„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Siðrof samfélagsins: Telur lítið traust stafa af vanþekkingu á störfum Þjóðkirkjunnar

Siðrof samfélagsins: Telur lítið traust stafa af vanþekkingu á störfum Þjóðkirkjunnar
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup og Solveig Lára Guð­munds­dóttir vígslu­biskup á Hólum. Mynd: Þjóðkirkjan/Sigurður Ægisson

Solveig Lára Guð­munds­dóttir, vígslu­biskup á Hólum, vill kenna skorti á krist­in­dóms­fræðslu og vöntun á bibl­íu­sögu­lestri um kvíða ungs fólks í dag. Þetta hafði vígslu­bisk­up­inn á orði í morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

„Ef við horfum á síð­ustu tutt­ugu árin hefur nátt­úru­lega heil kyn­slóð vaxið úr grasi sem hefur ekki lært til dæmis neinar bibl­íu­sögur eða fengið neina krist­in­dóms­fræðslu og þá kannski veit ungt fólk ekki að kirkjan er að bjóða upp á þetta og fylla upp í þessa and­legu þörf sem þau eru að leita eftir,“ sagði vígslu­biskup meðal ann­ars í þætt­inum.

Í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup kom fram að ein­ungis þriðj­ungur Íslend­inga ber mikið traust til Þjóð­kirkj­unnar. 36 pró­sent bera lítið traust til kirkj­unnar, eða rúm­lega þriðj­ungur. Sérstaka athygli vekur að aðeins fimmtán pró­sent svar­enda sögð­ust ánægðir með störf Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups, á meðan 27 pró­sent voru óánægð með störf hennar í æðsta emb­ætti kirkj­unnar.

Solveig Lára var ekki í vafa um að þetta mætti skýra með van­þekk­ingu fólks á starfi Þjóð­kirkj­unnar. Auk þess að vera vígslu­biskup á Hólum er Solveig Lára stað­geng­ill Agnesar bisk­ups.

Í sam­hengi við nið­ur­stöður Gallup sagði Solveig Lára að raunin væri sú að traust almenn­ings á opin­berum stofn­unum hefði minnkað mjög allt frá efna­hags­hrun­inu. Hún telur ástæðu til að efnt verði til nýrrar könn­unar þar sem traust fólks til stofn­ana almennt verði kannað.

Sagðist hún full­viss um að það væri ekki fólkið sem raun­veru­lega hafi verið í tengslum við Þjóð­kirkj­una og þurft að leita til hennar sem lýsti yfir litlu trausti til stofn­un­ar­innar.

Minnir þessi orð­ræða Sol­veigar Láru um margt á orð Agnesar bisk­ups frá árinu 2019, þegar hún sagði að minnk­andi traust til Þjóð­kirkj­unnar mætti rekja til sið­rofs í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins