„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lækna-Tómas hraunar yfir Áslaugu og Þórdísi:„Ráðherrar mega ekki berja í falskar pólitískar bumbur“

Lækna-Tómas hraunar yfir Áslaugu og Þórdísi:„Ráðherrar mega ekki berja í falskar pólitískar bumbur“
Tómas Guð­bjarts­son læknir.

Hjarta­skurð­lækn­ir­inn Tómas Guð­bjarts­son er ekki sáttur með mál­flutn­ing ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þeirra Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra og Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, iðn­aðar- og ferða­mála­ráð­herra. Þær vilja afnema allar Covid-tak­mark­anir hér á landi, í nafni ein­stak­lings­frelsis, en yfir­lækn­ir­inn segir ráð­herrana berja í falskar póli­tískar bumbur.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Skoðun Tómas kemur fram í aðsendri grein á Vísi. Hann segir orðum fylgja ábyrgð og bendir á að veru­lega slæm staða sé á Land­spít­al­anum, sem þyngis með hverjum deg­inum. Við skulum gefa hjarta­lækn­inum orðið:

„Í snú­inni fimmtu bylgju Covid hefur oft verið kallað eftir fyr­ir­sjá­an­leika, ekki síst frá sam­tökum atvinnu­lífs­ins og vissum stjórn­mála­mönnum. Nýlega köll­uðu tveir ráð­herrar eftir því að allar Covid-tak­mark­anir yrðu afnumdar hér á landi – allt í nafni ein­stak­lings­frelsis. Ráða­góður Þórólfur fékk ómak­lega gagn­rýni, en hann, líkt og og und­ir­rit­aður, vör­uðu við aflétt­ingum, ekki síst með við­kvæma stöðu Land­spít­ala í huga,“ segir Tómas og heldur áfram:

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir ráð­herra. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

„Til allrar ham­ingju voru landa­mæri okkar ekki opnuð upp á gátt, en því miður var látið undan miklum þrýst­ingi ýmissa hags­muna­að­ila og öðrum tak­mörk­unum aflétt of hratt. Afleið­ing­arnar blasa nú við í sögu­lega hárri tíðni Covid-sýk­inga. Land­spít­ali er enn og aftur kom­inn á hættu­stig, gjör­gæslu­deildir spít­al­ans fullar upp í rjáfur og staðan bæði á smit­sjúk­dóma- og lungna­deild mjög þung – og þyng­ist dag­lega.“

Nú sé svo komið hér á landi að há smitt­tíðni Covid-19 end­ur­speglist í því að önnur ríki vari við ferða­lögum til Íslands. Tómas spyr hvort það sé raun­veru­lega fyr­ir­sjá­an­leik­inn í ferða­þjón­ust­unni sem Áslaug og Þórdís óski eftir.

„Það verður að telj­ast skrítið að ráð­herrar skuli stíga fram undir for­merkjum ein­stak­lings­frelsis og afnema tak­mark­anir sem eru nauð­syn­legar og settar á með mannúð og hags­muni heild­ar­innar að leið­ar­ljósi. Skoð­ana­skipti eiga vissu­lega rétt á sér, en ráð­herrar verða að gæta orða sinna og var­ast að berja í falskar póli­tískar bumbur. Skynsemi er nefni­lega merki­lega fyr­ir­sjá­an­leg,“ segir Tómas.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins