„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verkefnið stuðlar að því að draga úr myndun úrgangs og minnka eftirspurn eftir náttúruauðlindum

Verkefnið stuðlar að því að draga úr myndun úrgangs og minnka eftirspurn eftir náttúruauðlindum

Á vef­síð­unni Saman gegn sóun er að finna ráð um hvernig hægt sé að und­ir­búa sig fyrir vet­ur­inn án þess að ýta undir neyslu og sóun.

Þegar vet­ur­inn skellur á og veður fer að kólna fara flestir að huga að hlýrri fatn­aði. Versl­anir aug­lýsa haust- og vetr­ar­tísku sem ein­kenn­ist af hlýjum peysum, treflum og yfir­höfnum og sumir kaupa sér ný föt fyrir vet­ur­inn.

„Saman gegn sóun er almenn stefna umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um úrgangs­for­varnir sem gildir frá árinu 2016 til 2027. Umhverf­is­stofnun fer með umsjón með Saman gegn sóun.“

Verk­efnið er í sam­ræmi við hug­mynda­fræði hringrás­ar­hag­kerf­is­ins sem setur í for­gang að draga úr myndun úrgangs og stuðla þannig að minni eft­ir­spurn eftir nátt­úru­auð­lindum. Með verk­efn­inu er verið að leggja áherslu á nægju­semi, meiri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.

Hvað getur maður þá gert til þess að taka fyrsta skrefið í átt að minni sóun? Svarið er ein­falt, sam­kvæmt ráð­legg­ingum af síð­unni og snýst það helst um að fylgja þessum fimm ráðum:

  1. Kaupum minna
  2. Kaupum notað
  3. Notum lengur
  4. Gerum við
  5. End­ur­vinnum meira

Gott ráð sam­kvæmt síð­unni er að byrja á að fara yfir það sem við eigum og nota það sem hægt er að nota áfram. Ef flíkur passa ekki lengur eða nýt­ast ekki er hægt að kaupa notað eða jafn­vel leigt föt. Með því sparar þú orku, efni og vatn sem notað er í fram­leiðslu nýrra flíka.

Vissir þú að …

um 8-10% losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heim­inum er frá textíl­iðn­aði?

síðan 2018 hafa um 8% fleiri dregið úr einka­neyslu til að draga úr umhverf­is­á­hrifum?

með því að nota fötin okkar tvö­falt lengur getum við dregið úr umhverf­is­á­hrifum af neyslu okkar á fatn­aði um helm­ing?

Mikið úrval er af búðum sem selja notuð föt. Gæði not­aðs fatn­aðar eru almennt mikil og talað er um að það ættu allir að geta fundið sér eitt­hvað við hæfi.

Hér má finna lista yfir nokkrar versl­anir sem selja notað:

Aftur nýtt – Sunnu­hlíð 12, Akureyri. Básar þar sem hægt er að kaupa og selja not­aðan fatnað.

Barna­loppan– Skeif­unni 11, Reykja­vík. Básar þar sem hægt er að kaupa og selja not­aðar barna­vörur.

Extra­loppan – Smára­lind. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt fyrir full­orðna.

Fata­búðir Rauða kross­ins  – um allt land.

Fram­halds­líf fyrir yfir­hafnir.

Hertex – Reykja­vík og Akureyri. Fata- og nytja­mark­aður.

Kringlubazaar – Kringl­unni. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt fyrir börn og full­orðna.

Spúútnik – Kringl­unni og Lauga­vegi 28b, Reykja­vík. Notuð föt til sölu.

Stína fína – Strand­götu 29, Hafn­ar­firði. Umboðs­sala á not­uðum fatn­aði, skóm og fleira fyrir konur.

Trend­port – Hafn­ar­gata 60, Keflavík. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt fyrir börn og full­orðna.

Verzlanahöllin – Lauga­vegi 26, Reykja­vík. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt.

Wasteland Reykja­vík – Ing­ólfs­stræti 5, Reykja­vík. Notuð föt til sölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins