„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Agnieszka nýr for­maður Eflingar: „Ég bara elskaði Ísland þegar ég sá landið“

Agnieszka nýr for­maður Eflingar: „Ég bara elskaði Ísland þegar ég sá landið“

Agnieszka Ewa Ziól­kowska er nýr for­maður Eflingar og kem­ur til með að gegna því fram að næstu for­manns- og stjórn­ar­kosn­ing­um. Efling mun halda áfram rót­tækri stefnu sinni í mál­efnum verka- og lág­launa­fólks sam­kvæmt henni.

Agnieszka er 37 ára gömul og fædd­ist í Pól­landi. Hún hefur búið hér á landi í 15 ár og seg­ist hún alla tíð hafa unnið lág­launa­störf – og verið í Efl­ingu lengst af, hún var í við­tali hjá Kjarn­anum.

Agnieszka seg­ist ekki ætla að taka afstöðu með eða á móti fyrrum for­ystu eða starfs­fólki Efl­ingar – hún segir að hún virði skoð­anir allra sem hlut eiga að máli. Hún telur enn fremur að öld­urnar hafi tekið að lægja og finnur hún ótví­rætt fyrir stuðn­ingi innan stétt­ar­fé­lags­ins til að halda áfram bar­átt­unni. Hennar áhersla varði fyrst og fremst félags­menn Efl­ingar og þjón­ustu við þá.

Faðir hennar bjó á Íslandi og bauð henni að koma hingað í frí fyrir hálfum öðrum ára­tug.

„Ég bara elskaði Ísland þegar ég sá landið og ég ákvað að ég vildi eiga hér heima. Áður en ég flutti hafði ég í huga að kaupa mér íbúð í Pól­landi og safna fyrir henni með ein­hverjum hætti. En þegar ég kom til Íslands gerði ég mér grein fyrir því að ég vildi ekki íbúð í Pól­landi heldur var draumur minn að festa rætur hér í stað­inn.“

Agnieszka var mjög virkur trún­að­ar­maður og seg­ist hún meðal ann­ars hafa skipu­lagt verk­föll fyrir síð­ustu kjara­við­ræð­ur. Í gegnum það ferli kynnt­ist hún verka­lýðs­hreyf­ing­unni enn frekar og einnig starfs­fólki Efl­ing­ar.

„Þetta leiddi mig að þeim tíma­punkti að ég var kjörin vara­for­maður stétt­ar­fé­lags­ins árið 2019.“ Hún hafði þá nýlega eign­ast barn og því hóf hún störf hjá Efl­ingu stuttu seinna eftir fæð­ing­ar­or­lof.

Þegar hún er spurð um næstu skref innan Eflingar segir hún: „ég tel að við munum stíga nauð­syn­legt skref til að leysa málin far­sæl­lega. Við verðum að tryggja það að stétt­ar­fé­lagið geti haldið áfram að starfa fyrir félags­menn sína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins