„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íbúar miðborgarinnar langþreyttir á ástandinu -„öllu stolið steini léttara“

Íbúar miðborgarinnar langþreyttir á ástandinu -„öllu stolið steini léttara“
Mið­borgin Mynd: Rúv

Íbúar mið­borg­ar­innar eru orðnir lang­þreyttir á þeirri þjófaöldu sem þar gengur yfir ef marka má skrif í Facebook hóp hverf­is­ins og vilja grípa til sinna ráða.

„Það hefur lík­lega ekki farið fram hjá neinum sú fárán­lega þjófa-alda sem gengur í mið­borg­inni, öllu stolið steini létt­ara, allt hlaupa­hjólum og stærri tækjum upp í kerrum og barna­vögnum, brot­ist inn í bíla og vaðið um.

Flest vitum við að þessi þjófa­bylgja er í grunn­inn byggð á heil­brigð­is­vanda, við íbúar höfum sam­band við lög­reglu sem getur ekk­ert gert, eða gerir ekk­ert, ég held að það séu marg­vís­legar ástæður fyrir því,“ skrifar Helga nokkur íbúi hverf­is­ins og heldur áfram.

„Ég held líka að flest okkar geti verið sam­mála um það að það er hvim­leitt að tala illa um lög­regl­una, kalla hana aum­ingja og tala hana niður, það er mun betra að sjá fyrir sér hvernig við viljum hafa hana, stefna að því og hafa það að sam­eig­in­legu mark­miði, lög­reglan er mik­il­vægt þjón­ustu­starf í nær-umhverfi okkar og á að vera það.“

Segir Helga ástandið vera orðið algjör­lega ólíð­andi, þjófar vaði um og taki það sem þeim sýn­ist og það haldi áfram á meðan þýfið er gjald­mið­ill í und­ir­heimunum fyrir næsta skammt, „að því leyt­inu er þetta heil­brigð­is­mál,“ skrifar hún.

Stingur Helga upp á að hald­inn verði fundur, jafn­vel fund­ar­röð, með íbúum mið­borg­ar­innar, þar sem þessi mál séu rædd og fólk geti sagt frá reynslu sinni af þjófn­aði og reynslu af lög­regl­unni.

„Síðan væri hægt að halda áfram með að búa til erindi til lög­regl­unnar, skapa þar sam­tal svo lög­reglan geti sagt frá tak­mörk­unum sínum upp­hátt í þessum málum og þaðan er hægt að skoða hvað við íbúar getum gert, hugs­an­lega í sam­starfi við yfir­völd.“

Vel er tekið í þessa hug­mynd Helgu og því ljóst að margir þrá úrbætur á núver­andi ástandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins