„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dómur í máli Jóhannesar stjörnunuddara þyngdur: „Aftakan á skjólstæðingi mínum hefur farið fram“

Dómur í máli Jóhannesar stjörnunuddara þyngdur: „Aftakan á skjólstæðingi mínum hefur farið fram“

Fang­els­is­dómur yfir Jóhann­esi Tryggva Svein­björns­syni með­höndl­ara var þyngdur um eitt ár í Lands­rétti í dag og er hann nú dæmdur í sex ára fang­elsi fyrir að nauðga fjórum konum á nudd­stofu sinni. Hann hafði verið dæmdur í fimm ára fang­elsi í hér­aði í byrjun árs.

Brotin voru framin í skjóli starfs hans sem nudd­ari á tíu ára tíma­bili, frá árinu 2007 til 2017

Rannsókn máls­ins hófst fyrir rúmum þremur árum en í októ­ber 2018 ræddi Frétta­blaðið við rétt­ar­gæslu­mann kvenna sem lagt höfðu fram kæru á hendur mann­inum.

Með­höndlað stoð­kerf­is­vanda í gegnum leggöng 
Annan tug kvenna kærðu mann­inn til lög­reglu fyrir kyn­ferð­is­brota, sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins. Fimm af þeim málum hafa leitt til ákæru og hefur mað­ur­inn nú verið dæmdur fyrir fjögur þeirra. Aðal­með­ferð í fimmta mál­inu hefur enn ekki farið fram í hér­aði en fyrir liggur að með­ferð þess máls verður opin í Hér­aðs­dómi Reykja­ness, sem er óvenju­legt í kyn­ferð­is­brota­máli.

Í skýrslum nokk­urra brota­þola í mál­inu kom fram að mað­ur­inn hafi í ein­hverjum til­vikum með­höndlað stoð­kerf­is­vanda í gegnum leggöng þeirra, óháð því á hvaða svæðum lík­am­ans þær kenndu sér meins.

Meðan á rann­sókn lög­reglu stóð voru dóm­kvaddir tveir sjúkra­þjálf­arar til að meta hvort og þá að hvaða marki hátt­semi hans sam­ræm­ist við­ur­kenndum aðferðum í nudd­fræðum. Matsgerð þessi var meðal þess sem helst var deilt um í mál­inu, verj­andi Jóhann­esar mót­mælti mats­gerð­inni meðal ann­ars á þeim grund­velli að skjól­stæð­ingur hans væri ekki sjúkra­nudd­ari og hafi ekki selt þjón­ustu sína sem sjúkra­nudd.

Aftakan á skjól­stæð­ingi mínum hefur þegar farið fram, enda fjöl­miðlar ítrekað upp­lýstir um árangur af þess­ari smölun á meintum fórn­ar­lömbum hans

Verjandi Jóhann­esar gagn­rýndi einnig aðferðir þess rétt­ar­gæslu­manns sem upp­haf­lega gætti hags­muna brota­þola í mál­inu. Fór svo að skipun hennar var aft­ur­kölluð með úrskurði hér­aðs­dóms eftir að verj­and­inn kvaðst þurfa að leiða hana sem vitni í mál­inu.

Í umfjöllum Frétta­blaðs­ins um málið í fyrra sagð­ist verj­and­inn, Stein­bergur Finn­boga­son ekki mega tjá sig um það sem ger­ist í dóm­sal í mál­inu, enda þing­haldið lokað.

Stein­bergur sagði þó aðspurður að lög­fræði­legur til­bún­ingur máls­ins eigi sér aðdrag­anda sem stand­ist tæp­ast skoðun og hann hygg­ist draga það fram í vitna­leiðslum. Hann sagði vís­bend­ingar um að lög­mað­ur­inn hafi sjálfur staðið að baki aug­lýs­ingar eftir skjól­stæð­ingum í fyr­ir­hug­aða hóp­mál­sókn gegn ákærða, undir dul­nefni, á sam­fé­lags­miðlum. „Aftakan á skjól­stæð­ingi mínum hefur þegar farið fram, enda fjöl­miðlar ítrekað upp­lýstir um árangur af þess­ari smölun á meintum fórn­ar­lömbum hans,“ sagði Stein­bergur.

Þá var skipun ann­ars rétt­ar­gæslu­manns í mál­inu einnig aft­ur­kölluð með úrskurði dóm­ara hér­aðs­dóms í gær, eftir að í ljós kom að um sam­býl­is­mann Sigrúnar er að ræða. Þeim þætti úrskurð­ar­ins var þó snúið við í Lands­rétti.

Enn er eitt mál gegn Jóhann­esi ódæmt og mun aðal­með­ferð í máli hans fara fram fyrir opnum tjöldum í Hér­aðs­dómi Reykja­ness á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins