk­ur yfir há­vet­ur­inn er ekki drauma­staða fyr­ir plönt­urn­ar,“ sagði Guðríður í sam­tali við Morg­un­blaðið á sínum tíma.

Guðríður sagði að ef ráð­ist yrði í verk­efnið yrði það flókið í fram­kvæmd og hún velti sömu­leiðis fyrir sér kostn­að­inum við umhirð­una og við­haldið.

Nú virð­ist hins vegar búið að skera úr um að verk­efnið sé raun­hæft og þar með gefa því grænt ljós. Voga­byggð kemur því til með að skarta pálma­tré í gler­kúpli þegar fram líða stundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins