„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lárus er fjölelskandi í opnu hjónabandi: „Ég held að þetta hafi bætt hjónabandið ef eitthvað er“

Lárus er fjölelskandi í opnu hjónabandi: „Ég held að þetta hafi bætt hjónabandið ef eitthvað er“

Fjölástir, eða „polyamory“ á ensku, er teg­und af sam­bands­formi þar sem meg­in­at­riðið er að fólk á í ein­hvers konar róm­an­tískum sam­böndum við fleiri en einn ein­stak­ling í einu. Í almennu tali er sagt að fólk sé „pólý“, en poly er stytt­ing á „polyamorous“, sem hefur verið þýtt sem fjöl­elsk­andi á íslensku.

Mannlíf ræddi við mann sem er fjöl­elsk­andi. Hann og eig­in­kona hans eru í pólý­hjóna­bandi. Þau búa saman, eiga börn og hefð­bundið fjöl­skyldu­líf, en fara svo bæði á stefnu­mót utan hjóna­bands­ins og eiga kærustur/kærasta eftir atvikum. Maðurinn, sem kaus að segja frá reynslu sinni undir nafn­leynd, er að nálg­ast fimm­tugt.

Þau hjónin hafa verið gift í fimmtán ár, en ákváðu að opna hjóna­band sitt fyrir tæp­lega þremur árum.

Maðurinn verður hér kall­aður Lárus.

Viðtalið í heild sinni má nálg­ast í nýju helg­ar­blaði Mannlífs.

Kynlíf hluti af pakkanum en ekki aðalatriði

„Held að grunn­ur­inn í opnum hjóna­böndum sé að þú elskar við­kom­andi það mikið að þú vilt að hinn aðil­inn njóti sín, hvort sem það er með þér eða öðrum,“ segir Lárus.

„Stundum þurfum við að ýta á hvort annað að drífa okkur af stað á stefnu­mótið. Þá er sam­viskan eitt­hvað að naga okkur, þó svo að við hlökkum til stefnu­móts­ins.

Það að skilja hinn aðil­ann eftir heima með börnin getur vakið sam­visku­púk­ann þó svo að við vitum að sá sem er að fara út muni njóta þess og að sá aðili sem verður eftir heima muni fara út eitt­hvert annað kvöld.

Það hefur reyndar komið fyrir að við höfum fengið pössun og farið út á sama tíma en á deit hvort með sínum aðil­anum. Það er góð til­finn­ing þegar við erum bæði að njóta í stað þess að annar aðil­inn sé heima.

Reyndar, þó svo að við séum gift, þá notum við oft það orð­færi að konan mín sé kærasta mín og ég kær­asti hennar. Mér finnst spenn­andi til­hugsun að eiga tvær kærustur, búa með einni, sem ég geri, og hitta svo aðra reglu­lega. Ég myndi samt ekki fara í tvö­falt heim­il­is­hald með til­heyr­andi flækju­stigum, ég sé það ekki fyrir mér.

Frá upp­hafi hef ég viljað teng­ingu, það er nauð­syn­legt fyrir mig. Ég hef aldrei getað einnar nætur gaman þar sem þar er ekki alvöru teng­ing til staðar. Ég hef þó gert það í örfá skipti á yngri árum.

Ég vil sem sagt deit, spjall, teng­ingu og svo­leiðis. Ég hef voða gaman af áhuga­verðu spjalli um hitt og þetta. Kynlíf er hluti af pakk­anum en það er ekki aðal­at­riðið, þó svo að ég sé og hafi alltaf verið mikil kyn­vera. Það er líka stað­reynd að þar sem góð teng­ing er til staðar verður kyn­lífið betra og þró­ast með tím­anum.

Það er tals­vert um pólý hér á landi, lík­lega meira en fólk grunar, held að þetta sé smám saman að koma upp á yfir­borðið. Þetta er samt sem áður ekki við­ur­kennt, svo að maður fer var­lega til að nán­asta fjöl­skylda frétti ekki af þessu, til dæmis börnin.

Þar fyrir utan er mér alveg sama hverjir vita af þessu hjá okkur, ég er ekk­ert að fela þetta, til dæmis þegar ég fer á deit. Ef ég rekst á ein­hvern sem ég þekki þegar ég er á stefnu­móti þá er það bara þannig.

Ég er rólegur að eðl­is­fari og ég held að fólk sem þekkir mig myndi aldrei gruna að ég væri pólý. Ég hef ekki sagt vinum mínum frá þessu, en konan mín hefur sagt nokkrum af sínum vin­konum frá.“

Fyrirkomulagið gerði hjónin nánari

Lárus segir að það sé gaman að finna spenn­una sem fylgi nýja­brum­inu þegar byrjað er að hitta nýtt fólk eftir svo langan tíma í sam­bandi með sömu mann­eskj­unni.

Hann segir að eðli­lega eigi hvers­dag­ur­inn svo­lítið til að taka yfir í lang­tíma­sam­böndum með til­heyr­andi verk­efnum og þá eigi spennan það til að glat­ast. Það sé hins vegar gaman að finna fyrir þessu nýja­brumi sem óhjá­kvæmi­lega fylgir fjölástum – og sjá maka sinn njóta sín og finna fyrir spennu á sama hátt.

Hann segir fyr­ir­komu­lagið hafa gert þau hjónin enn nán­ari og skapað meiri spennu og fjöl­breyti­leika í þeirra eigin sam­bandi og sam­lífi.

Algengir for­dómar gagn­vart þessu sam­bands­fyr­ir­komu­lagi eru á þann veg að ef fólk í hjóna­bandi vilji prófa það, hljóti það að þýða að hjóna­bandið sé dauða­dæmt og aðeins tíma­spurs­mál hvenær það endi. Lárus skilur að sumir gætu séð þetta á þann veg, en að það sé alls ekki upp­lifun hans og eig­in­konu hans.

„Ég held að þetta hafi bara bætt hjóna­bandið ef eitt­hvað er. Frekar en hitt. Við vorum samt mjög fín áður. En kannski þegar þú ert að fara á stefnu­mót, eða bara að fara út að hitta ein­hvern hóp af fólki, og hefur gaman, þá kem­urðu í góðu skapi til baka.“

Lárus segir einnig að áhrifin á kyn­líf þeirra hjóna hafi verið góð.

„Þegar þú prófar eitt­hvað með annarri mann­eskju sem þú hefur ekki gert áður og kemur svo til baka, þá kannski tek­urðu það með þér, með­vitað eða ómeð­vitað, inn í svefn­her­bergið heima hjá þér. Þegar þú ert búinn að vera með sama aðila í kannski fimmtán ár, þá verður stundum erfitt að koma með eitt­hvað nýtt. Það er bara mann­legt. Það er gaman að geta víkkað sjón­deild­ar­hring­inn.“

Vill frekar hitta fólk sem er líka í öðru sambandi

Lárus segir að í til­felli þeirra hjóna sé það þannig að þeirra hjóna­band og fjöl­skyldu­líf hafi for­gang.

„Sumir sem eru pólý vilja hafa allt og alla jafna – að ekk­ert sam­band trompi annað. En í okkar til­felli er þetta svona. Það yrði alltaf þannig og við sjáum ekk­ert annað fyrir okkur. Þess vegna er til dæmis snið­ugt að vera að hitta annað fólk sem er líka í öðru sam­bandi fyrir. Af því að ef ég er að hitta konu sem er ein­hleyp, eða sem er til dæmis með börnin sín aðra hverja viku, þá er ekki alveg sami skiln­ing­ur­inn.

Þá á ég að vera með henni þessa viku þegar hún er barn­laus. Það er eitt­hvað sem maður getur kannski bara ekk­ert upp­fyllt.

En þetta er auð­vitað alveg eðli­legt. Segjum að ein­hleyp kona fari að hitta mann sem henni líkar við. Þá vill hún auð­vitað bara vera með honum og að hann sé til staðar.

Þá er betra fyrir fólk eins og mig og kon­una mína að vera með fólki sem er líka í sam­bandi, því þá hitt­ist fólk bara þegar það hefur tíma og þá er líka skiln­ingur til staðar. Skiln­ingur á því að þú sért með börnin og fjöl­skyld­una í for­gangi, til dæmis. Það er ekki hægt að hoppa bara burt hvenær sem er.“

Láta alltaf vita – samskipti og traust skiptir öllu

Lárus þekkir þetta af eigin reynslu, því hann hefur bæði verið með fólki sem er í öðru pólý-sam­bandi fyrir og fólki sem er ein­hleypt.

„Þegar þú ert með mann­eskju sem er ein­hleyp þá færðu meira sam­visku­bit. Það er alla­vega mín reynsla. Þú veist að mann­eskjan er ein og vill eyða tíma með þér, en þú getur bara ekki gefið allan þann tíma – þú getur ekki verið alls staðar.“

Hann segir það afar mis­jafnt hvort og hvaða reglur fólk sé með þegar kemur að pólý-sam­böndum. Í hans til­felli eru regl­urnar ekki margar, en það er þó ein sem þeim hjón­unum þyki mik­il­væg.

„Við látum alltaf vita fyr­ir­fram. Ég fer ekki bara á deit núna og segi henni ekki frá því, eða segi henni seinna. Ég er til dæmis að fara annað kvöld og sagði henni frá því fyrir nokkrum dögum og hún sagði mér að hún ætl­aði að fara eftir nokkra daga.

Þannig að maður veit af því fyr­ir­fram. Ég veit hvern hún er að fara að hitta og hún veit hvern ég er að fara að hitta. Jafnvel þótt við ættum ekki börn, þá myndi ég alltaf vilja segja henni frá fyr­ir­fram. Annars fynd­ist mér vanta eitt­hvað upp á sam­skiptin.“

Þú hefur frelsi en velur að koma aftur heim

Lárus segir sam­skipti þeirra hjóna alltaf hafa verið opin og góð. Sömu­leiðis ríki mikið traust á milli þeirra.

„Annars gengi þetta ekk­ert. Annars væri svo mikið óör­yggi og maður væri alltaf að hugsa hvort mak­inn væri að fara að yfir­gefa mann fyrir hina aðil­ana. Það er í raun­inni afbrýði­semin, að vera hræddur um að missa ein­hvern. Afbrýði­semin getur í raun­inni bara verið til staðar ef það er ein­hver ótti.“

Hann segir að það þurfi vissu­lega að ræða það ef annað þeirra verði ást­fangið af annarri mann­eskju, en hann telur að þó að fólk stjórni ekki til­finn­ingum sínum þá kom­ist með tím­anum ákveðið jafn­vægi á svona sam­bands­form.

„Ég held að þessir hlutir kom­ist í jafn­vægi. Við fórum geyst í byrjun, en svo róað­ist þetta og það komst jafn­vægi á hlut­ina.

Ég held líka að ef þú ert að fá að fara út og horfa í kringum þig, hitta annað fólk og fara á stefnu­mót, þá verð­irðu bara enn ánægð­ari með það sem þú átt heima. Það er alla­vega mín reynsla. Þér finnst þú hafa frelsi, en þú kýst að koma heim til makans.

Þú ert að velja mak­ann þinn þótt það sé frjáls­ræði – þú ert ekki til­neyddur.

Þess vegna finnst mér líka betra að hitta fólk sem er pólý og líka í öðru sam­bandi fyrir. Því þeim líður þá gjarnan eins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölástir

„Þegar þú prófar eitthvað með annarri manneskju þá tekurðu það með inn í svefnherbergið heima.“
Innlentfjölástir

„Þegar þú prófar eitt­hvað með annarri mann­eskju þá tek­urðu það með inn í svefn­her­bergið heima.“

Í helg­ar­blaði Mannlífs var rætt við mann sem er fjöl­elsk­andi. Maðurinn, sem við köllum Lárus, er í opnu hjóna­bandi með konu sinni – pólý­hjóna­bandi. Það þýðir að hjónin hitta annað fólk og eiga kærasta og kærustur, utan við hjóna­bandið. Viðtalið í heild má nálg­ast í helg­ar­blaði Mannlífs. Fyr­ir­komu­lagið gerði hjónin nán­ari Lárus segir að það sé gaman að finna spenn­una...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins