„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þórólfur hefur áhyggjur af fjölgun sárasóttartilfella hér á landi

Þórólfur hefur áhyggjur af fjölgun sárasóttartilfella hér á landi
Mynd. Skjáskot/RÚV

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, hefur áhyggjur af fjölgun sára­sótt­ar­til­fella hér á landi. Í frétta­bréfi hans segir hann vís­bend­ingar um að sára­sótt sé að dreifast meðal gagn­kyn­hneigðra á Íslandi. Það sé mikið áhyggju­efni þar sem sára­sótt­ar­sýk­ing móður á með­göngu getur haft alvar­legar afleið­ingar fyrir barnið.

Árið 2020 greind­ist alls 31 ein­stak­lingur í fyrsta sinn með sára­sótt. 30 þeirra voru karlar og þar af 77% karlar sem stunda kyn­líf með körlum. Hutfall karla hefur verið 73 til 97 pró­sent smita síð­ustu ár, segir í frétta­bréf­inu.

Það sem af er þessu ári hefur 41 til­felli sára­sóttar greinst í ein­stak­lingum í fyrsta sinn, þar af 38 karlar. Það vekur athygli sótt­varna­læknis að níu gagn­kyn­hneigðir ein­stak­lingar hafa greinst utan skim­ana það sem af er ári, sem er aukn­ing frá síð­asta ári. Nokkur fjöldi hefur greinst með virka frum­sýk­ingu og sár á kyn­færum. Þórólfur segir það áhyggju­efni.

Skimað er fyrir sára­sótt hjá konum í með­göngu og hjá blóð­gjöfum hér á landi. Einnig er ski­mað fyrir sára­sótt hjá erlendum rík­is­borg­urum sem flytj­ast til Íslands.

Sárasótt var sjald­gæf á Íslandi fram að seinni heims­styrj­öld. Með til­komu pensi­líns árið 1945 dró veru­lega úr útbreiðslu hennar, en á árunum 1970 til 2009 greindust innan við tíu ein­stak­lingar árlega að jafn­aði með sára­sótt. Frá 2009 hafa að með­al­tali 24 ein­stak­lingar greinst árlega, og hefur sama þróun átt sér stað ann­ars staðar á Vest­ur­löndum. Aukn­ingin er fyrst og fremst meðal karla sem stunda kyn­líf með körlum segir í frétta­bréfi sótt­varna­læknis.

Sárasótt berst á milli manna með kyn­mökum, við blóð­smit og frá móður til fóst­urs. Fyrstu ein­kenni koma í ljós um þremur vikum eftir smit í formi eymsla­lausra sára, oft­ast á kyn­færum. Nokkru síðar geta mynd­ast húð­út­brot, og sé ekk­ert gert í sýk­ing­unni tím­an­lega getur hún þró­ast í þriðja stigs sára­sótt. Þriðja stigið kemur fram um tíu til þrjá­tíu árum eftir smit hjá um tíu af hundraði þeirra sem ekki leita sér aðstoðar við sýk­ing­unni. Það leggst aðal­lega á tauga­kerfi og/eða hjarta- og æða­kerfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Smitsjúkdómar

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins