„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dr. Skúli fékk víst starfsleyfi – Rannsakaður af lögreglu en fær að vinna næstu 12 mánuði

Dr. Skúli fékk víst starfsleyfi – Rannsakaður af lögreglu en fær að vinna næstu 12 mánuði
Alma Möller veitti Dr. Skúla nýverið starfs­leyfi til næstu 12 mán­uða

Dr. Skúli Tómas Gunn­laugs­son, sem Mannlíf hefur margoft fjallað um vegna lög­reglu­rann­sóknar á meintum brotum hans í starfi, mörg hver grafal­var­leg, fékk end­ur­nýjun á starfs­leyfi sínu hjá Land­lækni Íslands, Ölmu Möller.

Áður hafði Mannlíf sagt frá því að hann hefði ekki fengið fram­leng­ingu á starfs­leyfi sínu en nafn hans kom ekki fram er það var sett inn í starfs­leyfa­leit á vef­síðu Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins síð­ast­lið­inn föstu­dag, dag­inn sem starfs­leyfi Dr. Skúla rann út. Nafnið var komið inn í dag.

Um er að ræða „tíma­bundið starfs­leyfi“ næstu 12 mán­uð­ina en Dr. Skúli er til rann­sóknar fyrir alvar­leg brot í starfi yfir­læknis HSS. Er hann meðal ann­ars grun­aður um að vera valdur að dauða að minnsta kosti eins sjúk­lings, Dönu Jóhann­es­dóttur sem hann setti á lífsloka­með­ferð þegar hún hélt hún væri að koma í hvíld­ar­inn­lögn. Hún dó 11. vikum síðar. Var hún alvar­lega vannærð, með þvag­fara­sýk­ingu sem ekki var með­höndluð og með alvar­leg legu­sár sem að sama skapi voru ekki með­höndluð almenni­lega. Partur af eyra hennar datt af vegna legusárs.

Eins og áður hefur komið fram í fréttum Mannlífs af mál­inu, gaf Alma Möller, land­læknir álit sitt á mál­inu þegar eftir því var óskað hjá ætt­ingjum Dönu. Var álit Ölmu algjör áfell­is­dómur yfir störf Dr. Skúla og því með ólík­indum að hún hafi veitt honum starfs­leyfi að nýju. Hér eru brot úr áliti Ölmu Möller:

„Þvert á móti virð­ist áhersla með­ferðar fyrst og fremst hafa verið á að bæla og slæva og hvers kyns eft­ir­liti með ástandi hennar eða lífs­uppi­hald­andi með­ferð hætt. Þetta hafði þær afleið­ingar að mati land­læknis að í ell­efu vikna langri legu hrak­aði DJ; hún var með legu­sár, nær­ing­ar­skort og sýk­ingar allt fram til and­láts­ins, sem verður að telja lík­legt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar með­ferðar sem hún hlaut.“

Þá sagði hún í loka­orðum sínum eft­ir­far­andi orð:

„Embættið telur að ekki hafi aðeins verið um að ræða mis­brest á almennri fag­mennsku við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu til DJ, heldur hafi í ákveðnum til­vikum einnig verið um að ræða alvar­lega van­rækslu og mis­tök STG læknis, sem bar meg­in­á­byrgð á lækn­is­fræði­legri með­ferð DJ.“

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið aðal dán­ar­or­sök“
Sjá einnig: Þögnin rofin – Land­læknir svarar spurn­ingum Mannlífs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins