„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón Baldvin saklaus – Sýknaður í „Rassastrokumálinu“

Jón Baldvin saklaus – Sýknaður í „Rassastrokumálinu“
Jón Baldvin Hanni­bals­son

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, var í morgun sýkn­aður í því sem hann sjálfur hefur kallað „Rassa­stroku­málið“. Hér­aðs­dómur hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Jón Baldvin hafi ekki beitt Carmen Jóhanns­dóttur kyn­ferð­is­legri áreitni með því að strjúka henni „utan klæða upp og niður eftir rassi.“

Brotin sem Jón Baldvin var ákærður fyrir áttu sér stað á Spáni en nú hefur ráð­herr­ann fyrr­ver­andi verið sýkn­aður í mál­inu. Óljóst er hvort ákæru­valdið komi til með að áfrýja mál­inu á næsta dóm­stig.

Jón Baldvin hefur verið sak­aður um fjöl­mörg kyn­ferð­is­brot, yfir margra ára tíma­bil. Fjöl­margar konur hafa deilt sögum sínum af fyrrum ráð­herr­anum. Sögurnar eru bæði gamlar og nýjar. Elstu eru frá 13 til 14 ára nem­endum Jóns er hann kenndi við Haga­skóla á sjö­una ára­tugnum.

Fyrr á árinu hvatti Jón Baldvin meðal ann­ars íslensku þjóð­ina að rísa upp gegn Metoo bylt­ing­unni, en kom það fram í aðsendri grein hans í Frétta­blað­inu. Þá sak­aði hann konur um að hafa hreint og beint logið í grein­inni.

Nýlega sendi Jón svo aðra grein þar sem hann fjall­aði ítar­lega um mál Carmenar gegn honum en þar kall­aði hann málið Leikhús fárán­leik­ans. Hér fyrir neðan má sjá full­yrð­ingar hans um ásak­an­irnar á hendur sér sem leiddu til sýkni­dóms fyrir hér­aðs­dómi í gær:

Í leik­húsi fárán­leik­ans: : Stað­reyndir og stað­leysur um rass­strokur og réttar­hald

Þeim sem fylgj­ast með póli­tísku arga­þrasi, t.d. á Alþingi Íslend­inga, lærist fljótt, að til­gangur ræðu­manna er einatt ekki að skýra mál, heldur flækja; ekki að greina aðal­at­riði frá auka­at­riðum, heldur að drepa málum á dreif. Til­gang­ur­inn er iðu­lega að afvega­leiða áheyrand­ann fremur en að upp­lýsa hann. Eina ráðið er að forð­ast sparða­tín­ing­inn og ein­beita sér að aðal­at­riðum. Að greina kjarn­ann frá hism­inu.

Þessi reynsla leit­aði á hug­ann meðan ég var að lesa skýrslur, hlýða á vitna­leiðslur og hlusta á mál­flutn­ing í „rass­stroku­mál­inu“, eins og almenn­ingur hefur upp­nefnt það.Papp­írs­stafl­arnir hlað­ast upp. Hvílík sólund á pappír, tíma og fjár­munum skatt­borg­ara.

Til upp­rifj­unar ber að nefna helstu per­sónur og leik­endur. Gest­gjaf­arnir (við Bryndís), gest­irnir (Laufey Ósk og Carmen Jósefa). Og ekki má gleyma hand­höfum ákæru­valds­ins (vara­sak­sókn­arar: Anna Barbara Andra­dóttir, Dröfn Kjærne­sted, Kolbrún Bene­dikts­dóttir) og full­trúi lög­reglu, sem stýrði yfir­heyrslum, Rannveig Ein­ars­dóttir. Það er við hæfi, að eini karl­mað­ur­inn, sem kemur þarna við sögu, er í hlut­verki sak­born­ings! Alla vega fer ekki mikið fyrir karla­veld­inu þarna.

Rann­sókn­ar­spurn­ingin er ein­föld: Snerti (sak­born­ingur) rass eða ekki? Sak­born­ingur (ég) segi nei, kær­and­inn segir jú- víst. Full­yrð­ing gegn full­yrð­ingu. Voru vitni á staðnum? Já, en þeim ber ekki saman. Þá snýst málið um að kanna trú­verð­ug­leik vitna.

Kjarninn og hismið.

Tvö vitni styðja fram­burð sak­born­ings. Þeim ber saman um aðal­at­riði: sæta­skipan við veislu­borð og sjón­mál þeirra yfir allt sem gerð­ist, á innan við mín­útu, í upp­hafi borð­halds, á heim­ili okkar Bryn­dísar í Salobrena í Andalúsíu. Ekkert hefði getað farið fram­hjá vitnum. Og ekk­ert sak­næmt gerð­ist þar, að þeirra sögn. Reyndar hefði ekk­ert slíkt getað gerst sam­kvæmt bæði vett­vangs­lýs­ingu kær­anda og aðal­vitnis.

Ákæru­valdið leyfir sér að tor­tryggja fram­burð gest­gjafans (Bryn­dísar) með vísan til þess, að hún er eig­in­kona sak­born­ings. En ákæ­ur­valdið gerir engar athuga­semdir við, að kær­andi og eina vitnið, sem var á staðnum og styður fram­burð þess, eru mæðgur. Hvað þá heldur, að þrjú auka­vitni voru kölluð til,þ.á.m. systir kær­anda og fyrr­ver­andi sam­býl­is­maður.Þau eiga það líka sam­eig­in­legt að hafa verið víðs­fjarri vett­vangi og geta þ.a.l. ekki borið vitni um eitt eða neitt, sem þar gerð­ist. (Til­kvaðn­ing auka­vitna er að sögn heimil m.a. í nauðg­un­ar­málum, þar sem vitnum verður yfir­leitt ekki við­komið – en enn sem komið er hefur eng­inn lýst þessu borð­haldi sem nauðgun).

Þá er eftir eitt vitni, sem af hreinni til­viljun var við­stödd borð­haldið og eng­inn getur bendlað við vensl eða eig­in­hags­muni af nokkru tagi. Hún er þ.a. l. STJÖRNUVITNI í mál­inu. Hugrún Auður Jóns­dóttir heitir hún og eið­svar­inn vitn­is­burður hennar hljóðar svo:

„Ég und­ir­rituð (nafn og kennitala) stað­festi hér með, að ég var gestur við borð­hald á heim­ili Bryn­dísar og Jóns Baldvins í Salobrena, laugrdag­inn 16. Júní, 2018. Þegar sest var að borðum, sat Jón Baldvin mér á vinstri hönd. Ég sá því allt sem fram fór við borð­haldið. Ásakanir um, að Jón Baldvin hafi áreitt gest­kom­andi konu við upp­haf borð­halds, eru HREINN TILBÚNINGUR OG TÓMT RUGL. Slíkt hefði ekki getað farið fram hjá mér. Þetta stað­festi ég með und­ir­skrift minni“.

Svo mörg voru þau orð. Hér þarf ekki frekar vitn­anna við. Hvers vegna var mál­inu ekki vísað frá þá þegar?

Líkamlega ógerlegt!

Þar sem engin vett­vangs­rann­sókn fór fram á Spáni, eins og vera ber í saka­málum (enda ósannað enn í dag, að málið heyri undir íslenska lög­sögu), og yfr­heyrslur og vitna­leiðslur hófust ekki fyrr en mörgum mán­uðum síðar, segir það sig sjálft, að víða gætir óná­kvæmni í fram­burði beggja aðila. Í þessu sam­hengi er óþarfi að elta ólar við allan þann sparða­tín­ing. Hins­vegar skiptir meg­in­máli, að vitnum beri saman um aðal­at­riði: Hvað gerð­ist, á INNAN VIÐ MÍNÚTU (30 sek­úndum, að sögn kær­anda) við upp­haf borð­halds­ins?

Þetta gerir gæfumun­inn. Vitnunum tveimur, sem votta það, að ekk­ert sak­næmt hafi gerst á þeim stað og stundu, og að ekk­ert slíkt hefði getað farið fram hjá þeim, ber saman um kjarna máls­ins. Það sama verður hins vegar ekki sagt um kær­and­ann og aöal­vitni hennar (mæðgurnar). Vett­vangs­lýs­ingar þeirra eru í veiga­miklum atriðum ger­ó­líkar, svo mjög reyndar, að sam­kvæmt fram­burði aðal­vitn­is­ins GÆTI EKKERT SAKNÆMT hafa gerst á þessum stað og stundu.

Öllum ber saman um sæta­skipan við borðið. Kær­and­inn (Carmen) sat á vinstri hönd sak­born­ingi í meira en eins metra fjar­lægð. Kæran hljóðar hins vegar upp á, að sak­born­ingur hafi notað hægri hönd sína til að strjúka rass kær­anda, þar sem hún stóð við borðið (honum á hægri hönd) og seg­ist hafa verið að skenkja í glös gest­anna. Ef þetta stenst ekki, þá hefur ekk­ert sak­næmt getað gerst við upp­haf þessa borð­halds.

Áður­nefnd tvö vitni (gest­gjaf­inn Bryndís og Hugrún Auður) stað­festa fram­burð sak­born­ings um, að gestir hafi hvergi komið nærri því að skenkja í glös. Hver trúir því, að gest­kom­andi kona, sem þekkir ekki til gest­gjafa, rjúki til og taki ófrjálsri hendi hvítvíns­flösku í eigu gest­gjafa og fari að hella í glös, óum­beðin? Vill ein­hver ætla henni slíkan rudda­skap? Við ætlum henni ekki það, enda er þetta hreinn til­bún­ingur. Stað­reyndin er sú, að sak­born­ingur (eig­in­maður gest­gjafa) hafði, að fyr­ir­mælum hús­freyju, lagt á borð og skenkt í glös fyrir upp­haf borð­halds, enda lyfti hús­freyja glasi og skál­aði við gest­ina, þegar í upp­hafi.

Ótrúverðugur vitnisburður

Fram­burður móð­ur­innar (aðal­vitnis ákæru­valds­ins) er ekki ein­asta ótrú­verð­ugur, heldur fær hann ein­fald­lega ekki stað­ist. Samkvæmt honum á kær­and­inn (dóttirin) að hafa staðið álút við borð­send­ann (hægra megin við JBH). við að skenkja í glös allra gesta. Að hennar sögn „teygði (dóttirin) sig yfir til að hella í hjá mér“. Milli þeirra var borð­lengd , tæpir tveir metrar (því að Laufey hafði fært sig nær Bryndísi við enda borðs­ins og stóð þar, þegar hún hóf að for­mæla JBH). Borðið var hlaðið veislu­föngum. Til þess að ná til móð­ur­innar hefði dóttirin, sem er ekki ýkjahá í loft­inu, orðið að leggj­ast ofan á borðið og teygja sig í átt að móð­ur­inni, allt að þvi tvo metra. Allt hefði þetta tekið sinn tíma. En á meðan á sak­born­ingur að hafa framið ódæð­is­verkið, skv. þess­ari lýs­ingu aðal­vitnis, móð­ur­innar:

„Já, hann gerði þetta svona sko, ég man ekki hvort hann fór inn í klofið á henni, eða hvort hann, hérna byrj­aði þar, eða fór upp, eða byrj­aði upp og fór niður í klofið á henni, skil­urðu, eða aftan á rass­inn og inni í klofið á henni, en þannig var það, hvað hann gerði það oft, ætli það hafi ekki verið svona þrisvar sinnum, eitt­hvað svona þrisvar, já.“

Þetta er reyndar allt önnur verkn­að­ar­lýs­ing en hjá meintum brota­þola sjálfum, (dótt­ur­inni Carmen), sem taldi í sínum fram­burði, að áreitnin hefði tekið 30 sek­úndur. Skv. fram­burði móð­ur­innar hefði þetta heldur betur tekið tím­ann sinn, og ekki getað farið fram hjá neinum við­stöddum – og alls ekki fram­hjá stjörnu­vitn­inu, sem átti að hafa þetta fyrir aug­unum. Trúir því ein­hver, að meðan að á þessu stóð, hafi dóttirin haldið áfram, eins og ekk­ert hefði í skorist, að hella í glös gesta. Og síðan dregið sig kurt­eis­lega í hlé, sest í sætið sitt og skálað við hús­freyju fyrir ánægju­legri sam­veru­stund.

Er hér ekki einum of mikið lagt á trú­girni fólks?

Og hver er nið­ur­staðan?

Það er sjálft stjörnu­vitni ákæru­valds­ins (móð­irin), sem ónýtir allan mál­flutn­ing þess. Það er ekki bara, að það gerð­ist ekk­ert sak­næmt. Skv. þessum fram­burði gæti það ekki hafa gerst. „Hreinn til­bún­ingur og tómt rugl“, eins og hið eina óhlut­dræga vitni, Hugrún Auður Jóns­dóttir, vott­aði.

Annarlegar hvatir

Þar með ætti þessu máli að vera lokið sam­kvæmt þeirri ófrá­víkj­an­legu grund­vall­ar­reglu ákæru­valds­ins, að kæra ekki nema yfir­gnæf­andi líkur séu á sak­fell­ingu fyrir refsi­verða hátt­semi. En þá vaknar spurn­ing­ing: Eru kon­urnar – hand­hafar ákæru­valds­ins í þessu máli – að breyta því, í ýfir­lýstu stríði gegn „feðra­veld­inu“ svo­kall­aða? Einnig er eftir að setja þessa fjand­sam­legu inn­rás á heim­ili okkar í sitt rétta og skilj­an­lega sam­hengi. Hvers vegna dróst það mán­uðum saman, að Carmen legði fram kæru? Voru hún og Laufey (móðir hennar) þar einar að verki? Eða stóðu aðrir að baki þeim, þegar betur er að gáð?

Fyrsta spurn­ing Rann­veigar Ein­ars­dóttur, lög­reglu­full­trúa, við yfir­heyrslur og vitna­leiðslur eru í flestum til­vikum um TENGSL þeirra mæðgna, Lauf­eyjar og Carmenar, við gest­gjaf­ana, Bryndísi og Jón Baldvin. Svarið við þeirri spurn­ingu er klárt og kvitt: Laufey og elsta dóttir okkar Bryn­dísar, Aldís, voru bernsku­vin­konur á Ísa­fjarð­ar­árum okkar. Þeim mun und­ar­legra er, að í hvert sinn sem sú saga er rakin, reynir lög­reglu­full­trú­inn að þagga málið niður. „Við skulum halda Aldísi fyrir utan­þetta“, segir hún við yfir­heyrslu (sjá bls.117). Hvers vegna? Laufey hefur nefni­lega áður komið við sögu okkar Bryn­dísar með sér­stökum hætti.

Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál, þegar hér er komið sögu, að Aldís hefur, af ástæðum sem hér eru ekki til umræðu, lagt hatur á for­eldra sína og fjöl­skyldu. Til marks um það er, að fimm sinnum á s.l. tutt­ugu árum hefur hún haft frum­kvæði að, eða staðið að baki, lög­reglu­kærum á hendur föður sínum, ævin­lega fyrir meint kyn­ferð­is­brot. Þeim hefur öllum verið vísað frá að rann­sókn lok­inni, þar sem ekki fannst til­efni til sak­fell­ingar.

Eina skiptið, sem dómur hefur fallið í hennar málum, var í meið­yrða­máli okkar gegn RÚV og Aldísi sem heim­ild­ar­manni. Sá dómur var upp­kveð­inn þann 12. mars s.l., þar sem sví­virði­leg­ustu ásak­anir hennar um meinta mis­notkun mína á þremur dætrum mínum ungum, voru dæmdar „DAUÐAR OG ÓMERKAR“. Aldís treysti sér ekki til að áfrýja þeim dómi. Þar með voru ítrek­aðar til­raunir hennar til að koma á mig barn­a­níð­ings­stimpli kveðnar niður.

Þegar Aldís hóf þessa aðför að mann­orði mínu og fjöl­skyld­unnar, bland­aði hún Laufeyju, vin­konu sinni inn í málið með því að segja hana hafa orðið fyrir áreitni af minni hálfu. Það er Laufeyju til hróss, að hún dró þetta ljúg­vitni til baka með afdrátt­ar­lausri yfir­lýs­ingu. Hún hljóðar svo: „Ég hef aldrei orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu Jóns Baldvins, og hann hefur aldrei káfað á mér“. – Eftir stendur, að hún hefur áður borið ljúg­vitni í sam­bæri­legu máli. Við þetta urðu vin­slit milli þeirra vin­kvenna.

Undir fölsku flaggi

Laufey rækt­aði hins vegar vin­áttu við okkur Bryndísi, og á Bryndís í sínum fórum mörg bréf til vitnis um það.Eitt sinn, þegar ásak­anir Aldísar af þessu tagi voru í hámæli í fjöl­miðlum, segir Laufey í bréfi til Bryn­dísar (5. okt. 2011): „… að Aldís sé mjög veik og haldin miklum rang­hug­myndum. Þetta er svo sorg­lega ljót og grimm aðför að ykkur, að þið eigið engan annan kost en að standa þétt saman og verj­ast af hörku! Með inni­legri sam­úð­ar­kveðju, Laufey Ósk“.

Í öðru bréf, dag­settu 1.jan. 2018 segir Laufey:

„Kæra Bryndís – það gaf mér mik­inn lífs­styrk að fá að kynn­ast ykkur sem ung­lingur. Fá að eiga ykkur að í huga og hjarta var svo sann­ar­lega gott að hafa í fartesk­inu, þegar lagt var af stað frá litla þorp­inu, Ísafirði (sic!) – út í heim. Ég gat því borið höf­uðið hátt og verið stolt, því að innst inni vissi ég, að ykkur þætti vænt um mig“.

Þetta skýrir, hvers vegna Laufey og fjöl­skylda voru boðnar vel­komnar í heim­sókn á okkar heim­ili um sömu helgi og HM í knatt­spyrnu var haldið árið 2018. Kvöldið áður en veislan á þak­inu var haldin gestum okkar til heið­urs, hélt Laufey áfram að lof­syngja gest­gjafa sína og þakka þeim fyrir vin­áttu og vel­vild á lið­inni tíð.

Daginn eftir, þegar við snerum heim á leið, haf­andi horft á HM – keppni Íslands og Argent­ínu – á stórum skjá á þorps­torg­inu – og sett­umst að veislu­borði í boði Bryn­dísar, var Laufey orðin að umskipt­ingi. Hún hafði áður trúað bæði Bryndísi og Hugrúnu Auði fyrir því, að hún væri á sterkum verkja­lyfjum og mætti, að lækn­is­ráði, alls ekki drekka áfengi ofan í lyfin.

Sjón­ar­vottar, kunn­ingjar okkar á þorps­torg­inu, sögðu okkur síðar, að þeir hefðu tekið eftir því, að þessi kona í okkar félags­skap hefði drukkið sterka drykki ótæpi­lega, meðan á leiknum stóð. Það er sem kunn­ugt er ban­eitr­aður kokk­teill. Þetta kann að vera hluti af skýr­ing­unni á ham­skiptum Lauf­eyjar. Að hún hafi verið í ann­ar­legu ástandi og þess vegna ekki verið sjálfrátt. Var hún kannski að drekka í sig kjark? Allavega þarfn­ast það skýr­inga, hvernig vin­ar­þel breytt­ist í einu vet­fangi í svika­brigsl og böl­bænir.

Okkur, sem urðum að sitja undir þessum ósköpum var sýni­lega meira brugðið en dótt­ur­inni, Carmen, sem lét sig hverfa af vett­vangi með þeim ummælum, að hún „gæti talað fyrir sig sjálf“.

Sjálfur var ég ösku­reiður yfir þess­ari beisku blöndu af óheil­indum og dóna­skap, sem ekk­ert okkar átti von á, né taldi sig verð­skulda. Og Bryndís var nið­ur­brotin og ekki mönnum sinn­andi næstu dægrin. Það er svo umhugs­un­ar­efni, að fyrr en varði voru gest­irnir á bak og burt með allt sitt haf­urtask, eins og aldrei hefði staðið til að gista yfir helg­ina.Inn­rásinni var lokið. En stóðu gestir okkar einir að verki? Eða stóðu aðrir að baki? Þeirri spurn­ingu er svarað í næstu grein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins