„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gagnrýni Kolbrúnar á sniðgöngu og nafnbirtingar: „Öfgar – hann gæti allt eins kallað sig Ofstæki“

Gagnrýni Kolbrúnar á sniðgöngu og nafnbirtingar: „Öfgar – hann gæti allt eins kallað sig Ofstæki“
Kolbrún Berg­þórs­dóttir. Mynd / Skjáskot RÚV

„Hversu stjórn­laus umræðan er orðin þegar hægt er að benda á hvern sem er og saka hann um alls konar hluti og dæma við­kom­andi sekan vegna orðróms, með til­heyr­andi æru­missi og jafn­vel atvinnu­missi. Viljum við lifa í slíku sak­bend­ing­ar­þjóð­fé­lagi? Stærstur hluti þjóð­ar­innar vill það örugg­lega ekki og veit mæta­vel að stjórn­laus ref­sigleði er ekki ein­kenni á sið­uðu sam­fé­lagi.“

Þetta skrifar Kolbrún Berg­þórs­dóttir í pistli sínum í Frétta­blað­inu í dag. Þá segir hún að Metoo-bylt­ingin hafi verið þörf en nú séu eft­ir­köst hennar orðin alvar­leg eins og þekk­ist vel. Þá nefnir Kolbrún hópa sem hún segir sam­an­standa af bæði æstu og ref­siglöðu fólki, þá aðal­lega konum.

„Það er til marks um jafn­væg­is­leysi þessa fólks að einn hóp­ur­inn kallar sig Öfgar – hann gæti allt eins kallað sig Ofstæki. Þetta fólk vill að þeim karl­mönnum, sem það telur hafa brotið af sér gagn­vart konum, sé gert að búa við eilífa útskúfun. Þá skiptir engu þótt við­kom­andi hafi verið sýkn­aður fyrir dóm­stólum eða að mál við­kom­andi hafi aldrei farið fyrir dóm­stóla. Orðrómur nægir til að hóp­ur­inn stígi fram með ásak­anir og kveði upp sinn mis­kunn­ar­lausa dóm. Og hver sem leyfir sér að and­mæla þeim vinnu­brögðum er tal­inn vera sorp í augum dóm­stóls göt­unnar, stimpl­aður sem and­styggi­legur tals­maður ofbeld­is­menn­ingar og sagður þjást af alvar­legri ger­enda­með­virkni.“

Þá gagn­rýnir hún fjöl­miðla fyrir að taka þátt í æsingnum og bendir á að þeir mættu gæta hófs frekar en að taka þátt. Það kemur Kolbrúnu ekki á óvart að fólk þori ekki að hafa hátt sé það sam­mála.

„Því miður vilja ekki nógu margir segja þessi orð opin­ber­lega af ótta við að vera úthróp­aðir og fá á sig þann stimpil að styðja ofbeld­is­menn. Skipta óp æsinga­fólks­ins virki­lega svo miklu máli að rétt sé að skrúfa fyrir skoðun sína og sann­fær­ingu af ótta við við­brögð hóps­ins? Nei,“ skrifar Kolbrún að lokum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins