„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Álit landlæknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánarorsök“

Álit landlæknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánarorsök“
Alma Möller veitti Dr. Skúla nýverið starfs­leyfi til næstu 12 mán­uða

Yfir­læknir sem lög­reglan er að rann­saka í tengslum við dauð­daga að minnsta kosti eins sjúk­lings í hans umsjón, getur á næstu dögum sóst eftir var­an­legu starfs­leyfi frá Land­lækni Íslands. Tíma­bundið leyfi sem Land­læknir veitti honum í haust, rennur út 12. nóv­em­ber.

Yfir­lækn­ir­inn, Skúli Tómas Gunn­laugs­son, hefur síðan málið kom upp, starfað á Land­spít­al­anum, til að byrja með „undir eft­ir­liti“. Hafa mál að minnsta kosti sex sjúk­linga í umsjón STG, verið rann­sökuð af lög­reglu en hann var þá yfir­læknir HSS. Alvar­leg­ustu brotin snúa að meintri þátt­töku hans í dauða að minnsta kosti eins sjúk­lings, Dönu Jóhanns­dóttur.

Fjöl­skylda Dönu bað um álit Land­læknis á mál­inu en álits­gerð­ina fengu þau í hend­urnar 18. febr­úar á þessu ári. Í álits­gerð­inni, sem Mannlíf hefur undir höndum, kemur skýrt fram að Land­læknir líti málið grafal­var­legum augum.

Til að mynda eru við­brögð HSS við upp­haf­legri kvörtun vegna and­láts Dönu, harð­lega gagn­rýnd.

„Það er álit land­læknis að við­brögð HSS við upp­haf­legri kvörtun þar sem fram koma afar alvar­legar ávirð­ingar og spurn­ingar um meint frá­vik og brot í veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu, séu með öllu ófull­nægj­andi og ámæl­is­verð. Með þessu hafi við­kom­andi stofnun, sem ábyrgð ber á að svara fram kominni kvörtun, sýnt bæði kvart­anda og emb­ætti land­læknis, sem er eft­ir­lits­að­ili með heil­brigð­is­þjón­ustu, óvirð­ingu.“

Þá er einnig fjallað um sjúk­dóms­grein­ingar og van­rækslu í álit­inu.

„Land­læknir er sam­mála mati sér­fróðs umsagn­ar­að­ila og álítur að um fag­lega van­rækslu og mis­tök hafi verið að ræða í veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu til handa DJ á HSS þar sem end­ur­teknum, alvar­legum, bráðum sjúk­dóms­ein­kennum var ýmist gef­inn eng­inn eða ófull­nægj­andi gaumur þegar hún kvart­aði end­ur­tekið til HSS á síð­ustu árum ævinnar. Læknar HSS hafi enn­fremur látið hjá líða að grípa til við­eig­andi rann­sókna og/eða leita sam­ráðs við sér­fræð­inga utan stofn­un­ar­innar um grein­ingu á end­ur­teknum og alvar­legum köstum“

Aukreitis er komið inn á grein­ingu og með­ferð nær­inga­skorts Dönu.

„Það er álit land­læknis að læknar HSS hafi sýnt af sér van­rækslu og hirðu­leysi gagn­vart aug­ljósum nær­ing­ar­vanda­málum og stað­festum bæti­efna­skorti sem hafa mögu­lega átt mik­il­vægan þátt í versn­andi ein­kennum og heilsu­far­s­vanda­málum.“

Í álit­inu er einnig fjallað um van­rækslu á færslu sjúkra­skrá.

„Það er álit land­læknis að með van­skrán­ingu sjúkra­skrár, skorti á klínískri skoðun, rann­sóknum og full­nægj­andi með­ferð og eft­ir­fylgd með DJ, hafi STG sýnt af sér skort á fag­legum metn­aði og hirðu­leysi í starfi og þar með van­rækt lækn­is­skyldur sínar með alvar­legum og end­ur­teknum hætti þegar DJ var skjól­stæð­ingur HSS á hans ábyrgð árið 2019.
Land­læknir álítur enn­fremur að í van­rækslu á færslu lög­boð­inna atriða í sjúkra­skrá felist brot á ákvæðum laga um sjúkra­skrá nr. 55/2009.“

Land­læknir gefur einnig álit sitt á fram­komu dr. Skúla gagn­vart aðstand­endum Dönu.

„Það er álit land­læknis að STG hafi ekki aðeins komið fram með ótil­hlýði­legum hætti við aðstand­endur skjól­stæð­ings síns meðan á með­ferð stóð, svo sem lýst er í kvörtun­inni og fram kemur í sjúkra­gögnum, heldur hafi hann einnig sýnt af sér ótil­hlýði­lega afstöðu og ummæli í garð aðstand­enda í andsvörum sínum í þessu máli.“

Og Land­læknir fjallar einnig um með­ferða­tak­mörkun en telur hann dr. Skúla ekki hafa staðið við ábyrgð sína gagn­vart sjúk­lingi sínum.

„Það er álit land­læknis að STG yfir­læknir hafi ekki staðið við sína ábyrgð og skyldur við með­ferð DJ og í stað­inn leit­ast við að varpa ábyrgð sinni á sjúk­ling­inn. 

Það er álit land­læknis að STG hafi mælt fyrir um og hafið lífsloka­með­ferð án þess að stað­festa, til­greina ástæðu eða leiða full­nægj­andi líkum að því að dauð­inn hafi verið yfir­vof­andi. Enn­fremur án við­eig­andi sam­ráðs við aðstand­endur og sam­starfs­fólk. Skýr­ingar hans eft­irá á þá leið að fyrir honum hafi vakað að beita ein­kenna­með­ferð eða líkn­ar­með­ferð eru í engu sam­ræmi við gögn og máls­at­vik og fá því ekki stað­ist.“

Einnig gefur Land­læknir álit sitt á með­ferð sára, sýk­ingar og verkja­með­ferð. Segir þar m.a.:

„Það er álit land­læknis að ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið með­verk­andi eða mögu­lega aðal dán­ar­or­sök.“

Í loka­orðum sínum fjallar land­læknir um ótrú­verðug and­mæli STG við því að hann hafi beitt brota­þola lífsloka­með­ferð. Í áliti land­læknis segir:

„Andmæli og útskýr­ingar STG á þá leið að hann hafi ekki áformað eða beitt lífsloka­með­ferð (LLM) heldur ein­kenna­með­ferð eða líkn­ar­með­ferð (LM) og að um mis­skiln­ing sé að ræða fá ekki stuðn­ing í gögnum. Land­læknir fellst ekki á þá skýr­ingu að tækni­legt atriði hafi ráðið skrán­ingu LLM í stað LM. Þvert á móti liggur fyrir að hug­takið lífsloka­með­ferð var skráð því nafni í sjúkra­skrá við inn­lögn og í vott­orði sem STG skrif­aði 28.9.2019. Þá var með­ferð DJ frá fyrsta degi síð­ustu leg­unnar í eðli sínu sam­svar­andi lífsloka­með­ferð að eðli og fram­kvæmd. Vissu­lega talar STG við aðstand­endur um að DJ bíði vist­unar á hjúkr­un­ar­heim­ili og hafi verið vist­un­ar­metin í fyrri legu, sem er rétt.
Vist­un­ar­mat var sam­þykkt 9.7.2019 skv. áritun á skjöl þar að lút­andi en ekk­ert er að finna í gögnum sem styður að reynt hafi verið að þrýsta á um vistun eða finna leiðir til þess að bæta lík­am­legt eða and­legt ástand hennar og und­ir­búa hana fyrir lang­tíma­vistun á hjúkr­un­ar­heim­ili. Þvert á móti virð­ist áhersla með­ferðar fyrst og fremst hafa verið á að bæla og slæva og hvers kyns eft­ir­liti með ástandi hennar eða lífs­uppi­hald­andi með­ferð hætt. Þetta hafði þær afleið­ingar að mati land­læknis að í ell­efu vikna langri legu hrak­aði DJ; hún var með legu­sár, nær­ing­ar­skort og sýk­ingar allt fram til and­láts­ins, sem verður að telja lík­legt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar með­ferðar sem hún hlaut.
“

Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða ein­angruð mis­tök heldur virð­ist nán­ast allt hafa verið gert vit­laust sem mögu­legt var við grein­ingu, með­ferð og umönnun. Í nið­ur­stöðukafla land­læknis segir:

„Embættið telur að ekki hafi aðeins verið um að ræða mis­brest á almennri fag­mennsku við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu til DJ, heldur hafi í ákveðnum til­vikum einnig verið um að ræða alvar­lega van­rækslu og mis­tök STG læknis, sem bar meg­in­á­byrgð á lækn­is­fræði­legri með­ferð DJ.“

Þrátt fyrir þá bláköldu fall­ein­kunn sem dr. Skúli Tómas fær hjá Land­lækni Íslands, veitti téður Land­læknir honum tíma­bundið starfs­leyfi þegar hann sótt­ist eftir því en hann hefur unnið eins og áður segir „undir eft­ir­liti“ á Land­spít­al­anum síðan starfs­leyfið var veitt, í það minnsta til að byrja með. Spenn­andi verður að sjá hvort hann fái starfs­leyfið sitt aftur þegar hið tíma­bundna rennur út eftir viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins