„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir Reyni ganga of langt: „Lætur nafngreina mig fyrir texta sem þú ert sjálfur búinn að búa til“

Segir Reyni ganga of langt: „Lætur nafngreina mig fyrir texta sem þú ert sjálfur búinn að búa til“

Eins og Mannlíf greindi frá birti Reynir Bergmann, áhrifa­valdur og annar eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Vefj­unnar, pistil á Facebook síðu sinni nú fyrr í vik­unni. Þar heldur hann því fram að það hafi verið reynt með skipu­lögðum hætti að fá konur sem hann hefur átt sam­farir við til að saka hann um kyn­ferð­is­of­beldi.

Máli sínu til stuðn­ings deildi hann skjá­skotum af meintum sam­skiptum sínum við gamla vin­konu sína sem hann hefur átt sam­ræði við og einnig skjá­skotum sem vin­konan á að hafa haft við ónefnda blaða­konu.

Sjá einnig: Hraunað yfir mynd­band Reynis: „Á erfitt með að skilja hvernig faðir dætra getur talað svona“

Eftir að Reynir birti færsl­una hafa fjöl­margir haldið því fram að hann hafi svið­sett þessi sam­skipti, þar sem nokkur lík­indi eru á rit­hætti þess­ara þriggja aðila; Reynis, vin­kon­unnar og blaða­manns.
Reynir þver­tekur fyrir að svo sé og segir femínista hafa misst sjónar á því sem skipti máli.

Hin ónefnda blaða­kona reynd­ist vera Svava Kristín Svein­björns­dóttir fyrrum blaða­maður Mannlífs og hefur hún svarað Reyni í pistli á Facebook, eftir að nafn hennar birt­ist á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far skrifa Reynis.
Svava segir það vissu­lega rétt að hún hafi sent vin­konu Reynis skila­boð, en þau hafi ekki hljó­mað eins og Reynir vill meina. Svava birtir með skjá­skot af sam­skiptum sínum við vin­konu Reynis ásamt eft­ir­far­andi orðum:

„Reynir Bergmann þarna gengur þú of langt ! Lætur nafn­greina mig fyrir texta sem þú ert sjálfur búinn að búa til. Hér er rétti text­inn kall­inn minn og hættu að þykj­ast vera fórn­ar­lamb! Ég á líka 2 upp­tekin sím­töl með sam­þykki, á þig frá sama fórn­ar­lambi.
Þú skalt gjöra svo vel að láta taka þetta úr dreif­ingu eins og skot!
Endilega deilið því mað­ur­inn er að hafa mig fyrir rangri sök og reyna að rústa mínu mann­orði.
Hér að neðan má sjá fyrst ALVÖRU skila­boðin og svo þau sem Reynir Bergmann er að ljúga upp á mig, hent­ugur bútur úr mínum skila­boðum svo eh sem kemur ALLS EKKI frá mér! Ekki svið­sett my ass.“

Sjá einnig: Sólveig sár yfir Metoo-árásum á Vefjuna: „Þetta umtal er bara ÚT Í HÖTT!“

Nú hefur sam­býl­is­kona Reynis og hinn eig­andi Vefj­unnar, Sólveig Ýr Sig­ur­jóns­dóttir, skorist í leik­inn og skrifar athuga­semd við færslu Svövu. Þar heldur hún því fram að Svava hafi verið í sam­skiptum við fleiri vin­konur Reynis og seg­ist ætla koma með „sprengj­una og sann­leik­ann í dag,“ eins og hún orðar það.

Færslu Svövu má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins