„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hrikaleg reynslusaga konu af byrlun: „Vinkona mín hélt að ég væri að deyja“

Hrikaleg reynslusaga konu af byrlun: „Vinkona mín hélt að ég væri að deyja“

Kona, sem kýs að láta nafns síns ekki getið, segir í sam­tali við Mannlíf frá reynslu sinni af því að vera byrluð ólyfjan á skemmti­stað.

Það gerð­ist á Spáni, þar sem hún var í skemmti­ferð ásamt vin­konu sinni, þegar hún var átján ára.

Sagan hefst þegar hún og vin­kona hennar voru á leið út að skemmta sér. Þær voru á þessum tíma­punkti búnar að drekka lítið magn af áfengi, uppi á hót­eli.

„Síðan, á fyrsta staðnum sem við fórum á, var ég allt í einu orðin dauða­drukkin. Eða, þannig leið mér. Það voru fleiri Íslend­ingar þarna, sem voru reyndar á öðru hót­eli. En við hittum þessa Íslend­inga þarna. Svo var ég orðin alveg eins og ég væri rosa­lega full og svo man ég ekk­ert mikið meira.

Ég man bara eins og svona skot, eins og maður sér í bíó­myndum. Svona brot. Svo var bara verið að halda á mér upp á hótel. Sem sagt, Íslend­ing­arnir, þeir voru að hjálpa. Af því að ég var bara eins og ég væri lömuð. Svo fór ég bara upp á hótel.

Vinkona mín var í sjokki, hélt að ég væri að deyja. Hún vissi ekk­ert hvað var í gangi.

Það er svona langt síðan – tólf ár – svo það var ekki verið að tala jafn­mikið um svona mál og núna.

Eftir að við komum upp á hótel leið smá tími og svo byrj­aði ég að gubba alveg svaka­lega mikið. Ég gubb­aði og gubb­aði, bara enda­laust.“

Vinkona hennar var með henni allan tím­ann, frá því þær komu á skemmti­stað­inn fyrr um kvöldið og þar til þær fóru upp á hótel.

Vinkonan missti því aldrei sjónar á henni og því ljóst að sá sem byrl­aði henni lyf­inu komst ekki í návígi við hana. Þær komust aldrei að því hver það var. Hún veit ekki heldur hvaða efni var notað.

„Þetta hefur örugg­lega verið ein­hver á staðnum. Ekki Íslend­ing­arnir, held ég, því þeir voru alveg í sjokki og að hjálpa okkur.“

Ein­kenn­unum lýsir hún á eft­ir­far­andi hátt:

„Svimi og mátt­leysi, ein­hvern veg­inn og eins og ég væri bara ógeðs­lega full. Þetta var fyrsti stað­ur­inn, fyrsti skemmti­stað­ur­inn sem við fórum á, þannig að það var ekki eins og ég hefði verið búin að djamma alla nótt­ina.

Svo man ég bara ekk­ert meira, fyrr en ég var svona liggj­andi yfir öxl­ina á Íslend­ingi, sem var þá að hjálpa – þau voru að fara með mig upp á hótel af því ég var bara alveg … ég man ekk­ert eftir því að hafa verið að missa mátt­inn.

Þetta er bara það næsta sem ég man, ég horfði eig­in­lega svona á gang­stétt­ina. Jú, svo man ég ein­hverjar glefsur, þar sem vin­kona mín var rosa­lega hrædd um mig. Hún var í ein­hverju panikki. Ég man bara svona brot.

Það var líka skrýtið dag­inn eftir, að ég var ekk­ert þunn eða svo­leiðis. Ég fann ekk­ert þannig, ég var ekk­ert slöpp dag­inn eftir.

Ég bara gubb­aði og … þetta var svo skrýtið, því ég hefði haldið að ég myndi finna mikið fyrir þessu dag­inn eftir. Ég vakn­aði og þau sögðu mér hvað hefði gerst, vin­kona mín spurði hvernig mér liði og ég var bara góð, þannig.“

Hún seg­ist hafa verið í lagi, lík­am­lega, en þetta hafi vissu­lega verið sjokk og haft ann­ars konar áhrif.

„Ég var samt svo ung að ég kannski átt­aði mig ekki alveg á hvernig þetta hefði getað endað.“

Hún segir að það hafi ekki verið fyrr en hún varð eldri sem hún gerði sér fylli­lega grein fyrir hætt­unni og því hversu hræði­lega illa þetta hefði getað farið.

„Þetta var svo furðu­legt. Aðallega hvað þetta gerð­ist hratt – hvað þetta er greini­lega fljótt að fara inn í systemið.

Um leið og þú tekur þetta inn, um leið og ein­hver setur þetta í glasið þitt, þá ertu bara kom­inn í ruglið svo rosa­lega stuttu eftir það. Það er svo óþægi­legt, ein­hvern veg­inn.“

Mannlíf bendir les­endum á að ef grun­semdir vakna um að þeir eða ein­hver í návígi við þá hafi orðið fyrir byrlun, skuli taf­ar­laust hafa sam­band við neyð­ar­lín­una í síma 112.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byrlanir

Grunur um þrjár byrlanir á Akureyri í nótt: „Eins og fólk sé meira meðvitað um þetta“
Innlentbyrlanir

Grunur um þrjár byrl­anir á Akureyri í nótt: „Eins og fólk sé meira með­vitað um þetta“

Á Vísi í dag er sagt frá því að grunur leiki á að þremur hafi verið byrlað ólyfjan á Akureyri í nótt, tveimur konum og einum karl­manni. Þar kemur fram að önnur kvenn­ana hafi fund­ist nær rænu­laus fyrir utan skemmti­stað í bænum. Vinir hinna tveggja ein­stak­ling­anna komu þeim á slysa­deild. „Það fór lög­reglu­maður á bráða­mót­tök­una en við náðum ekk­ert að...
Birgitta Líf segir byrlunarfaraldur geisa: Svona líður þér ef búið er að byrla þér ólyfjan
Innlent

Birgitta Líf segir byrl­un­ar­far­aldur geisa: Svona líður þér ef búið er að byrla þér ólyfjan

Sífellt hávær­ari umræða er um að tíðni byrl­unar hafi auk­ist á skemmti­stöðum í miðbæ Reykja­víkur síð­ustu miss­eri. Morg­un­blaðið talar í dag við Birgittu Líf Björns­dóttur, eig­anda skemmti­stað­ar­ins Banka­stræti Club, en hún vill meina að þessum atvikum hafi fjölgað tölu­vert síð­ustu helgar. Hún líkir ástand­inu hrein­lega við far­aldur. „Ég veit um nokk­ur til­vik, bæði hjá okk­ur og öðrum stöðum niðri í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins