„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll Heiðar um spilakassa: „Byggðir upp á blekkingum til að hafa af þér eins mikið fé og hægt er“

Páll Heiðar um spilakassa: „Byggðir upp á blekkingum til að hafa af þér eins mikið fé og hægt er“

Páll Heiðar Jónsson er sál­fræð­ingur hjá SÁÁ og hann ritar áhuga­verðan pistil um spila­kassa og fíkn þeim tengdum:

„Hér eru mik­il­vægar upp­lýs­ingar um spila­kassa fyrir fólk sem þá notar: Spila­kassar eru hann­aðir af sér­fræð­ingum í mann­legri hegðun. Hönnun þeirra miðar að því að nota öll til­tæk ráð til að gera kass­ana eins ávana­bind­andi og ómót­stæði­lega og mann­leg þekk­ing á við­fangs­efn­inu gerir okkur kleift. Sá sem hannar mest ávana­bind­andi spila­kass­ann stendur sig best í sinni vinnu,“ skrifar Páll Heiðar og heldur áfram:

„Þeir eru byggðir upp á blekk­ingum og tál­sýnum til að hafa af þér eins mikið fé og er mögu­lega hægt. Það er til­gangur og virkni þeirra. Skjár kass­ans lýsir ekki innri virkni hans, skjár­inn er ekki að mynd­birta það sem ger­ist innra með honum. Skjárinn er blekk­ing. Þegar það virð­ist sem maður hafi „næstum unnið“ þá er það ekki svo heldur er mark­miðið að láta þér líða þannig að „þetta sé alveg að koma“. Þú hefur enga stjórn á útkom­unni, sama hvað þú gerir; sama hvort eða hvernig þú ýtir á skjá­inn eftir að leikur er haf­inn þá hefur það engin áhrif á útkom­una.“

Hann nefnir að „til­finn­ing um stjórnun er blekk­ing. Líkurnar á vinn­ingi eru ávallt þær sömu og þær eru þér ekki í hag. Tölvan reiknar ein­fald­lega tölu af handa­hófi með slembitölu­gjafa (e. random num­ber gener­ator) og það ákvarðar útkom­una í hvert sinn. Kassinn heldur ekki tölu um vinn­inga og tap, hann geymir ekki vinn­inga og er aldrei fullur eða tómur af pen­ingum. Því hver leikur í kass­anum er sjálf­stæður leikur, óháður fyrri leikjum; það heitir „Sjálf­stæði atburða“. Því fær­ist maður aldrei nær vinn­ingum, það er blekk­ing.“

Bætir við:

„Hann er samt hann­aður til að láta þig halda að þú getir með ein­hverju móti haft áhrif á útkom­una; það heitir „Tálsýnin um stjórn“. Fjár­hættu­spil eru ávallt sett upp út frá þessum tveimur reglum: Að hver leikur sé sjálf­stæður atburður, óháður fyrri leikjum og að þú hafir enga stjórn á útkom­unni. Annars væru það ekki fjár­hættu­spil og þá væri hægt að læra að græða á þeim. Þá væri skyn­sam­legt að stunda fjár­hættu­spil og naskur leik­maður gæti grætt á þeim með því að beita réttri aðferð. Það er hins vegar ekki svo, hönn­uðir spila­kass­anna sjá til þess.“

Páll Heiðar vill að lokum benda þeim sem vilja hætta að spila á vef­síð­una [email protected], eða síma­núm­erið 530-7600. Einnig að ef þú ert aðstand­andi ein­stak­lings með spila­vanda þá er um að gera að hafa sam­band á net­fangið [email protected], eða í áður­nefnt síma­númer, 530-7600, sem er einnig fyrir aðstand­endur yngri en 18 ára, og líka sál­fræði­þjón­usta fyrir börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Spilafíkn

KSÍ með hugann við veðmálafíkn: „Samfélagslegt vandamál“
InnlentSpilafíkn

KSÍ með hug­ann við veð­málafíkn: „Sam­fé­lags­legt vanda­mál“

Meira og meira verða Íslend­ingar varir við veð­mála­starf­semi á Íslandi en fyr­ir­tæki í brans­anum hafa á und­an­förnum árum sett aukið fé í að kynna starf­semi sína, sem er í mörgum til­fellum ólög­leg á Íslandi. Ísland er þó ekki eina landið sem stendur í þessum sporum en opnað hefur verið fyrir aukna veð­mála­starf­semi í mörgum löndum á sama tíma. Ekki eru...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins