„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sólveig Anna hlær að orðum Guðmundar: „Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín“

Sólveig Anna hlær að orðum Guðmundar: „Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín“
Sólveig Anna Jóndóttir og Guð­mundur Bald­urs­son. Mynd/skjá­skot RÚV

„Í Kast­ljósi í gær­kvöld krafð­ist Guð­mundur Bald­urs­son þess að Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­for­maður Eflingar, segði af sér líkt og ég hef gert. Mér var vissu­lega ekki hlátur í hug en ég gat þó ekki annað en hlegið agn­arsmáum hlátri þegar Guð­mundur lét þessi orð falla.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, frá­far­andi for­maður Eflingar, í nýrri yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér á Facebook-síðu sinni nú í morgun.

Í Kast­ljós­þætti gær­kvölds­ins sagði Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, sína hlið á atburð­unum sem end­uðu með afsögn Sól­veigar Önnu úr for­manns­stóli stétt­ar­fé­lags­ins.

Þar sagð­ist Guð­mundur hafa óskað eftir upp­lýs­ingum í kjöl­far þess að einum starfs­manni var sagt upp störfum hjá félag­inu. Þær upp­lýs­ingar fékk hann ekki. Hann vildi einnig fá upp­lýs­ingar um starfs­loka­samn­ing sem gerður var við skrif­stofu­stjóra sem var sagt upp störfum.

„Ég komst síðar að því eftir öðrum leiðum að gerður hafi verið við hana 9 mán­aða starfs­loka­samn­ingur og þar á undan var hún búin að vera í 3 mán­uði í veik­inda­leyfi. 9 mán­uðir í starfs­loka­samn­ing hjá verka­lýðs­fé­lagi eftir tveggja ára starf þykir nokkuð ríf­legt.“

Hann neit­aði því alfarið að hann gengi erinda ein­hverra stjórn­mála­flokka. Sagðist Guð­mundur ein­göngu vera að fara eftir lögum sem honum beri að gera – það er að fylgja eftir því að ekki sé verið að gera óþarf­lega langa starfs­loka­samn­inga.

Krafa Guðmundar yfirgengileg og óbærilega ógeðsleg

„Ég hugs­aði um „afreka­lista“ hans í störfum fyrir félagið og fólkið sem til­heyrir því, og svo hvað Agnieszka hefur gert og þess­vegna hló ég í örskamma stund. Fárán­leiki þess að þessi maður væri að krefj­ast þess að hún léti sig hverfa var svo yfir­gengi­legur. En auð­vitað fyrst og síð­ast svo óbæri­lega ógeðs­legur,“ segir Sólveig Anna í yfir­lýs­ingu sinni.

Sólveig segir að Agnieszka sé valin af félögum sínum til að gegna stöðu vara­for­manns. Það hafi hún gert með sóma.

„Áður var hún trún­að­ar­maður árum saman og barð­ist gegn launa­þjófn­aði og óboð­legum aðstæðum, svo sem engri sal­ern­is­að­stöðu. Hún er fyrsta konan af pólskum upp­runa sem gegnir svo mik­il­vægu hlut­verki í íslenskri verka­lýðs­hreyf­ingu. Hún er fyrsti raun­veru­legi full­trúi aðflutts verka­fólks í verka­lýðs-bar­átt­unni.

Hún þekkir allt það sví­virði­lega rugl sem við­gengst gagn­vart aðfluttu verka­fólki á eigin skinni. Allt. Hún hefur, ásamt mér og þeim í stjórn sem raun­veru­lega hafa viljað bæta hag alls vinnu­aflsins, ekki bara hag þeirra sem líta út og tala eins og þeir sjálfir, leitt stór­kost­lega umbóta vinnu innan félags­ins þegar kemur að því að tryggja að okkar aðfluttu félagar eigi rétt á nákvæm­lega sömu þjón­ustu og þau okkar sem fædd eru hér.“

Sólveig Anna minnir á að um það bil helm­ingur félags­fólks Eflingar sé aðflutt fólk.

„Í fyrsta skipti er í ábyrgð­ar­hlut­verki mann­eskja sem til­heyrir þeim hópi, mann­eskja sem berst fyrir þennan hóp af öllu hjarta, alla leið. Og svo dirf­ist ein­hver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skamm­að­ist sín en ég veit af mik­illi reynslu að það kann hann ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Þrjú sækjast eftir formennsku í VR – Halla vill halda áfram
Innlentverkalýðsfélög

Þrjú sækj­ast eftir for­mennsku í VR – Halla vill halda áfram

Halla Gunn­ars­dótt­ir, Bjarni Þór Sig­urðs­son og Þor­steinn Skúli Sveins­son sækj­ast öll eftir því að verða for­menn VR en félags­menn kjósa um nýjan for­mann í mars. Halla hefur verið for­maður félags­ins frá því í des­em­ber 2024 en þá tók hún við for­mennsku af Ragnari Þór Ing­ólfs­syni sem sagði af sér eftir hann var kjör­inn á Alþingi fyrir Flokk fólks­ins. Halla var...
Sólveig Anna vill ekki verða forseti ASÍ: „Af hverju ætti láglaunafólk að vilja vera þarna áfram?“
Innlentverkalýðsfélög

Sólveig Anna vill ekki verða for­seti ASÍ: „Af hverju ætti lág­launa­fólk að vilja vera þarna áfram?“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, þvertók fyrir það að hafa áhuga á for­seta­emb­ætti Alþýðu­sam­bands Íslands í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Hún segir engar mál­efna­legar ástæður fyrir því að Efling verði um kyrrt innan Alþýðu­sam­bands­ins, ef sam­bandið heldur áfram á sömu braut og áður. Drífa Snædal, fyrrum for­seti ASÍ, sagði af sér emb­ætti fyrr í mán­uð­inum. Hún gaf það einnig...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins