„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leikskólakennari biður börnin á leikskólanum afsökunar „Hvar er virðingin fyrir börnunum okkar?“

Leikskólakennari biður börnin á leikskólanum afsökunar „Hvar er virðingin fyrir börnunum okkar?“

Verka­lýðs­fé­lagið Hlíf birti á vef sínum bréf sem félag­inu barst frá leik­skóla­kenn­ara í Hafn­ar­firði, þar sem kenn­ar­inn biður börn og for­eldra afsök­unar á því að geta ekki sinnt starfi sínu nógu vel vegna skorts á starfs­fólki á leik­skól­anum.

Í bréf­inu skrifar leik­skóla­kenn­ar­inn að starfs­fólk skól­ans sé að slig­ast undan álagi vegna mann­eklu, sem er vegna veik­inda, fólk sé að brenna út, vinnu­tíma­stytt­ingar og fjar­veru leik­skóla­kenn­ara við umönnun og kennslu þar sem ekki kemur starfs­fólk til að leysa af vegna und­ir­bún­ings­tíma þeirra.
Þá segir hann of mörg börn vera á hvern starfs­mann og of lítið rými fyrir börn og starfs­fólk og líkir því við síld í tunnu.

Þess vegna vil ég biðja börnin á leik­skól­anum afsök­unar.
Mig langar að biðja barnið afsök­unar sem ég gat ekki tekið í fangið og huggað eftir að það var bitið í hand­legg­inn, vegna þess að ég þurfti að stoppa ger­and­ann svo fleiri börn yrðu ekki bitin.
Ég vil biðja litla dreng­inn afsök­unar sem ég gat ekki leyft að fara inn þegar honum var kalt – vegna þess að það var eng­inn starfs­maður inni. (Ég gat sett á hann nýja vett­linga og knúsað hann).
Eins vil ég biðja barnið afsök­unar sem ég þurfti að klæða í drullu­skítug og rök föt á mánu­dags­morgni, ég hafði ekki fleiri föt til að lána.
Ég vil biðja litlu börnin afsök­unar á að flýta mér að skipta á bleyjum og klæða þau í úti­föt. Það er ekki tími til að spjalla eða setja orð á athafnir þar sem það bíða grát­andi börn eftir þjón­ustu, skrifar leik­skóla­kenn­ar­inn.

Hann heldur afsök­un­ar­beiðn­inni áfram og biður hóp­inn sinn afsök­unar á að geta ekki klárað lestrar- og vinnu­stundir vegna eins nem­anda sem tekur alla athygl­ina og þyrfti á stuðn­ingi að halda sem ekki er til staðar.

Að lokum vil ég biðja for­eldra afsök­unar á að hafa lít­inn tíma í spjall í lok dags, vegna fjölda barna í langri vistun og fárra starfs­manna seinni part­inn.
Hvar er virð­ingin fyrir börn­unum okkar? Hún sést ekki í launa­umslag­inu eða í vinnu­að­stöðu okkar. Það er talað um á tylli­dögum að við kenn­arar sinnum merki­leg­asta starf­inu. En afsakið – það eru bara fal­leg orð á blaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins