Áhrifavaldurinn, baráttukonan og crossfit-stjarnan Edda Falak hefur komið að stað risabylgju meðal Íslendinga þegar kemur að líkams- og sjálfsvirðingu. Á samfélagsmiðlinum Twitter biður hún alla um að senda sér svokallaðar speglamyndir og rignir yfir hana myndunum:

„Þér má alveg finnast þú SÆT! MÁ ÉG SJÁ SKVÍSUR Í SPEGLI!“
Ýmsar orrusturnar eru háðar á Twitter, eins og þekkt er í samfélagsumræðu nútímans. Ekki skal þó vanmeta mátt pizzunnar og þær deilur sem einfaldar staðhæfingar þeim að lútandi geta valdið. Edda reið á vaðið í gær með eftirfarandi staðhæfingu á Twitter: „Piparostur á pizzu og mexico ostur í pasta er gjörsamlega siðlaust og ógeðslegt.“ Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Hið sama má segja um þessa nýjustu bylgju baráttukonunnar því þegar þetta er ritað höfðu hátt í hundrað speglamyndir borist henni frá Íslendingum. Hér fyrir neðan koma nokkur dæmi:


























Athugasemdir