„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Logi berst fyrir hönd katta á Akureyri -„Mér er ekki sama þegar fólki dettur svona vitleysa í hug“

Logi berst fyrir hönd katta á Akureyri -„Mér er ekki sama þegar fólki dettur svona vitleysa í hug“
Logi Bergmann

Á dög­unum sam­þykkti meiri­hluti bæj­ar­stjórnar á Akureyri að banna lausa­göngu katta frá 1. jan­úar 2025.

Hefur þessi ákvörðun vakið mikla athygli og lík­leg­ast ekki farið fram hjá mörgum. Sitt sýn­ist hverjum um þessa sam­þykkt bæj­ar­yf­ir­valda og hafa ófáir tjáð sig um málið.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn, Logi Bergmann, skrif­aði pistil er birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hann lýsir yfir óánægju með þessa ákvörðun.

 „Mér er ekki sama þegar fólki dettur svona vit­leysa í hug. Í fyrsta lagi er ég katta­vinur og tel mig skilja þessi dýr og í öðru lagi er ég tengda­sonur Akur­eyrar og hef tekið það hlut­verk alvar­lega. Það er reyndar óvíst að ég end­ist lengi sem slíkur ef þetta ágæta fólk ætlar að taka upp á því að elta Hús­vík­inga í þess­ari vit­leysu,“ skrifar Logi í pistli sínum.

Segist hann ekki vera neinn David Attenborough, en seg­ist þó vita að kettir séu „stór­kost­lega merki­leg dýr,“ eins og hann kemst sjálfur að orði.

„Þeir eru sjálf­stæðir, ein­stakir og skemmti­legir. Það hefur verið sýnt fram á með fjölda rann­sókna að gælu­dýr styrkja ónæm­is­kerfi. Ekki síst kettir sem fá að fara út,“ skrifar Logi og heldur áfram. „Þeir eru frjálsir til að tala við eig­endur sína þegar þeir vilja, þeir eru frjálsir til að leggja sig þar sem þeim hentar og þeir eiga að vera frjálsir til að fara út þegar þeir vilja. Þetta ættu allir að skilja en svo óheppi­lega vill til að sjö af ell­efu bæj­ar­full­trúum Akur­eyrar virð­ast ekki hafa gert sér grein fyrir því.“

Logi við­ur­kennir að kettir séu vissu­lega rán­dýr og að þeir eigi það til að veiða fugla. „Það er leið­in­legt og stundum pínu sorg­legt en svona er nátt­úran. Þetta er ekki ger­enda­með­virkni. Þetta er eðli þeirra en það er hægt að gera þeim erf­ið­ara fyrir með bjöllum og lit­ríkum kraga.“

Þá tengir Logi hið umdeilda mál, stað­setn­ingu flug­vall­ar­ins, við katta­málið mikla og segir stað­setn­ingu flug­vall­ar­ins í Reykja­vík valda dauða fugla, þar sem hann standi við mikið varp­land, það er Vatns­mýr­ina. „Það hefur nefni­lega lengi verið eitt helsta bar­áttu­mál Akur­eyr­inga að flug­völl­ur­inn í Reykja­vík þurfi að vera límdur við mið­bæ­inn.“

Endar Logi pistil sinn á því að bjóða Akur­eyr­ingum að gera sam­komu­lag. „Við Reyk­vík­ingar skulum hafa þennan flug­völl sem þið viljið endi­lega hafa í mið­bænum okkar, gegn því að þið leyfið köttum að hafa sína henti­semi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins