„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Móðir Myrru varð bráðkvödd; „Við heyrðum dynk og komum að henni“

Móðir Myrru varð bráðkvödd; „Við heyrðum dynk og komum að henni“
Myrra Ösp Gísla­dóttir

„Ég hef í raun­inni aldrei unnið úr þessu. Í hvert skipti sem ég hef sótt mér hjálp hef ég verið komin á það slæman stað að það sem skiptir þá mestu máli er að koma mér á góðan stað,“ segir Myrra Ösp Gísla­dóttir um móð­ur­miss­inn. Myrra var 16 ára gömul þegar móðir hennar varð bráð­kvödd.

„Það eru að verða 20 ár síðan mamma féll frá en þetta er ennþá mjög hrátt og ég er ekki búin að vinna úr þessu. Mamma var að taka sig til fyrir vinnu og féll niður og var dáin. Ég og pabbi vorum heima; við heyrðum dynk og komum að henni,“ segir Myrra Ösp.

Myrra seg­ist hafa tekið með­vit­aða ákvörðun eftir frá­fall móður sinnar um að gleyma því að hún hefði dáið. „Það tókst nátt­úr­lega ekki og í stað­inn gleymdi ég alveg ótrú­lega mörgu. Ég upp­lifi eins og ég hafi þurrkað mikið út og líka margt sem gerð­ist eftir að hún dó. Minnið er ekki gott. Ég setti upp þykkan varn­ar­skjöld eftir að mamma dó. Ég hleypi ekk­ert mörgum að mér; mað­ur­inn minn hefur meira að segja þurft að berj­ast fyrir því að ég hleypi honum að. Ég varð ógeðs­lega reið,“ segir Myrra Ösp með áherslu, „yfir að mamma skyldi hafa yfir­gefið mig; eins og þetta hefði verið henni að kenna. Fyrst fannst mér ég vera reið út í heim­inn en fyrir nokkrum árum upp­lifði ég ljósa­peru­mó­ment og fatt­aði að ég væri reið út í mömmu og þá náði ég að vinna örlítið í þessu. En ég var reið í mörg ár.“

Myrra Ösp segir að það skiptir engu máli hvað fólk sé gam­alt; það komi alltaf stundir þegar það þarf mömmu sína. „Mamma var eng­ill. Það var alltaf ótrú­lega bjart yfir henni. Hún var ótrú­lega hress og alltaf að passa upp á að öllum öðrum liði vel. Hún var hrókur alls fagn­aðar. Allir sem minn­ast hennar muna hvað hún var dásam­leg.“

Myrra Ösp Gísla­dóttir er í hjart­næmu Helg­ar­við­tali Mannlífs, þar sem hún ræðir meðal ann­ars móð­ur­miss­inn og veik­indi sonar síns. Lesa má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu