„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tvær sögur af Þóri Sæmundssyni: „Hann vissi allan tímann að hann var að tala við barn“

Tvær sögur af Þóri Sæmundssyni: „Hann vissi allan tímann að hann var að tala við barn“
Þórir Sæmunds­son. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ég var 17 ára þegar hann byrj­aði að senda óvið­eig­andi skila­boð á Facebook,“ segir í frá­sögn ungrar konu sem lýsir þar reynslu sinni af sam­skiptum við Þóri Sæmunds­son, sem kom fram í við­tali í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í gær. Mannlíf fékk sög­una senda og er hún birt með góð­fús­legu leyfi kon­unnar.

Þær frá­sagnir sem hér á eftir fara eru ein­hliða og því birtar með fyr­ir­vara. Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir náð­ist ekki í Þóri Sæmunds­son við vinnslu frétt­ar­innar.

Konan segir frá því hvernig þau Þórir hafi á þessum tíma leikið saman í sýn­ingu. Þar var hann í aðal­hlut­verki en hún til­heyrði barna­hópi í leik­rit­inu og var, eins og áður sagði, enn barn­ung þegar sam­skipti þeirra hófust.

Hún segir frá því hvernig hún hafi seinna meir hitt hann á bar og farið heim með honum, þá orðin 18 ára gömul. Þau hafi í fram­hald­inu sofið saman.

„Þar sagði hann meðal ann­ars að ég væri svo ung og sak­laus.“

Hún lýsir því hvernig hann hafi seinna fal­ast eftir því við hana og aðra stúlku, þá 17 ára, að þær kæmu heim með honum og þau færu í tre­k­ant (threesome). Hann hafi reynt að selja hug­mynd­ina með því að segja stelp­unum að hann ætti mjög mikið af grasi.

Stuttu seinna hafi hún og tvær vin­konur hennar, þær allar á aldr­inum 17-18 ára, átt í Snapchat-sam­skiptum við Þóri, þar sem hún segir hann ýmist hafa sent myndir af typp­inu á sér eða beðið þær um að koma til sín í kyn­lífs­orgíu (foursome).

„Á þessum tíma var ég mjög ung og leit upp til eldri og reynd­ari manns sem naut virð­ingar í leik­húsi og sjón­varpi og var upp með mér að fá athygli frá honum og að hann vildi sofa hjá mér. En þegar ég lít til baka núna finnst mér þetta allt mjög ógeðs­legt og að hugsa til þess að ég hafi verið rétt skriðin yfir 17 ára aldur og varla komin með brjóst eða búin með kyn­þrosk­ann.“

„Einnig finnst mér vont að hugsa til stöð­unnar sem ég var í gagn­vart honum sér­stak­lega eftir þetta þar sem hann lék aðal­hlut­verk í leik­rit­inu en ég var partur af barna­hóp og hafði því ekki jafn mikið vægi í stóra sam­heng­inu fyrir utan að vera tölu­vert yngri.“

Sagan var í fyrsta sinn birt í lok­uðum Facebook-hópi árið 2017. Þá sagð­ist unga konan enn vera að átta sig á því að þetta hafi ekki verið í lagi, þótt hún hafi viljað sofa hjá honum á sínum tíma. Hún hafi hins­vegar ákveðið að birta sína sögu eftir að hafa séð umfjöllun fjöl­miðla um mál Þóris og upp­sögn hans frá Þjóð­leik­hús­inu á sínum tíma.

„Við getum ekki kennt óskil­greindum aldri um þennan „klaufa­skap“ hjá honum, í mínu til­felli vissi hann allan tím­ann að hann var að tala við barn,“ segir hún.

Aldrei á ævinni unnið með jafn óþægilegum leikara

Önnur frá­sögn sem Mannlíf hefur undir höndum, fjallar um reynslu konu af því að starfa með Þóri í leik­húsi og slæma fram­komu hans við sam­starfs­fólk. Þessi saga var líka birt í lok­uðum hópi árið 2017 og er, eins og sú fyrri, birt með leyfi við­kom­andi.

„Flott að hann sé að leita sér hjálpar og að vinna í sínum málum, en aldrei á ævinni hef ég unnið með jafn óþægi­legum leik­ara. Sem betur fer fékk ég ekki typpa­mynd, en fram­koman, skít­ur­inn, hrok­inn og við­bjóð­ur­inn sem við fengum þegar hann mætti inn í smink var gjör­sam­lega óbæri­legur.

Held að hver ein­asta stelpa sem ég þekki eigi ein­hverja skíta­sögu af honum. Mín er sú að hann ætl­aði að ganga í skrokk á mér í partýi einu sinni eftir að hann var búinn að grýta bjórnum sínum í gólfið, þar sem ég var búin að drulla yfir hann fyrir að haga sér við stelp­urnar eins og þær væru ein­hver bráð sem hann ætl­aði að kom­ast yfir.

Eftir að hann kall­aði sjálfan sig femínista, bað hann vin­sam­leg­ast að kalla sig það aldrei aftur þar sem konur væru bara leik­föng í hans augum, já eða þær sem ættu að þjón­usta hann. Þá var það nátt­úru­lega túlkað að ég væri að kalla hann nauð­gara.

Súrr­el­ís­kasta móment lífs míns. Batnandi mönnum er best að lifa, en sumum er því miður ekki við­bjarg­andi. Hér er ein af mínum sögum, out in the open. Þegjum ekki lengur yfir svona yfir­gangs­seggum sem kunna ekki að haga sér.“

Þórir Sæmunds­son í Kveik. Mynd/skjá­skot RÚV

Sakaður um að senda barnungum stúlkum nektarmyndir

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur, sem var á dag­skrá RÚV í gær­kvöldi, virð­ist ekki hafa farið fram­hjá mörgum og hefur umræðan í kjöl­farið verið hávær.

Í þætt­inum lýsti Þórir Sæmunds­son von­lausri stöðu sinni fjórum árum eftir að hafa verið sagt upp í Þjóð­leik­hús­inu í kjöl­far þess að kyn­ferð­is­leg mynda­send­ing hans komst í hámæli. Hann sé til dæmis búinn að vera meira eða minna atvinnu­laus allan þennan tíma.

Þórir hefur verið sak­aður um að hafa sent fimmtán ára stúlkum mynd af kyn­færum sínum í gegnum sam­skipta­mið­il­inn Snapchat. Í Kveik í gær­kvöldi sagð­ist Þórir ekki hafa vitað að um væri að ræða ein­stak­linga undir lög­aldri. Hann sagði að stúlk­urnar hefðu tjáð honum að þær væru átján ára. Eftir að hafa fengið myndir af kyn­færum hans segir hann þær hafa sagt að þær hafi „náð honum“.

Hann gekkst í þætt­inum við því að hafa sofið hjá mörgum konum og oft hagað sér ósæmi­lega. Hann vildi þó ekki kann­ast við að hafa áreitt eða átt í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum við stúlkur undir lög­aldri. Ekki nema þetta eina skipti þar sem hann var gabb­aður, að eigin sögn.

Þórir lýsti því að hann hefði verið í neyslu á tíma­bili og afar erf­iður í sam­skiptum. Hann sagði það meðal ann­ars víst að hann hefði gengið of nærri sam­starfs­konum sínum í Borg­ar­leik­hús­inu þegar hann lék í söng­leiknum Mary Poppins árið 2015.

„Þarna er ég ennþá í neyslu og er svo­lítið rugl­aður á því og er að vinna með mörgum ungum konum,“ sagði Þórir. Hann sagð­ist svo hafa fengið til­tal frá leik­stjóra sýn­ing­ar­innar eftir að ein þeirra kvart­aði yfir skila­boðum frá honum.

Þórir gekkst við því að um hefði verið að ræða óvið­eig­andi skila­boð, en ekki nekt­ar­myndir.

Þóra Arn­órs­dóttir sagði við Þóri í þætt­inum að ef hann væri að fela eitt­hvað eða ekki að segja satt og rétt frá myndi það tví­mæla­laust koma upp eftir sýn­ingu þátt­ar­ins. Sagði Þórir þá við hana að ef svo væri, væri það löngu komið fram í okkar litla sam­fé­lagi.

Ekki tókst að ná í Þóri Sæmunds­son við gerð þess­arar fréttar, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins