„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Neyðarkall til yfirvalda frá aðstandendum: „krefjumst þess að leikskólanum Sælukoti verði lokað“

Neyðarkall til yfirvalda frá aðstandendum: „krefjumst þess að leikskólanum Sælukoti verði lokað“
Leik­skól­inn Sælukot

„Við, fyrrum starfs­menn leik­skól­ans Sælukots, Þorra­götu 1 í Reykja­vík og aðstand­endur barna sem dvalið hafa þar, krefj­umst þess að leik­skól­anum Sælukoti verði lokað eða rót­tækar breyt­ingar gerðar á starfs­háttum hans.“
Eru þetta upp­hafs­orðin í neyð­ar­kalli til yfir­valda frá for­eldrum barna og fyrr­ver­andi starfs­fólki leik­skól­ans.
Hafa þau nú sent frá sér bréf sem stílað er á yfir­völd þar sem þau rök­styðja kröfu sína vel.
Í bréf­inu eru fjöl­margar frá­sagnir for­eldra og starfs­fólks sem eru þyngri en tárum taki. Ljóst er að bæði van­ræksla á börnum og brot á kjara­samn­ingum starfs­fólks hafi verið látin við­gang­ast árum saman við leik­skól­ann.
Bréfið má lesa í heild sinni hér að neðan. Vert er að taka fram að inni­hald bréfs­ins getur reynst átak­an­legt að lesa.
Hafa bæði for­eldrar og kenn­arar sýnt gríð­ar­lega sam­stöðu í mál­inu.

Blaða­maður Mannlífs hefur átt í reglu­legum sam­skiptum við fyrr­ver­andi starfs­menn leik­skól­ans og for­eldra sem hafa nú fengið nóg af aðgerð­ar­leysi. Vert er að taka fram að blaða­maður hefur ítrekað leitað svara hjá yfir­völdum og gert athuga­semdir við hvers vegna ekki sé gripið inn í. 


Í bréf­inu eru einnig umsagnir en þær má lesa hér að neðan, athugið að xxx hefur verið sett í stað nafna ein­stak­ling­anna.
Hér að neðan eru umsagnir og ástæður starfs­loka nokk­urra fyrr­ver­andi starfs­manna:

„Ég hóf störf í Sælukoti 1. ágúst 2020. Ég mætti til leiks með opnum huga þó svo að ég fyndi strax fyrir ein­kenni­legum stjórn­un­ar­háttum á leik­skól­anum. Ég skrif­aði það ein­fald­lega á menn­ing­ar­mun. Málin þró­uð­ust hins vegar þannig að ég var orðin mjög aðþrengd í mínu starfi og gat ekki komið til skila ein­föld­ustu skila­boðum án árekstra. Þó svo að ég ætti að heita leik­skóla­stjóri voru orð mín oftar en ekki hundsuð og lítið gert úr þeim. Auk þess var ýmsum málum haldið leyndum fyrir mér eða ég ekki sett inn í þau. Mér varð fljót­lega ljóst að til­gangur með starfi mínu var ein­ungis sá að svara bréfum og til­mælum frá íslenskum stjórn­völdum án þess þó að það hefði mikil áhrif á starf leik­skól­ans. Fjörtíu pró­senta starfs­hlut­fall mitt end­ur­speglar og styður þá skoðun mína. Á meðan ég starf­aði í Sælukoti var fag­legt starf í lág­marki. Mál­stefna, sér­kennsla og námskrá voru í skötu­líki enda hélst leik­skól­anum mjög illa á starfs­fólki. Enginn leik­skóla­kenn­ari starf­aði á leik­skól­anum á þeim tíma sem ég var þar. Að auki var mér til­kynnt að ef ég ætl­aði að sækja fundi með leik­skóla­stjórum eða þá sem stofn­anir Ríkisins eða Reykja­vík­ur­borgar boð­uðu til, yrði ég að gera það í mínum frí­tíma. Ég sagði upp störfum 1. maí 2021 en var rekin 3. júní eftir að hafa sent rekstr­ar­að­ila leik­skól­ans bréf sem var und­ir­ritað af mér og fleira starfs­fólki leik­skól­ans þar sem við lögðum til úrbætur vegna lág­marks mönn­unar og aðbún­aðar barna og starfs­fólks við leik­skól­ann. Ég mætti til vinnu þann 3. júní en komst ekki inn í tölvu­póst­inn minn lengur og gat því ekki látið for­eldra barn­anna vita að mér hefði verið sagt upp. Þau voru ekki látin vita af því og eng­inn leik­skóla­stjóri starf­aði á Sælukoti frá 3. júní til 1. ágúst. Eftir upp­sögn­ina leit­aði ég til Reykja­vík­ur­borgar og fund­aði með full­trúum Skóla- og frí­stunda­sviðs þann 9. júní síð­ast­lið­inn. Þegar mér var tjáð að skýrsla fund­ar­ins yrði send í Sælukot þar sem hana átti að bera undir rekstr­ar­að­ila leik­skól­ans ákvað ég að skrifa ekki undir hana þar sem ég taldi og tel enn að það hafi því miður ekk­ert upp á sig. Í kjöl­farið skrif­aði ég Skóla- og frí­stunda­sviði fjöl­marga tölvu­pósta þar sem ég benti á að eng­inn leik­skóla­stjóri starf­aði á Sælku­koti. Ég bað ítekað um að eitt­hvað yrði gert í mál­efni Sælukots en fékk lítil við­brögð.“ – xxx

„Ég starf­aði á Sælukoti frá byrjun ágúst- lok nóv­em­ber 2016. Ég byrj­aði full eft­ir­vænt­ingar, nýbúin að ljúka B.ed. gráðu í leik­skóla­kenn­ara­fræðum og heill­að­ist að hug­mynda­fræð­inni sem leik­skól­inn kennir sig við. Það leið þó ekki langur tími þar til það kom í ljós að starfs­fólkið, sem allt byrj­aði á sama tíma og ég fyrir utan þrjá, var allt mjög óupp­lýst um stefn­una og hvernig eigi að vinna eftir henni (sex starfs­menn höfðu sagt upp störfum vorið áður). Þegar starfs­fólk leit­aði ráða til yfir­manns og vildu leið­sögn benti yfir­maður á hand­bók sem hægt væri að fá í láni og lesa í pás­unni eða heima hjá sér. Sú handók tók ekki mið af Aðal­námskrá né var Aðal­námskránna að finna í leik­skól­anum.

Á því tíma­bili sem ég vann komu aðilar frá leik­skóla­sviði Reykja­vík­ur­borgar í eft­ir­lit til að vinna að ytra mati leik­skól­ans. Þar var aðal­námskráin nefnd og eng­inn af leið­bein­end­unum nema ég kann­að­ist við hvað það var. Skráður leik­skóla­stjóri á þessum tíma kom örsjaldan. Hún og for­stöðu­konan voru beðnar um að skila inn skýrslu í lok eft­ir­lits-tíma­bils­ins. Leik­skóla­stjóri ræddi þá við mig í ein­rúmi og rétti mér USB lykil sem inni­hélt skýrsl­una og bað mig um að lesa hana yfir þar sem ég kynni örugg­lega meira um svona „fag­lega hluti“ þar sem ég hafi farið í háskóla­nám. Þegar ég skil­aði lykl­inum aftur dag­inn eftir, eftir að hafa farið yfir og lag­fært, rétti hún mér svo 5000 kr og blikk­aði mig… Þetta þykir mér virki­lega ófag­leg vinnu­brögð hjá leik­skóla­stjóra og fann það á mér þarna að stjórn­endur skól­ans höfðu eitt­hvað að fela og gátu ekki sinnt fag­legu starfi leik­skól­ans sjálfir!

Á mínum tíma sem starfs­maður á þessum leik­skóla var ég stans­laust kvíðin, leið eins og ég væri að gera eitt­hvað af mér við að vinna við aðstæður þar sem erf­ið­lega reynd­ist að kom­ast til móts við börnin, starfs­fólk alltaf úrvinda og í pásum lágu starfs­menn sof­andi. For­stöðu­konan beitti miklu and­legu ofbeldi í garð starfs­manna, ef fólk var veikt trúði hún því aldrei og sagði það vera fólk­inu sjálfu að kenna, sem dæmi um það kenndi hún starfs­manni um að vera veik því hún hafði farið út að borða kvöld­inu áður og hafi þá vilj­andi orðið veik. Hún var með miklar öfga­skoð­anir og vildi stjórna starfs­fólki sínu á alla vegu, bann­aði sam­starfs­konu minni að  borða nestið sitt því það var kjúklingur í því, skamm­að­ist í starfs­fólki ef það var reyk­inga­fólk, hringdi ítrekað í starfs­fólk sem var í fæð­ing­ar­or­lofi til að ýta eftir því að byrja aftur að vinna áður en orlofið var búið ofl. Stjórnun leik­skól­ans var alls ekki í anda húman­isma heldur þvert á móti, náms­gögn og leik­föng voru af skornum skammti væg­ast sagt og van­líðan barn­anna mjög mikil og mikil ringul­reið ríkti í skipu­lagi leik­skól­ans.

Að lokum hafði ég ekki sam­visku til að halda starfi mínu áfram í slíkum leik­skóla og hugsa enn þann dag í dag 5 árum síðar með hnút í mag­anum til þeirra barna sem voru á leik­skól­anum og vildi óska að ég hefði getað gert betur fyrir þau á þessum tíma. Rekstr­ar­að­ilar leik­skól­ans eru með öllu óhæfir til að sinna þörfum og menntun barn­anna sem þar eru og ég legg til að honum verði taf­ar­laust svipt rekstr­ar­leyfi þar sem greini­legt er að ástandið hefur ekki lag­ast síðan þá heldur þvert á móti!“ – xxx

„Ég vann í Sælukoti frá mán­að­ar­mótum nóv­em­ber/des­em­ber 2019 til 1. októ­ber 2021. Þá var ég rekin – og beðin um að mæta ekki framar – vegna gagn­rýni minnar m.a. á það hve fáir starfs­menn voru, manna­skipti svo tíð að ég vissi ekki frá degi til dags hver yrði á vakt dag­inn eftir. Leikföng voru af mjög skornum skammti og öryggi barn­anna í sífelldri hættu. Ég mætti t.d. eitt sinn að morgni dags (of snemma) og kom að systk­inum, þriggja og tæp­lega árs gömlu, að leik með smæstu legokubbana. Yngra barnið var með kubba í munn­inum – en hvergi nokkur starfs­maður sjá­an­legur. Þegar for­stöðu­mann­eskjan kom byrj­aði hún á því að ávíta eldra barnið fyrir að taka kubbana og síðan starfs­mann eld­húss­ins fyrir að hafa ekki gætur á þeim. Annað hlið skól­ans var þannig að elstu börnin gátu auð­veld­lega opnað það og farið út á götu. Til að kór­óna allt var ég ekki látin vita af kyn­ferð­is­of­beldi sam­starfs­manns míns, heldur las um það í blöðum.“ – xxx

„Trabajé en Sælukot desde el mes de febr­ero de 2020 y decidí renunciar en junio de este año en curso. La razón principal de mi renuncia ha sido el trato hacia los emp­lea­dos por parte del Director de la escuela al recibir alg­una queja con respecto a la falta de per­sonal en cada departa­mento y así poder garantizar la seguri­dad de los niños. Al anunciar mi renuncia me ofrecí a tra­bajar el tiempo estipulado por la ley; es decir, regresar a tra­bajar en agosto y la respu­esta que recibí fue: „No, you don´t have to come in August, that’s better“.“

„Ég byrj­aði að vinna í Sælukoti í febr­úar 2020 en ákvað að segja upp í júní s.l.

Ástæða fyrir upp­sögn minni er fyrst og fremst sú hvernig rekstr­ar­að­ili kom fram við starfs­fólk. Það vant­aði starfs­fólk á hverja ein­ustu deild til að tryggja öryggi barn­anna. Ég bauðst til að vinna upp­sagn­ar­frest­inn og mæta aftur eftir sum­ar­frí í ágúst en fékk svarið: „No, you don’t have to come in August, that’s better“.“ – Starfs­maður sem ekki vill láta nafns síns getið.

„Pracowałam w Sælukot od 1 gru­dnia 2020 do 7 października 2021. Głównym powodem było złe traktowanie mnie przez długi czas przez osoby zarządzające jak i pracowników. Akceptowano krzyczenie na mnie w miejscu pracy i przy słyszących wszystko dzieciach w przedszkolu. Wiecznym problemem było za mało pracowników. W klasie niekiedy 20 dzieci i tylko 2 pracowników. Dzieci śpią na dworze w wózkach i nie ma żad­nego pracownika, który sprawdza, czy któreś się obudziło lub płacze. Zasłanianie wózków folia przeciwdeszczową w lato, słoneczne dni, kiedy dzieci śpią, nie mają czym oddychać. Wychodząc z pokoju przeznaczonego do spania usłyszałam krzyczące dziecko z wózka, dziewczynka cała spocona, zapłakana, z kupą w pieluszce i na spodniach. Wózek zakryty folia przeciwdeszczową w gorący letni dzień, nikt poza mna nie słyszał krzyczącego w nie­bogłosy dziecka.  Inna kwestia, nie mogłam wziąć dnia wolnego kiedy byłam chora lub moje dziecko. Kiedy dzwoniłam, że jestem chora Didi krzyczała na mnie przez telefon, że nie powinnam pracować w przedszkolu, jeśli choruje. (typowa wirusówka, wymioty). Pracowałam z ang­iną ropną i gorączką. Gdy musi­ałam odebrać swoje dziecko z przedszkola bo był chory, kazała mi z nim przyjechać i pracować. Nie mogłam wziąć dnia wolnego, kiedy u dziecka w przedszkolu był starfs­dagur. Jestem sam­otną matką, nie mam tutaj rodziny, która mogłaby mi pomóc w opiece nad dzieckiem. Gdy syn miał gorączkę w domu, musi­ałam go zostawić z moim chłopakiem, który nie jest jego ojcem i przyjechać do pracy na godzinę o 8 rano, ponieważ Didi mi kazała. Kiedy mój syn wymiotował w przedszkolu kazała mi iść na godzinę do domu, dać mu syrop i wrócić do pracy. Na zebraniu z rodzicami, po tym jak wyszło na jaw do mediów, że oskarżają jed­nego z pracowników o molestowanie seksu­alne, powiedziała, że pracownicy wiedzieli o tym, co jest kłamstwem. W czerwcu powiedziała nam, że pracownik tym poszedł na wolne a ona o tym zapomniała. Jakbym o tej całej sprawie wiedziała, to bym w życiu nie zdecydowała się na umieszczenie w tym przedszkolu mojego syna. Uczęszczał on do tego przedszkola od sierpnia 2021 do października 2021. Przeniosłam go do inn­ego przedszkola, ponieważ w Sælukot umieścili ośmi­oro dzieci pięcioletnich w grupie, gdzie nauczycielem był chłopiec 19 letni bez wykształcenia pedagogicznego. Przerwa  dla pracownika w ośmiogodzinnym dniu pracy trwa 24 minuty. W przedszkolu chodzące myszy, w łazience w szafce odchody mysie. Praca w tym przedszkolu narusza wszystkie prawa pracownika na Islandii. Pracowałam tam długo, nie zgłaszając uchybień, bojąc się o swoją przyszłość i mojego dziecka. Nie znając dostatecznie dobrze swoich praw na rynku pracy w Islandii.“ – xxx

„Ég vann í Sælukoti frá des­em­ber 2020 til 7. októ­ber s.l. Ég sagði upp vegna ógn­ar­stjórnar og þess hve starfs­menn voru fáir og álagið gíf­ur­legt. Ef ég varð veik mætti mér öskur og hót­anir og mér sagt að ég væri ekki hæf til að vinna á leik­skóla ef ég væri alltaf veik. Sonur minn byrj­aði í Sælukoti í ágúst, en ég hefði aldrei beðið um pláss fyrir hann hefði ég vitað af því að sam­starfs­maður minn væri ásak­aður um kyn­ferð­is­of­beldi.“ – xxx

„Ég vann á leik­skól­anum Sælukoti frá nóv­em­ber 2020 til júlí 2021. Í starfi mínu bar ég ábyrgð á dag­legri umsjón hóps barna á aldr­inum eins til tveggja ára. Sem er sér­stak­lega vert að nefna þar sem þessi hópur taldi sex börn þar sem öll nema eitt vou innan við tveggja ára þegar ég byrj­aði með þau. Ég var ein með þau. Þrátt fyrir ítrek­aðar athuga­semdir þá fékk ég ekki þá aðstoð eða hjálp sem þurfti sem þýddi meðal ann­ars að það var dag­legt brauð að kom­ast ekki á sal­erni tímunum saman og jafn­vel ekki fyrr en í lok vinnu­dags þar sem ann­ars hefði ég þurft að skilja börnin eftir eft­ir­lits­laus á meðan. Það reynd­ist einnig reglu­legur við­burður að vera skilin ein eftir úti með 15 eða fleiri börn í umsjá minni, þrátt fyrir athuga­semdir mínar og ann­arra starfs­manna sem lentu í sömu stöðu. Þar að auki var leik­svæði barn­anna hættu­legt á margan hátt. Á meðan fram­kvæmdum á hús­inu stóð hirtu hvorki verka­menn né stjórn­endur leik­skól­ans mikið um umhirðu efnis eða tóla og tækja sem notuð voru. Við starfs­menn­irnir vorum að tína upp nagla, skrúfur og verk­færi og það í kapp við börnin. Einnig var ég beðin af rekstr­ar­stjór­anum að hringja í for­eldra varð­andi alls­konar mál­efni, meðal ann­ars til þess að ‘skamma’ for­eldra fyrir að sækja börnin sín of seint en mér þóttu þessar beiðnir virki­lega óþægi­legar, enn fremur þar sem börnin voru í flestum til­vikum frá öðrum deildum.

Vert er að nefna að rekstr­ar­stjór­inn taldi ekki mik­il­vægt að fylgja eftir máli þar sem að full­orð­inn maður ber­aði sig við starfs­mann fyrir utan aðal­inn­gang leik­skól­ans.

Þetta og fleira gekk áfram án úrbóta yfir þann tíma sem ég vann á leik­skól­anum þrátt fyrir margar og end­ur­teknar athuga­semdir úr hópi starfs­manna.

Öryggi barn­anna á leik­skól­anum var og er að mínu mati ógnað og þar urðu óþarfa slys sem má rekja til ofan­greindra aðstæðna. Þrátt fyrir ítrekuð sam­töl, fundi og ábend­ingar um van­kanta og mögu­legar úrbætur þá voru engar aðgerðir gerðar af höndum stjórn­enda. Alvar­leg­ast þykir mér þó, hvar er eft­ir­litið? Hvernig stendur á því að svona sé leyft að við­gang­ast á Íslandi? Á end­anum gat ég ekki séð mér fært að starfa áfram á stað þar sem hagur barn­anna, og starfs­manna var ekki í fyr­ir­rúmi og því sagði ég upp störfum. Öryggi og ánægja barn­anna eru mér afar kær og því skrifa ég undir þetta bréf og lýsi yfir alvar­legum áhyggjum af þeim aðstæðum sem þau eru í á leik­skól­anum Sælukoti.“ – xxx

„I’m sur­prised that there are still any issues in this kind­erg­ar­ten. It’s been 5 years. I started working during the ongoing war between the workers and Didi. I rem­em­ber that I did not know what was happ­en­ing. Didi was difficult sometimes but gener­ally I tried to adapt. Probably the big­gest problem was lack of trust in employees. Whenever I called I was sick, I always had the impression that she did not beli­eve me. I was under constant pressure to be healthy. In the long run I got pneumonia and I had to stop breastfeeding because I had to take antibiotics. Once when I said I had a sick child, she called the kind­erg­ar­ten where my child attended to check it out. As a for­eigner, I thought such things were not­hing unusual… but after 5 years in the Icelandic job market, I know trust is import­ant. For me, it is all the past now but if you want to tell about it anonymously, I don’t mind.“ – Fyrr­ver­andi starfs­maður sem ekki vill láta nafns síns getið, vann á Sælukoti 2015–2016

„Ég vann á leik­skól­anum frá jan­úar 2021 – júlí 2021 á deild­inni Space/Geimur. Reynslan mín á leik­skól­anum var und­ar­leg og óvenju krefj­andi. Þar sem ég er ekki einu sinni orðin tví­tug þá er reynsla mín af upp­eldi barna ekki mikil. Ég var mjög spennt að fá að læra starfið og vinna í skap­andi umhverfi. Þegar ég byrj­aði fékk ég litla sem enga þjálfun. Vinnu­fé­lag­inn minn þurfti að kenna mér allt og við vorum ein­ungis tvær á deild­inni. Eftir að hafa unnið þar í mánuð var ég sett í það verk­efni að taka for­eldra­við­töl við helm­ing for­eldra barn­anna á deild­inni. Ég var engan vegin und­ir­búin í það og hafði ekki einu sinni hitta for­eld­rana vegna covids. Þar sem ég var að vinna á leik­skóla í fyrsta skipti tók ég þetta að mér, vissi ekki betur. Mér þótti það samt mjög óvenju­legt þar sem ég gat ekki gefið for­eldr­unum þær upp­lýs­ingar sem þau áttu skilið.

Á meðan bleyju­skiptum stóð var einn starfs­maður skilin eftir með 10 börnum þar sem við vorum mjög und­ir­mönnuð. Gerði það okkur mjög erfitt með að fylgj­ast með öllum börn­unum á almenni­legan hátt og skap­aði mikla slysa­hættu.

Eftir að hafa unnið á leik­skól­anum í 3-4 mán­uði var sam­starfs­fé­lagi minn færður á aðra deild. Þá var öll ábyrgðin sett á mig þó að ég sé ekki hæf í það. Tvær nýjar stelpur voru ráðnar og voru báðar settar á deild­ina hjá mér. Stelp­urnar unnu mjög vel og var ég alltaf mjög ánægð með þær. En það var mjög krefj­andi að þjálfa tvær nýjar stúlkur og einnig bera ábyrgð á öryggi barn­anna. Var ég alltaf mjög kvíðin þar sem ég er of ung og óhæf til að bera þessa ábyrgð. Mér fannst þó jákvætt að heyra að það yrðu þrír starfs­menn á deild­inni í stað­inn fyrir tvo. Þá yrðum við ekki jafn und­ir­mönnuð. En svo fékk ég að heyra að í stað­inn yrði tveimur börnum bætt við af yngri deild­inni og að tveir krakkar kæmu af eldri deild­inni. Þannig vorum við aftur orðin und­ir­mönnuð. Einnig var rýmið of lítið fyrir svona marga krakka. Börnin fundu strax fyrir því hvað þrengslin voru mikil og áreitið jókst rosa­lega. Gerði það okkur enn erf­ið­ara með að fylgj­ast með krökk­unum og meiðsli innan deildar urðu meiri en áður. Ég var dag­lega að upp­lýsa for­eldra um meiðsl og áverka hjá börn­unum.

Mér fannst mjög erfitt að skipu­leggja dag­inn og koma hlutum í verk þar sem ég kunni það ekki. Ef ég bað um hjálp frá ónefndum yfir­mönnum var mér sagt að finna út úr þessu sjálf. Skipu­lagið var ómögu­legt þar sem börnin voru of mörg og starfs­menn­irnir of fáir. Þetta leiddi til þess að ég þurfti oft að vera ein með stóran hóp sem mjög erfitt var að hafa gott eft­ir­lit með.

Ég sá mér ekki fært um að vinna þarna lengur þar sem ég var alveg upp­gefin og mjög kvíðin mest allan tím­ann.

Svo barst mér fréttin um kyn­ferð­is­lega ofbeldið. Ég hafði engan grun um málið þar sem upp­lýs­ingum var haldið leyndum. Maðurinn var oft settur inn á deild­ina hjá mér og þar sem ég vissi ekki af mál­inu þá skyldi ég hann stundum eftir þegar ég þurfti að tala við for­eldra, hlaupa í önnur verk­efni eða ein­fald­lega kíkja á kló­settið. Inni á deild­inni hjá mér var lítið her­bergi þar sem við höfðum morg­un­stund­ina okkar. Í þessu her­bergi sváfu einnig nokkrir krakkar í hvíld­ar­stund sinni. Þá var ofbeld­is­mað­ur­inn settur í að svæfa börnin. Hann var þar einn með börn­unum í margar mín­útur. Þetta átti sér stað þegar búið var að lofa að hafa hann ekki einan með börn­unum.“ – Fyrr­ver­andi leið­bein­andi sem ekki vill láta nafns síns getið.

„Ég var leið­bein­andi á Sælukoti frá jan­úar 2015 til júní 2016. Ég tók eftir mik­illi starfs­manna­veltu og skort á starfs­þjálfun. Leik­skól­inn var að stækka við sig og fleiri börn mættu, oft án vit­undar leið­bein­anda enda upp­lýs­inga­flæði ábóta­vant.

Ekki einn ein­asti starfs­maður var með menntun leik­skóla­kenn­ara og ekki var farið eftir aðal­námskrá.

Við kvört­uðum ítrekað til yfir­manns og báðum um starfs­manna­fund í þrjá mán­uði vegna fjölda vanda­mála. Yfir­manni fannst ekki þörf á fundi heldur ræddu hún við okkur eitt og eitt. Reykja­vík­ur­borg upp­lýsti okkur um leik­skóla­stjór­ann okkar sem við höfðum aldrei hitt eða heyrt af, enda bara leik­skóla­stjóri á pappír.

Vinnu­fram­lag mitt síð­asta mán­aðar upp­sagn­ar­frests var afþakkað af stjórn Sælutraðar sama dag og við greindum for­eldrum frá ástand­inu í mik­illi mann­eklu.“ – xxx

„Ég hóf störf í Sælukoti í mars 2020. Ég upp­lifði strax mik­inn kvíða í þessu starfs­um­hverfi. Fékk litla sem enga þjálfun, fékk ekki að vita hvenær ég mætti fara í pásu og margt fleira var ég ekki upp­lýst um sem ég átti þó að vita. Hins vegar var mikið sett út á mig og ég hrein­lega skömmuð ef ég gerði eitt­hvað sem að Didi þótti rangt. Það án þess að ég fengi nokkra til­sögn, kennslu eða þjálfun. Það var oft hringt í mig á kvöldin og ég skömmuð ef ég hafði gert eitt­hvað vit­laust í vinn­unni. Og ef ég svar­aði ekki sím­anum var hringt mörgum sinnum til við­bótar og jafn­vel um helgar líka.

Í eitt skipti hringdi Didi 7 sinnum í röð í mig eftir vinnu og ég svar­aði ekki. Svo hringdi annar starfs­maður í mig (sem hafði aldrei hringt í mig áður) og vildi allt í einu bara spjalla við mig um lífið og til­ver­una. Ég spurði hvort að Didi hefði beðið hann um að hringja, hún svar­aði því neit­andi. Hins vegar hringdi Didi aftur um leið og ég lagði tólið á og spurði mig af hverju ég hefði ekki svarað sér. “Þú svaraðir hinum starfs­mann­inum. ‘’ Greini­lega fékk hún aðra starfs­menn til að taka þátt í þess­ari óvið­eig­andi fram­komu – að þröngva sér upp á starfs­menn og van­virða frí­tíma þeirra.

Annað atvik. Ég fékk háls­bólgu og var veik í þriðju vik­unni minni og hringdi í Didi.  Þetta var á þeim tíma þegar Covid far­ald­ur­inn var að skella á af fullum þunga í sam­fé­lag­inu, og mikið talað um að maður ætti ekki að fara út úr húsi með ein­kenni. Ég hring því í Didi til að segja henni frá og til að athuga hvað gera skyldi. Didi svar­aði mér í reiðum tóni „Þú ert nýbyrjuð og það er ekki í boði að taka veik­inda­dag, þú ættir nú að hugsa betur um heils­una heldur en þetta.“ Sagði að ég væri að skemma fyrir börn­unum og hinu starfs­fólk­inu með því að vera veik.

Fyrsta dag­inn var mér sagt að lesa fyrir börnin, (þau voru 2-3 ára) ég tók bók úr hill­unni og byrj­aði að lesa. Didi  stóð yfir mér og horfði gagn­rýn­is­augum á mig „Nei ekki lesa þetta svona, þetta er allt of þurrt og leið­in­legt hjá þér.“ Ég fatt­aði að bókin sem ég tók var ekki fyrir þennan ald­urs­hóp svo ég greip í aðra bók og las og reyndi að gera þetta meira lif­andi „Nei þú þarft ekki að lesa beint úr bók­inni. Gerðu þetta meira lif­andi, vertu skap­andi“ Þetta var minn fyrsti dagur í vinn­unni. Ég upp­lifði nið­ur­læg­ingu og mikla van­virð­ingu.

Á Covid tím­anum fund­uðum við þar sem Didi gerði lítið annað en að skamma hóp­inn og segja okkur hvað við værum að standa okkur illa í vinn­unni. Dagarnir mínir í Sælukoti ein­kennd­ist af kvíða og hræðslu. Þrátt fyrir að mér lík­aði vel við margt af starfs­fólk­inu og fannst mat­ur­inn góður var við­mót hennar hræði­legt við starfs­menn og ekki hægt að tengja þetta við neinn húman­isma hvernig hún kom fram við okkur.

Dót á deild­unum var illa þrifið, starfs­menn fengu ekki pásurnar sem þeir áttu að fá, mikil starfs­manna­velta, mikil van­virð­ing við starfs­menn og ógn­ar­stjórnun. Þarf að segja meira? Þegar sum­ar­fríið hófst í júlí flaug ég burt. “ – xxx

„Ég hóf störf sem leið­bein­andi á Sælukoti sum­arið 2015, einnig fékk dóttir mín þá rúm­lega 1,5 árs pláss á yngstu deild­inni.

Fyrsta dag­inn minn fékk ég engin fyr­ir­mæli eða leið­bein­ingar um hvernig leik­skóla­starfið færi fram. Ég var tví­tug og algjör­lega reynslu­laus þegar kom að leik­skóla­starfi. Ég fékk minn hóp af sex börnum 2-3 ára, þar af var barn með fötlun / sér­þarfir, ég fékk engar upp­lýs­ingar frá stjórn­anda leik­skól­ans. Ég var seinna látin taka for­eldra­við­töl, sem leið­bein­andi.

Fljótt varð ég vör um að ekki var allt með felldu. Enginn starfs­maður leik­skól­ans hafði leik­skóla­kenn­ara­menntun, það voru engir deild­ar­stjórar, engin úrræði fyrir börn með þroska­skerð­ingar, engin deild­ar­stjóri, þroska­þjálfi eða leik­skóla­stjóri.

Einnig var öryggi ábóta­vant, vegg­hillur illa festar upp svo þær hrundu niður, háir og þungir skápar voru ekki vegg­festir og mörg hús­gögn illa farin og hrein­lega hættu­leg. Engin áætlun um við­brögð við slysum né áföllum.

Við leit­uðum til Reykja­vík­ur­borgar eftir ótal kvart­anir til Didi (Stjórn­anda Sælukots) án nokk­urs árang­urs. Síðan segi ég upp störfum í júní 2016.“ – xxx

„Ég var tví­tug og glæ­nýr starfs­maður og hafði aldrei starfað með börnum áður. Það var mikið álag á 1 árs deild­inni, við vorum bara tvær eða þrjár og börnin voru öll grát­andi, og það voru mikil læti. Við áttum að skipta á bleyjum á börn­unum. Hin stelpan, segir við mig: “Skiptu á þessum!” á meðan hún heldur á grát­andi barni og er að flýta sér að sinna hinum börn­unum. Ég, glæ­nýr starfs­maður sem er að gera mitt besta í þessum aðstæðum, hafði aldrei skipt á kúka­bl­eyju áður, og segi við hana að ég kunni það ekki. Hún gaf mér þá mjög leið­in­legt augna­ráð og varð bara pirruð í staðin fyrir að finna lausn. Miðað við að ég var glæný, tví­tug og hafði aldrei fengið neina kennslu, eng­inn hafði kennt mér skref fyrir skref hvernig á að skipta á kúka­bl­eyju, þá var þetta mjög leið­in­legt. Við vorum a sama aldri og báðar nátt­úru­lega undir miklu álagi og í raun und­ir­mann­aðar, en mér finnst lág­mark að starfs­menn fái ein­hvers­konar kennslu, áður en þeim er hent út í djúpu laug­ina.“

– Starfs­maður sem ekki vill láta nafns síns getið. Vann á Sælukoti í ca tvo mán­uði haustið 2016.

„Ég starf­aði sem leið­bein­andi í Sælukoti frá nóv­em­ber 2020 til júlí 2021.

Ég hafði aldrei unnið á leik­skóla áður og vissi því ekki við hverju ég átti að búast en fannst stefnan hljóma vel og var mjög bjart­sýn á fram­haldið.

Mér var strax á degi eitt hent í djúpu laug­ina án mik­illa fyr­ir­mæla um það hverju var ætl­ast af mér. Ég var sett á deild með 18-24 mán­aða börnum en við vorum þá tveir starfs­menn með 11 börn öll undir tveggja ára aldri, ég sem hafði enga reynslu af leik­skóla­starfi gerði mér ekki grein fyrir því að það væri engan veg­inn í lagi og gerði mitt besta til þess að sinna starf­inu mínu vel. Þar sem við vorum tvö með allt of mörg börn þá voru bleyju­skipti og kló­sett­ferðir starfs­manna erfið þar sem annar starfs­mað­ur­inn neydd­ist til þess að vera einn í her­berg­inu með 10 börn á meðan og slysa­tíðnin því há og mér fannst eins og við höfðum ekki undan því að til­kynna for­eldrum í lok dags.

Áramótin 2020-2021 hætti sam­starfs­maður minn og feng­inn var inn nýr starfs­maður sem ég fékk það verk­efni að þjálfa eftir að hafa starfað á leik­skól­anum í tvo mán­uði. Þá vorum við tveir nýir starfs­menn, annar ennþá í þjálfun með 11 börn í okkar umsjá.

Við vorum báðar óreyndar og vissum ekki hvernig við ættum að skipu­leggja dag­inn með börn­unum og fengum lít­inn sem engan tíma í und­ir­bún­ing vegna mann­eklu og afleys­inga í öðrum verk­efnum.

Þegar við tjáðum okkur við yfir­menn þá fengum við þau svör að við ættum að geta fundið út úr þessu sjálfar.

Ég var svo beðin um að leysa af sam­starfs­fé­laga minn á elstu deild leik­skól­ans síð­asta mán­uð­inn fyrir sum­ar­frí (júní 2020), þegar ég sagði að ég væri ekki nógu örugg með það verk­efni þá upp­lifði ég að þeim áhyggjum væri vísað frá og var full­vissuð um að ég gæti þetta nú alveg. Sam­starfs­maður minn gaf mér allar þær upp­lýs­ingar sem hún gat á mjög stuttum tíma áður en hún fór í frí og svo þurfti ég að redda mér ein með 8 börn á aldr­inum 4-6 ára með lít­illi leið­sögn frá yfir­mönnum. Ég sagði upp eftir þetta vegna mik­illar streitu og álags og mætti ekki aftur eftir sum­ar­fríið í ágúst.

Ég sá svo í fréttum að til­kynnt hafði verið um kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu starfs­manns sem hafði átt sér stað á meðan ég starf­aði á leik­skól­anum. Ég hafði eng­ann grun um málið og finnst mér ofboðs­lega sárt að frétta að þetta sé eitt­hvað sem hafi fengið að við­gang­ast í svona lang­ann tíma og engum starfs­mönnum gert grein fyrir mál­inu sem lætur mig bara hugsa hvað fleira sé í gangi þarna sem við vitum ekki af.“ – Fyrr­ver­andi leið­bein­andi sem ekki vill láta nafns síns getið.

„Ég byrj­aði að vinna á Sælukoti í byrjun júní 2021. Þegar ég kom virt­ist þetta vera mjög fínn leik­skóli og mat­ur­inn var mjög góður en það var oft mik­ill skortur á honum og tíma­skortur að borða. Inni er ekki mikið pláss fyrir börnin og það er frekar troðið. Ég fékk strax hóp af fimm krökkum og engar leið­bein­ingar um hvað ég ætti að gera og hvenær. Ég hafði unnið á leik­skóla áður en ekki allir starfa nákvæm­lega eins. Á öðrum deg­inum mínum tók Didi mig til hliðar og sagði að vinnu­fé­lagar mínir höfðu sagt að ég gerði ekk­ert. Þessu var ég ósam­mála og sagð­ist vera að gera fullt. Einnig var ég skömmuð fyrir að spyrja hvað ég ætti að gera. Ég ákvað að reyna meira á mig þó ég vissi að ég væri að gera mjög mikið á meðan sumir hinna kenn­ar­ana gerðu ekk­ert. Í hópnum mínum var mjög erf­iður strákur sem ég réði ekki við. Ég sagði Didi það að ég væri mjög fín­gerð, að strák­ur­inn væri mjög stór fyrir sinn aldur, og ég bað um að ein­hver annar myndi skipta á þessum eina strák. Það var hunsað. En þegar ég fór heim með klór­för eftir hann og ítrek­aði það sem ég hafði sagt áður sagði hún að ég ætti að hætta við leik­skóla­kenn­ara námið mitt því ég gæti ekki ráðið við einn strák, og að ég væri ekki eðli­leg fyrir að segja þetta. Við vorum venju­lega 3 með 15 eins til tveggja ára krakka. Þetta var á fimmta deg­inum mínum og þá hætti ég.“ – xxx

Ummæli for­eldra:

„Dreng­ur­inn okkar byrj­aði á Sælukoti haustið 2018. Margt af starfs­fólk­inu var fram­úr­skar­andi og vann gott starf en við skiptum um leik­skóla haustið 2021 eftir ásak­anir barns á hendur starfs­manns vegna ofbeldis. Einnig þótti okkur óvið­un­andi hvernig málin voru afgreidd og hvernig upp­lýs­ingum var haldið leyndum.

Virð­ing­ar­fyllst,“ – xxx og xxx

„Dóttir mín var í 16 mán­uði á Sælukoti. Fyrsta 8 mán­uð­irnir gengu vel, hún var yfir höfuð ánægð, við vorum ekki alveg eins ánægð enda kom hún oft heim brennd á rass­inum, með bit eða kúlur og mar en eng­inn vissi hvað hafði gerst en við ákváðum að líta fram­hjá því þar sem henni leið vel. Það var þó sein­ustu mán­uð­ina fyrir sum­ar­frí sem hún fór að haga sér und­ar­lega og gera und­ar­lega hluti (lík­am­lega hluti þar sem orða­forð­inn var enn tak­mark­aður – aðrir í okkar nærum­hverfi tóku eftir þessu og sumir höfðu meiri segja orð á því að fyrra bragði) sem við höfðum ekki haft fyrir henni. Á þeim tíma var hún á deild með þeim leið­bein­andi sem í dag er ásak­aður um áreiti gagn­vart öðru barni. Didi vildi ekki kann­ast við að þetta væri frá þeim þegar ég ræddi við hana og sagði að þetta hlyti að koma frá okkur og hvernig við værum að ala hana upp.

Eftir sum­ar­frí fór allt á hlið­ina og barnið mitt breytt­ist úr ynd­is­legu ljúfu stelp­unni minni í mjög dapra og leiða stelpu og hún var stöðugt í vörn. Hun var stöðugt reið, leið og átti almennt mjög erfitt. Ég óskaði ítrekað eftir fundi með leið­bein­anda og Didi en fékk ekki, en eftir mikið þras fékk ég hann en þá var leið­bein­and­inn í fríi þann dag (eins og alla föstu­daga – ég var ekki ein um að lenda í þessu) en í stað­inn fékk ég her­sveit ann­arra yfir­manna þar sem ég var tekin niður, þetta var allt mér að kenna og hvernig ég tók á hlut­unum heima. Ég komst að því í gegnum aðra móður að það væri vanda­mál inni á deild­inni og þar væri barn sem ætti erfitt (þyrfti því mikla athygli) en það var aldrei rætt við mig og þegar ég spurði beint út í það þá var mér sagt að það væri verið að vinna í þessu en ég fékk ekki að vita hvernig eða hvernig eg ætti að vinna með dóttir minni. Það var mynd­band sett á instagram síðu skól­ans þar sem sést greini­lega hversu ömur­lega dóttir minni (og fleiri börnum) leið þegar hitt barnið tók öll völd inni á deild­inni en starfs­menn­irnir hlógu bara og léku með, þannig að það var greini­lega ekki verið að tækla neitt á þeim tíma.

Ég sótti um flutn­ing og fékk hann í des­em­ber 2020. Síðan þá hefur hún umbreyst og er aftur orðin káta og ynd­is­lega stelpan mín, hvað gerð­ist þarna inni það veit ég ekki en ég myndi aldrei senda barn þangað.“ – xxx

„Eldri dóttir mín byrj­aði á Sælukoti í jan­úar 2019. Ég var fyrst mjög ánægð með leik­skól­ann og fannst starfs­fólkið frá­bært. Fljót­lega fóru þó að renna á mig tvær grímur. Dóttir mín kom bleyju brunnin heim trekk í trekk og ég fór að halda henni heima þar til að hún kúkaði á morgn­ana því það var greini­lega ekki skipt á henni á leik­skól­anum fyrr en eftir dúk og disk. Núna eftir á sé ég að það var vænt­an­lega út af miklu álagi starfs­fólks þar sem það var mjög mikil und­ir­mönnun.

Þegar dóttir mín var tveggja ára var hún á deild þar sem aðeins ein sextán ára gömul stúlka vann og bar ábyrgð á deild­inni.  Þegar ég mætti til að sækja dóttir mína, voru börnin stundum ein ef hún var að skipta á barni eða ef hún þurfti að skreppa fram.

Dóttir mín kom oft heim með áverka, kúlur á höfði eða bit­för og þegar ég spurði út í það á leik­skól­anum mundi eng­inn eða sá eng­inn hvað hafði gerst. Einn dag­inn stóð dóttir mín ekki í lapp­irnar og gat ekki gengið nema með­fram hús­gögnum ég fór með hana á Barna­spít­al­ann og þar var ég spurð hvort hún hafði fengið höf­uð­högg. Þá kom í ljós að hún hafði fengið höf­uð­högg á leik­skól­anum en eins og áður hafði eng­inn látið okkur vita.

Þegar stelpan mín er ný orðin 3 ára eða í sept­em­ber 2020 greinir hún óljóst frá kyn­ferð­is­of­beldi starfs­manns á leik­skól­anum. Þetta var til­kynnt til Barna­vernd­ar­nefndar Reykja­vík­ur­borgar. Rekstr­ar­að­ili leik­skól­ans tekur það í sínar hendur að yfir­heyra barnið mitt ásamt túlki og lætur mig ekki vita fyrr en eftir á og greinir mér frá því að nið­ur­staða hennar sé að dóttir mín hafi dreymt þetta allt saman. Við for­eldr­arnir förum á fund með henni þar sem við ákváðum að þessi starfs­maður ætti ekki að umgang­ast barnið okkar. Samt greinir dóttir mín mér frá því að rekstr­ar­að­ili leik­skól­ans hafi látið hana sætt­ast við mein­tan ger­anda sinn og látið þau knús­ast. Það fékk gríð­ar­lega mikið á dóttur mína og var hún í miklu upp­námi eftir að hún sagði mér frá því. Seinna kemst ég að því að meintur ger­andi er í afleys­ingum á deild­inni hennar og með henni í úti­veru.

Ári seinna kemur önnur frá­sögn um umræddan starfs­mann frá dóttur minni og þá mun skýr­ari. Ég til­kynni málið til Barna­vernd­ar­nefndar og held henni heima í kjöl­farið þangað til hann er loks­ins sendur í leyfi. Á meðan hann er í leyfi hringir rekstr­ar­að­ili leik­skól­ans reglu­lega í mig til að athuga hvenær hann megi mæta aftur í vinnu og segir mér frá því hvað hann sé þung­lyndur yfir þessu. Hún sendir mér svo email á meðan hann er í leyfi til að biðja mig um að gefa sam­þykki fyrir því að hann fái að mæta á sum­ar­há­tið leik­skól­ans þar sem við dóttir mín myndum verða.

Strax eftir sum­ar­fríið er hann mættur til vinnu og ég fæ að heyra það frá nýjum leik­skóla­stjóra að hann fái ekki að vera einn í kringum börnin. Samt er ég að heyra frá öðrum for­eldrum að hann sé á sama tíma einn að taka á móti börnum á morgn­ana.

Ég ákveð að taka börnin mín alfarið úr leik­skól­anum og upp­lifði að dætur mínar væru engan veg­inn öruggar þarna lengur.

Í gegnum þetta ferli var tekið kol­rangt á öllum málum. Meintur ger­andi er ekki lát­inn fara fyrr en ég greini hinum for­eldr­unum frá því sem átti sér stað í ágúst mán­uði síð­ast­liðnum. Rekstr­ar­að­ili sagð­ist einnig hafa talað við starfs­fólkið sitt og eng­inn hafði tekið eftir neinu óvenju­legu í garð þessa starfs­manns, en núna löngu síðar er ég að heyra að starfs­fólkið var ekki upp­lýst um þennan grun og frá­sagnir dóttur minnar. Það lítur því út fyrir að rekstr­ar­að­ili leik­skól­ans hafi hrein­lega logið því að mér og Barna­vernd­ar­nefnd að rætt hafi verið við starfs­fólkið.

Það síð­asta sem fyllti algjör­lega mæl­inn hjá mér var að rekstr­ar­að­il­inn sýndi for­eldrum barna á leik­skól­anum trún­að­ar­skjöl frá Barna­vernd­ar­nefnd sem inni­héldu nákvæma lýs­ingu af annarri frá­sögn dóttur minnar sem er hennar einka­mál. Þetta er algjört brot á per­sónu­vernd og skýrt brot á rétti barns­ins.“ – xxx

„Dóttir mín byrj­aði á Sælukoti í mars 2020, þá 13 mán­aða gömul. Við vorum því ein af þeim fyrstu til að byrja í nýstofn­aðri ung­barna­deild við leik­skól­ann.

Aðlög­unin gekk hálf brös­ug­lega. Leik­skóla­kenn­ar­inn sem átti að stýra deild­inni var fjar­ver­andi vegna starfs­náms og þeir starfs­menn sem eftir voru virt­ust ansi óör­uggir um hvernig aðlög­unin ætti að fara fram. Sem betur fer kom eldri starfs­maður yfir af annarri deild og þá fór að ganga betur. Það sem vakti athygli mína var að inni í rým­inu þar sem ung­barna­deildin var starf­rækt voru leik­föng og leik­tæki sem hent­uðu ekki svona ungum ald­urs­hópi. Í ofaná­lag voru þau látin leika úti á leik­vell­inum sem ætl­aður var fyrir eldri börn leik­skól­ans. Vegna þessa komu oft upp óhöpp sem hefði vel mátt koma í veg fyrir ef við­eig­andi leik­völlur væri til staðar. Eftir nán­ari eft­ir­grennslan komst í ljós að leik­skól­inn hafði ekki enn verið tek­inn út af yfir­völdum fyrir rekstur ung­barna­deildar, en það kom þó ekki í veg fyrir að starf­semin hafi farið í gang -sem vekur upp þó nokkrar spurn­ingar um eft­ir­lit með starf­semi einka­rek­inna leik­skóla.

Þess má þó geta að Sælukot hóf fram­kvæmdir ein­hverju eftir opnun ung­barna deild­ar­innar við að byggja nýjan lít­inn ung­barna­leik­völl fyrir framan leik­skól­ann sem hentar yngri ald­urs­hóp. Um leið og búið var að leggja kork mottur á jörð­ina og á meðan leik­völl­ur­inn var í upp­bygg­ingu, voru yngri börnin flutt af stóra leik­vell­inum og látin taka úti­ver­una á þessum ung­barna­leik­velli þrátt fyrir að nán­ast engin leik­tæki voru á staðnum. Þetta milli­bils­á­stand var því ansi sorg­legt fyrir börnin.

Tíminn sem dóttir mín var á Sælukoti var mjög mikil rús­sí­ban­areið. Við áttum góð tíma­bil en líka krefj­andi. Það tók hana langan tíma að aðlag­ast á leik­skól­anum og hún var lengi óör­ugg, en það gæti að sjálf­sögðu verið per­sónu­bundið. Yfir allt fyrsta árið hennar á leik­skól­anum brennd­ist hún oft á bleyju­svæði og því fylgdi mik­ill sárs­auki. Á þessu tíma­bili var heldur ekki hirt mikið um að þrífa börnin í and­liti þannig að oftar en ekki kom hún heim með mat­ar­slettur og storknað hor út um allt and­lit. En nú eftir á, sér maður að ástæðan fyrir þess­ari slæmu umhirðu er lík­lega sú að mann­ekla er svo mikil að ekki gefst tími fyrir starfs­fólk að hirða um hrein­læti barn­anna né að skipta um bleyjur – sem er að mínu mati mjög alvar­legt ástand. Ég lagði inn kvörtun vegna þessa og rekstr­ar­að­ili leik­skól­ans var mér sam­mála um að þetta væri ekki boð­legt.

Á fyrsta árinu hennar flutt­ist hún þrisvar um deild, sem er ansi oft á stuttum tíma fyrir lítil börn sem þurfa stöð­ug­leika. Á deild nr. tvö af þrjú var hún með kenn­ara sem við tengdum aldrei við og ég varð vitni að því eitt sinn hversu hrana­legur hann var við börnin. Annað skipti þegar ég sótti dóttur mína og var með hana í fang­inu læsti hún fingr­unum í axl­irnar á mér við það eitt að hann gekk fram hjá okkur. Og þetta var ein­stak­ling­ur­inn sem var með barnið okkar í umsjón alla daga. Hún var dapr­ari en við áttum að venj­ast á þessu tíma­bili sem hún var í umsjón þessa kenn­ara, einnig fór hún að sofa illa og hún sýndi mik­inn mót­þróa við bleyju­skipti -sem hafði aldrei áður verið vanda­mál. Þessi kenn­ari var síðar rek­inn og höfum við ekki fengið útskýr­ingar á af hverju.

Sem betur fer var dóttir mín að lokum flutt á deild hjá öðrum leik­skóla­kenn­ara, sem var ynd­is­leg í alla staði og stóð sig svo vel gagn­vart börn­unum. Þessi leik­skóla­kenn­ari tók einmitt eftir mót­þróa dóttur okkar við bleyju­skipti en eftir að hún var búin að vinna upp traust fór það að ganga betur. Eftir væg­ast sagt erfitt fyrsta ár var dóttir mín loks­ins komin í góðar hendur og ánægð að fara í leik­skól­ann. Hún var ekki lengur að koma brennd heim á bleyju­svæði. Því miður gafst þessi frá­bæri leik­skóla­kenn­ari svo upp að lokum við að starfa hjá Sælukoti og sagði upp. Þess vegna fluttum við barnið okkar á annan leik­skóla og gætum ekki verið ánægð­ari með þá ákvörðun.

Eftir að hafa fengið inn á öðrum leik­skóla, komst þetta kyn­ferð­is­brota­mál á yfir­borðið er varð­aði starfs­mann Sælukots, ein­vörð­ungu vegna þess að for­eldri þess barns vakti athygli á mál­inu við aðra for­eldra. Annars hefði maður vænt­an­lega aldrei vitað af þessu máli. Versta er að þessi starfs­maður sem um ræðir sá um dóttur okkar á fyrstu deild­inni sem hún var á í nokkra mán­uði.

Nauð­syn­legt er fyrir for­eldra barna á leik­skóla þar sem svona mál koma upp að vera upp­lýst taf­ar­laust. Upp vakna svo miklar áhyggjur, sér­stak­lega varð­andi fyrsta árið hennar á leik­skól­anum; þ.e. þegar hún var í umsjón þessa til­tekna starfs­manns sem sak­aður er um kyn­ferð­is­brot gegn barni og síðan þessa starfs­manns sem við höfðum ekki góða upp­lifun af og varð síðar rek­inn. Maður spyr sig hrein­lega: Ef sá sem er grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn barni er ekki rek­inn, hvað gerði þá þessi starfs­maður sem var rek­inn? Nauð­syn­legt er að skoða starf­semi þessa leik­skóla í þaula, halda for­eldrum upp­lýstum um gang mála og þá loka leik­skól­anum ef svo ber undir.“ – Foreldri sem vill ekki láta nafns síns getið.

„Sonur okkar byrj­aði á Sælukoti haustið 2019.

Ég mætti með honum í aðlög­un­ina, ég fékk ekk­ert aðlög­un­ar­prógram til að fylgja eftir, eng­inn starfs­maður sem tók á móti okkur og reyndi að ná til hans eða kynn­ast honum. Fyrsta dag­inn sem hann átti að mæta einn leið mér hræði­lega að skilja hann eftir því að aðlög­unin hafði ekki gert neitt fyrir hann. Hann grét alla daga þegar ég skyldi hann eftir. Lítið sem ekk­ert sam­tal á milli for­eldra og starfs­manna.

Eitt skipti þegar ég sótti hann á leik­skól­ann var hann aleinn úti fyrir framan húsið, engir aðrir krakkar og eng­inn starfs­maður með honum. Hann var hágrát­andi og var að reyna að ná athygli stærri krakka hinu megin við girð­ing­una inni á leik­svæð­inu. Ef eitt­hvert for­eldri hefði gleymt að loka hlið­inu hefði hann getað verið horf­inn eða farið út á götu. ENGINN TÓK EFTIR ÞVÍ AÐ HANN VAR HORFINN. Ég veit ekk­ert hvað hann var búinn að vera lengi einn úti en hann var alla­vega útgrát­inn þegar ég mætti á svæðið.

Eftir þetta fengum við for­eldr­arnir fund með Didi þar sem hún baðst hálf­vegis afsök­unar og sagði að það yrði fylgst vel með því að hann hyrfi ekki  svo bað hún okkur um að ræða við dreng­inn að hann mætti ekki láta sig hverfa. Eins og þetta væri á ábyrgð tveggja ára barns.

Sonur minn þró­aði með sér kúka­vanda­mál á þessum leik­skóla líka. Hann vildi aldrei kúka því að það væri “ojj” svo hann hélt í sér svo dögum skipti. Það var aug­ljóst að ein­hver starfs­maður hefur greini­lega “shame-að“ kúk það mikið að barnið ákvað að hætta að kúka. Hann var alltaf að drep­ast í mag­anum útaf þessu. Ég ræddi það mál við þau en þau vildu ekki kann­ast við neitt. Það lag­að­ist svo ekki fyrr en nokkrum mán­uðum eftir að hann byrj­aði á nýja leik­skól­anum. Eftir að hann skipti um leik­skóla hefur hann bara verið allt annað barn. Miklu miklu ham­ingju­sam­ari. Hann hætti í febr­úar 2020.“ – xxx

„Við byrj­uðum með barnið okkar 13 mán­aða í aðlögun á Sælukoti í jan­úar 2020. Áður en við byrj­uðum þótti okkur sam­skipti við stjórn­anda leik­skól­ans heldur snubb­ótt en skrif­uðum það á menn­ing­ar­mun og tungu­mála­örð­ug­leika. Við höfðum legið yfir heima­síðu skól­ans sem var afar óað­gengi­leg og kom­ist að því að mikil áhersla væri lögð á virð­ingu gagn­vart börn­unum. Það, ásamt matar­æði og stað­setn­ingu leik­skól­ans, var stór plús í okkar huga svo við vorum spennt að byrja með barnið okkar þarna. Þegar við komum inn á deild­ina mættu okkur 14 börn á aldr­inum 12-18 mán­aða og tveir starfs­menn, aðeins annar tal­aði íslensku og hvor­ugur var fag­lærður. Þrátt fyrir að starfs­fólkið gerði aug­ljós­lega sitt besta sáum við að yfir­lýs­ingar um húman­isma og virð­ingu voru aðeins á blaði og starfs­menn áttu fullt í fangi með að sinna grunn­þörfum barn­anna, hvað þá meira, það virt­ist lítil teng­ing vera við börnin. Við urðum end­ur­tekið vitni að því að starfs­maður sem var að skipta á börnum var með 3-4 börn (1 árs) uppi á ca met­ers háu vinnu­borði og skildi þau svo eftir þar á meðan hún fór fram. Einnig kom fyrir að börn meiddu sig eða álíka og sátu/lágu grát­andi í ein­hverjar mín­útur áður en starfs­maður gat sinnt þeim. Við urðum svo vitni að því að stjórn­and­inn hastaði á þessi litlu kríli fyrir að gráta og „bann­aði“ þeim að gráta meira. Hún hastaði m.a. harka­lega á son okkar fyrir að gráta í eitt af fyrstu skipt­unum sem pabbi hans skildi hann eftir inni á deild (hún vissi ekki að pabb­inn heyrði til). Of fáir starfs­menn, örygg­is­mál, slæm fram­koma og algjör skortur á fag­mennsku urðu til þess að við ákváðum að taka barnið okkar af leik­skól­anum.“ – xxx og xxx

„Við byrj­uðum með eldri stelpuna okkar a Sælukoti fyrir 3 arum. Hún var 18 mán­aða og er nu 4.5 ars. Þegar stelpan byrj­aði var leik­skól­inn æðis­legur fannst mer. Ég hafði mikið traust til allra. Strák­ur­inn okkar byrj­aði þegar 12 mán­aða prógram­mið bætt­ist við hjá þeim. Eftir að 12 mán­aða prógram­mið byrj­aði virt­ist allt fara a hvolf, lítið starfs­fólk, alltof mörg börn og almenn óanægja og óregla. Stelpan mín átti langt tíma­bil af að kúka á sig á leik­skól­anum 4 ára. Ég hugs­aði oft hvort væri ástæða fyrir þessu, kannski liði henni ílla. Seinna frétti ég af afbrota mál­inu og sá aðili var með hóp dóttur minnar mikið á þessum tíma. Strák­ur­inn minn neit­aði að láta aðilan taka á móti sér á morgn­ana. Eg vissi aldrei hvers vegna. Einn dag­inn tók ég eftir miklu kyrk­ingar fari aftan á hálsi dóttur minnar. Það var undir hár­inu hennar og virt­ist hafa verið orðið skorpið eins og eftir smá blóð. Mér brá mikið og skoð­aði allan hring­inn en línan lá frá hlið til hliðar aftan á háls­inum, dökk rauð. Ég tók myndir og málið var ekki tekið sem alvar­legum hlut af rekst­ar­stjóra. Ég tal­aði við allt starfs­fólkið en eng­inn þótt­ist vita hvað hefði gerst. Enda börnin mikið ein. Allt besta starfs­fólkið virt­ist hverfa án slóðar og eng­inn lát­inn vita hver væri með börn­unum hvenær. Ég var á miklu varð­bergi eftir þetta og við skiptum um leik­skóla í ágúst 2021.“ – xxx

„Barnið okkar var á Sælukoti frá 2020-2021. Deildin sem það var á var und­ir­mönnuð og manna­skipti á henni voru mjög tíð sem hafði mikil áhrif á vellíðan barns­ins. Það vildi ekki fara á leik­skól­ann vegna þess að því leið ekki vel þar vegna mik­ils óstöð­ug­leika. For­eldrar voru aldrei upp­lýstir um manna­skipti. Barnið brann oft, það var ekki lagað þrátt fyrir ítrek­aðar kvart­anir. Barnið er með fæðu­ó­þol, en fékk áfram mat­inn sem það var með óþol fyrir sem olli því að það var oft með nið­ur­gang. Sumt af starfs­fólk­inu tal­aði ekki íslensku og tal­aði ensku við barnið, það hafði hugs­an­leg áhrif á mál­þroska barns­ins sem virð­ist hafa taf­ist. Sá starfs­maður sem mat mál­þroska barns­ins tal­aði ekki íslensku.“ – For­eldrar sem vilja ekki láta nafns síns getið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meirihlutanum: „Borgarstjórnin er ekki sérlega vel mönnuð“
InnlentReykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meiri­hlut­anum: „Borg­ar­stjórnin er ekki sér­lega vel mönnuð“

Egill Helgason hefur litla trú á nýjum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum sem kynnt verður í dag. Fjöl­miðla­mað­ur­inn víð­lesni, Egill Helgason skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann óskar nýjum meiri­hluta í borg­inni vel­farn­aðar en seg­ist um leið ekki hafa mikla trú á henni. Segir hann að borg­ar­stjórnin sé ein­fald­lega ekki vel mönnum og að hæfi­leika­fólk lað­ist ekki að setu í borg­inni. Spáir hann...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
Innlent

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Árshátíð borgarstjórnar kostaði Reykvíkinga tæpar tvær milljónir króna
InnlentReykjavíkurborg

Árshátíð borg­ar­stjórnar kost­aði Reyk­vík­inga tæpar tvær millj­ónir króna

Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn kost­aði borg­ar­búa rúm­lega 1,8 millj­ónir króna. Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur var haldin með pompi og prakt á Kjar­vals­stöðum þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá borg­inni voru 91 gestur á hátíð­inni. Borgaði hver um sig 9.500 krónur í aðgangs­eyri, jafnt makar sem aðrir gestir. Eft­ir­stand­andi kostn­aður vegna hátíð­ar­innar hljóð­aði upp á 1.806.301 króna...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
Innlent

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Glittir í aðgerðaráætlun varðandi heimilisleysi: „Borgin er í mikilli skuld í þessum málaflokki“
InnlentReykjavíkurborg

Glittir í aðgerð­ar­á­ætlun varð­andi heim­il­is­leysi: „Borgin er í mik­illi skuld í þessum mála­flokki“

Stefán Pálsson segir Reykja­vík­ur­borg í mik­illi skuld við heim­il­is­lausa en nú glitti í betri tíð í þeim mála­flokki. Sagn­fræð­ing­ur­inn og vara­borg­ar­full­trú­inn Stefán Pálsson segir að borg­ar­stjórn Reykja­víkur sé við það að sam­þykkja aðgerð­ar­á­ætlun í mál­efnum heim­il­is­lausra. Segir hann borg­ina vera í milli skuld við mála­flokk­inn en að gangi áætl­unin eftir verði staðan miklu betri í náinni fram­tíð. „Í borg­ar­stjórn erum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins