„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gústi B gaf út nýtt lag: „Þau tala skít á Twitter en ég læt það ekki á mig fá.“

Gústi B gaf út nýtt lag: „Þau tala skít á Twitter en ég læt það ekki á mig fá.“
Mynd. Skjáskot/RÚV

Gústi B gaf út nýtt í vik­unni en lagið heitir Gústi Jr. Þar opnar hann sig um bar­átt­una við Mat­væla­stofnun, yfir­völd og gagn­rýnendur vegna þessa fræg­asta refs á Íslandi.

„Af því að ég er nátt­úru­lega rapp­ari, plötu­snúður og leik­ari. Maður er nátt­úru­lega ekki bara refa­eig­andi sko, þó að maður sé þekkt­astur fyrir það í augna­blik­inu,“ segir sam­fé­lags­miðla­stjarnan Ágúst Bein­teinn Ágústs­son, betur þekktur sem Gústi B.

Stóra refamálið á mínum forsendum

Ég kíkti í útvarps­við­tal um dag­inn þar sem ég ákvað að rappa um málið og það var þá sem ég fatt­aði að ég þyrfti að koma ein­hverju frá mér, í bundnu máli.

Hann segir að umræðan síð­ustu vikur og mán­uði hafi tekið á sig og ref­inn og vill hann með lag­inu fá útrás. „Og lagið fjallar um hann Gústa, ref­inn minn. Það eru margir búnir að tjá sig um þetta mál en nú mun ég útkljá þetta í eitt skipti fyrir öll og er mark­miðið að loka stóra refa­mál­inu á mínum eigin for­sendum og klára þetta með stæl.“

„Þetta hefur tekið sinn toll, ekki síst fyrir hann jún­íor minn. Og sér­fræð­ingar hjá Mat­væla­stofnun vildu meina að hann væri orð­inn svo­lítið stress­aður. Ég held það gæti einmitt verið út af öllum þessum ofsóknum yfir­valda, það gæti verið,“ segir Gústi og má þar greina hæðn­is­tón.

Gústi við­ur­kennir að lík­lega muni mál­inu þó ekki ljúka með lag­inu. „En lagið er að minnsta kosti eitt­hvað sem ég þarf að koma frá mér,“ segir Gústi og heldur áfram:

Eitthvað allt annað og sérstakt

Hann segir engan bil­bug á sér að finna. „Þetta er eins og ég segi í lag­inu sko: „Þau tala skít á Twitter en ég læt það ekki á mig fá.“ Hinn ann­ál­aði pródúsent Ingi Bauer gerir lagið með Gústa.

„Ég tók upp lagið hjá honum og hann hafði fylgst mikið með refa­mál­inu mikla og hjálp­aði mér með fram­kvæmd­ina. Þegar maður gerir tón­list um eitt­hvað sem skiptir máli, þá er það eitt­hvað allt annað og sér­stakt, í stað þess að rappa bara um hvað maður er nettur og ríkur.“

Gústa jr. er ekki fara neitt, þótt lagið eigi að loka mál­inu. „Gústi er ekk­ert á förum sko en ég kannski dreg hann úr sviðs­ljós­inu, fyrst þetta er farið að hafa svona rosa­lega stressandi áhrif sam­kvæmt sér­fræð­ing­unum,“ segir hann hlæj­andi.

Með lag­inu kemur út tón­list­ar­mynd­band, sem er alfarið teiknað. „Og Gústa jr. er í fyrsta skipti breytt í teikni­mynda­fígúru. Ég er rosa­lega spenntur að sjá hvernig fólk tekur í það, hann er með gull­keðju og allt.“

Gústi segir sig og ref­inn fá fjöl­margar fyr­ir­spurnir um afmælis­kveðjur. „Það eru allir sem vilja afmælis­kveðju frá jún­í­ornum, það er bara þannig. Og fyr­ir­tæki eru líka mikið búin að vera að hafa sam­band, þau vilja fá aug­lýs­ingar og svo­leiðis á sam­fé­lags­miðl­unum.“

Hægt er að lesa við­talið við Gúsa í heild sinni í líf­inu á Frétta­blað­inu.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins