„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lík systranna voru alblóðug á rúminu – Morðinginn með öxina sneri sér að börnum hjónanna

Lík systranna voru alblóðug á rúminu – Morðinginn með öxina sneri sér að börnum hjónanna

Aðfara­nótt mánu­dags­ins 10. júní, árið 1912, voru allir í fasta­svefni á heim­ili Josiah B. Moore og fjöl­skyldu hans í bænum Willisca í Iowa-fylki í Banda­ríkj­unum.

Auk hjón­anna, Josiahs, sem var 43 ára, og Söruh, 39 ára, og fjög­urra barna þeirra; Hermans Montgomerys, 11 ára, Mary Katherine, 10 ára, Arthurs Boyds, 7 ára, og Pauls Vernons, 5 ára, voru tvær stúlkur gest­kom­andi, Still­in­ger-syst­urnar Ina May, 8 ára, og Lena Gertrude, 12 ára.

Moore-fjöl­skyldan var ágæt­lega efnuð, vel þekkt og vel liðin í sam­fé­lag­inu og kvöldið áður hafði verið haldin athöfn fyrir börn í kirkju í grennd við heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Eig­in­kona Josiah hafði skipu­lagt athöfn­ina og hafði öll fjöl­skyldan og Still­in­ger-syst­urnar verið við­stödd hana, en síðan gengið heim á leið að henni lok­inni klukkan 21.30.

Dauðaþögn í morgunsárið

Heimili Moore-fjöl­skyld­unnar

Fer engum frá­sögnum af svefn­förum heim­il­is­fólks og gesta þess, en klukkan sjö, morg­un­inn eftir var barið á úti­dyra­hurð heim­ilis Moore-fjöl­skyld­unnar. Var þar kom­inn nágranni, Mary Peckham, sem tekið hafði eftir að eng­inn virt­ist kom­inn ofan á heim­il­inu. Mary fékk engin við­brögð við banki sínu og reyndi að opna en dyrnar voru harð­læstar.

Nú, Mary hleypti hænsnum Moore-fjöl­skyld­unnar út, en var með böggum hildar og sótti bróður Josiahs, Ross Moore, en hið sama var upp á ten­ingnum þegar hann knúði dyra; ekk­ert svar. Ross bjó svo vel að hafa í fórum sínum auka­lykil að úti­dyr­unum og sá þann kost vænstan að nýta hann.

Blóði drifinn vettvangur

Mary beið úti á ver­önd­inni en Ross gekk inn í for­stof­una og opn­aði dyrnar að gesta­her­berg­inu. Þar mætti honum ófögur sjón; lík Still­in­ger-systr­anna alblóðug á rúm­inu. Ross beið ekki boð­anna og sagði Mary að haska sér og sækja vörð laga og réttar á þeim slóðum, Henry „Hank“ Horton, sem kom skömmu síðar á vett­vang. Könn­un­ar­leið­angur Henrys um húsið leiddi í ljós nöt­ur­legan sann­leika – í því var eng­inn á lífi.

Moore-fjöl­skyldan og Still­in­ger-syst­urnar.

Öll höfðu verið höggvin eða barin til bana og fannst morð­vopnið, öxi löðr­andi í blóði, í gesta­her­berg­inu við lík Still­in­ger-systr­anna. Talið var að morðin hefðu verið framin ein­hvern tím­ann á milli mið­nættis og klukkan fimm um morg­un­inn.

Tveir vindlingastubbar

Virtist sem ódæð­is­mað­ur­inn, eða -menn­irnir, hefði haf­ist handa á efri hæð húss­ins, í hjóna­her­berg­inu. Það sem studdi þá ályktun voru tveir vind­linga­stubbar sem fund­ust á háa­lofti húss­ins – að morð­ing­inn hefði beðið þar í róleg­heitum eftir að heim­il­is­fólk sneri heim frá kirkju og tæki á sig náðir. Josiah fékk sýnu verri útreið en önnur fórn­ar­lömb. Ekki aðeins hafði hann verið bar­inn oftar í höf­uðið, heldur hafði axar­blað­inu verið beitt á hann en sú var ekki raunin í til­felli eig­in­konu hans eða barn­anna sex. Augu Josiah höfðu hrokkið úr tóft­unum við bar­smíð­arnar og var hvergi að finna í blóð­ugri káss­unni, sem and­lit hans var.

Varnarsár á handlegg Lenu

Síðan hafði morð­ing­inn snúið sér að börnum hjón­anna og hlutu þau sömu útreið og for­eldr­arnir. Að því loknu fór morð­ing­inn aftur inn til hjón­anna og bætti ein­hverra hluta um betur. Var atgang­ur­inn svo mik­ill að einn skór hafði fyllst af blóði og síðan oltið á hlið­ina. Þá lá leið morð­ingj­ans niður á neðri hæð húss­ins og inn í gesta­her­bergið til Inu og Lenu. Af verksum­merkjum þar að dæma var ályktað að Lena hefði verið vak­andi þegar þar var komið sögu. Á hand­leggjum hennar fund­ust áverkar sem benti til þess að hún hefði varist ódæð­is­mann­inum og einnig lá hún þversum í rúm­inu, nátt­slopp­ur­inn hafði verið dreg­inn upp að mitti og hún nær­klæða­laus.

Margir lágu undir grun

Ekkert var fast í hendi hvað mögu­legan morð­ingja áhrærði og voru þó nokkuð margir karlar nefndir til sög­unnar í því til­liti. Þeirra á meðal var prestur að nafni George Kelly. Hann þótti svo álit­legur að hann var kærður og réttað yfir honum í tvígang. Í fyrra skiptið komst kvið­dómur ekki að nið­ur­stöðu og í hið síð­ara féll sýknu­dómur.

Annar var Henry Lee Moore, sem þrátt fyrir ætt­ar­nafnið var ekki skyldur Josiah B. Moore.

Sekt Henrys Lees Moore var aldrei sönnuð.

Henry Lee var síðan úti­lok­aður sem mögu­legur morð­ingi í mál­inu. Hvort það var skyn­sam­leg ákvörðun eða ekki skal látið á milli hluta liggja, en þetta sama ár framdi hann tvö morð sem þóttu í mörgu líkj­ast morð­unum á heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Þau morð framdi hann í des­em­ber árið 1912 er hann gekk af móður sinni og ömmu dauðum og not­aði til þess öxi. En það er önnur saga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins