„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Blóðbað í barnaherberginu – Stakk fjögur börn sín til bana

Blóðbað í barnaherberginu – Stakk fjögur börn sín til bana

„Kennari að nafni Wagner bil­að­ist fyr­ir­vara­laust á geði í Mühlhausen í gær. Brjál­æð­ing­ur­inn byrj­aði á að stinga eig­in­konu sína og fjögur börn til bana, síðan fór hann, vopn­aður skamm­byssu, í hjarta bæj­ar­ins þar sem hann bar eld að nokkrum húsum.“
Þannig hefst frétt í The New Zealand Herald, 8. sept­em­ber árið 1913.
Umræddur maður hét Ernst August Wagner. Hann fædd­ist í Eglos­heim, skammt frá Ludwigsburg í suð­ur­hluta Þýska­lands, árið 1874. Faðir Wagners var bóndi, hávær og gef­inn fyrir sopann, af móður Wagners segir fátt annað en að hún hafi verið helst til lauslát.

Góðum gáfum gæddur

Þegar Wagner var tveggja ára lést faðir hans, móðir hans gift­ist á ný en það hjóna­band rann sitt skeið þegar Wagner var sjö vetra.
Af hinum unga Wagner er það að segja að hann þótti gáf­aður með afbrigðum og að loknu grunn­skóla­námi fékk hann styrk til kenn­ara­náms. Bók­menntir áttu hug hans allan og í frí­tíma sínum orti hann ljóð.

Kenn­ar­inn 1909 Ernst August Wagner þótti afburða­gáf­aður.

Wagner var afleys­inga­kenn­ari í nokkrum skólum í Württemberg árin 1894-1901 en þá fékk hann fast­ráðn­ingu í Mühlhausen an der Enz.

Afdrifaríkur ölæðisgjörningur

Sagan segir að ein­hvern tím­ann, sum­arið 1901, hafi hann í ölæði níðst kyn­ferð­is­lega á ein­hverri skepnu. Hvers kyns skepnu fylgir ekki sög­unni. Nú, í kjöl­farið ótt­að­ist hann að þorps­búar kæmust að verkn­að­inum og að lokum fannst honum sem, hvert sem hann fór og hvar sem hann var staddur í Mühlhausen, að fólk hefði hann að háði og spotti vegna dýra­níðs­ins. Wagner keypti sér sína fyrstu byssu.
Hvað sem þessu leið þá hóf Wagner ást­ar­sam­band við Önnu Friedericke Schlecht, dóttur eig­anda öld­ur­húss í þorp­inu. Anna varð barns­haf­andi vorið 1902 og í des­em­ber sama ár lést móðir Wagners. Hann flutti til Radelstetten, afskekkts þorps, og þótt honum fynd­ist það ótta­legt skíta­pláss þá varð dvölin þar til þess að draga úr ofsóknaræði hans vegna dýra­níðs­ins.

Tvær sjálfsvígstilraunir

Vegna þrýst­ings af hálfu fjöl­skyldu Önnu kvænt­ist Wagner henni í des­em­ber 1903, enda var dóttir þeirra þá orðin 10 mán­aða. Næstu árin eign­uð­ust hjónin fjögur börn og varð þremur þeirra lífs auðið.
Wagner elskaði ekki eig­in­konu sína, honum fannst hún standa honum langt að baki hvað vits­muni áhrærði og umgekkst hana fremur sem hjú en eig­in­konu. Einnig fannst honum börnin vera byrði, fjár­hags­leg og and­leg.
Um sum­arið 1904 fór Wagner til Sviss og var greini­lega ekki í góðu ástandi því hann gerði þar tvær til­raunir til sjálfs­vígs, en tókst sem sagt ekki því hann var, að eigin sögn, „of veik­geðja“.

Wagner vopnvæðist

Það var síðan árið 1906 eða 1907 sem hann taldi að fennt hefði yfir ölæð­is­verknað hans með óskil­greindu skepn­unni, en þess í stað skaut í huga hans rótum hefnd­ar­fýsnar gagn­vart þeim sem hann taldi orsök allrar eymdar hans, einkum og sér í karl­mönnum í Mühlhausen.

Morð­ing­inn 1913 Wagner óskaði sér dauða­dóms og aftöku.

Wagner keypti sér Mauser C96-skamm­byssu árið 1907 og síðan aðra eins árið 1909. Í nágrenni þorps­ins og skógum þar í kring æfði hann skot­fimi af miklu kappi. Allan þennan tíma hafði hann starfað sem kenn­ari og í maí 1912 fékk hann stöðu sem kenn­ari við skóla í Degerloch, í úthverfi Stutt­gart.

Myrt í morgunsárið

Hug­myndin um hefnd kraum­aði í huga Wagners og styrkt­ist enn frekar þegar hann taldi sig sjá þess merki að nýir vinnu­fé­lagar „vissu“ um for­tíð hans. Undir lok sum­ar­leyfis 1913 ákvað hann að láta til skarar skríða og dag­ana fyrir morðin skrif­aði hann nokkur bréf þar sem hann útskýrði ástæð­urnar fyrir þeim ódæðum sem í vændum voru.
Sem fyrr segir voru eig­in­kona Wagners og fjögur börn fyrstu fórn­ar­lömbin. Um klukkan fimm að morgni 4. sept­em­ber, 1913, rot­aði hann Önnu með tjakki og gekk síðan til verks með rýt­ingi. Stakk hann Önnu ótal sinnum í háls og bringu, þannig að slag­æðar skár­ust í sundur.
Síðan fór Wagner inn í her­bergi barna sinna; tveggja sona og tveggja dætra sem hann stakk hann í háls og bringu. Þessum fyrstu fimm fórn­ar­lömbum Wagners blæddi út.

Lognið á undan storminum

Sagan segir að þegar hann yfir­gaf heim­ili sitt í Degerloch, eftir að hafa fyr­ir­komið fjöl­skyldu sinni, hafi ekki verið hægt að merkja að þar færi maður sem ekki gekk and­lega heill til skógar. Hann hafði lagt teppi yfir líkin, farið úr blóð­ugum fötum sínum og þvegið sér.
Engu lík­ara er en að Wagner hafi tekið ákvörðun um að dúlla sér það sem eftir lifði þessa dags. Hann skildi eftir orð­send­ingu á hurð íbúðar fjöl­skyld­unnar þar sem sagði að fjöl­skyldan væri að dand­al­ast í Ludwigsburg. Umsjón­ar­maður bygg­ing­ar­innar fékk skila­boð um að panta fyrir fjöl­skyld­una mjólk og pönt­un­inni fylgdu 35 pfennig.
Síðan hjólaði Wagner til Stutt­gart og tók þaðan lest til Ludwigsburg. Í fórum sínum hafði hann þrjár skamm­byssur, 500 skot, svarta slæðu, sem konan hans sál­uga hafði átt, og belti. Frá Ludwigsburg fór Wagner til Eglos­heim þar sem bróðir hans bjó. Þangað kom hann um ell­efu leytið.

Taktu eitur!

Hvað hann aðhafð­ist þennan dag­inn er vart frá­sagnar vert nema ef vera skyldi að hann póst­lagði nokkur bréf, þar á meðal eitt til systur sinnar. Það bréf inni­hélt tvö orð: Taktu eitur!
Einnig sendi hann bréf til dag­blaðs nokk­urs og annað til heim­spek­ings að nafni Christoph Schrempf, sá fékk einnig ein­tak af sjálfsævi­sögu Wagners.
Klukkan sjö um kvöldið fór Wagner til Mühlhausen an der Enz og kom að hæð­unum þar í kring um ell­efu leytið um kvöldið. Þar girti hann sig með áður­nefndu belti, setti á sig húfu og vopn­að­ist Mauser C69-skamm­byss­unum tveimur.

Jarð­ar­för Fjöldi manns fylgdi fórn­ar­lömbum Wagners til grafar.

Að auki greip hann tösku sem inni­hélt skot­færin, svörtu slæð­una og þjöl. Wagner hugð­ist rjúfa síma­sam­band við Mühlhausen með því að rjúfa síma­lín­urnar. Það gekk ekki eftir því honum varð um megn að klifra upp háa síma­staurana auk þess sem úrhellis­rign­ingu gerði um það leyti.
Hann varð því að hverfa frá þeirri áætlun og fór rak­leitt inn í þorpið.

Kúlunum rignir

Í þorp­inu hófst Wagner handa og byrj­aði á því að bera eld að fjórum hlöðum. Hann huldi and­lit sitt sem best hann gat með slæðu eig­in­konu sinnar og hóf för sína í gegnum þorpið.
Hann skaut hvern ein­asta karmann sem á vegi hans varð, ein­hverjar konur urðu einnig fyrir skotum úr byssu hans, en síðar full­yrti hann að það hefði verið fyrir slysni.
Alls hleypti Wagner af 80 skotum og hitti 20 manns. Af þeim lét­ust átta sam­stundis þar á meðal ein kona. Eitt fórn­ar­lambanna dó síðar af sárum sínum.
Einnig drap Wagner tvær skepnur og þegar upp var staðið voru nokkur hús bruna­rústir einar.

Líkfylgd Fórn­ar­lömb Wagners urðu 14 alls.

Wagner varð að lokum yfir­bug­aður þegar hann var að end­ur­hlaða skot­vopn sín. Þrír karl­menn neyttu þá færis og réð­ust á hann vopn­aðir hlú­járnum og sverðum. Þeir léku Wagner illa og hann fékk ótal skurði í and­lit og á hægri hand­legg. Vinstri hand­leggur hans hékk á lyg­inni.

Vildi dauðadóm og aftöku

Eftir að hafa afvopnað Wagner, höggvið og barið í kássu skildu menn­irnir hann eftir liggj­andi í blóði sínu og gerðu ráð fyrir að hann myndi skilja við án frek­ari afskipta af þeirra hálfu.
En Wagner dó ekki, klukkan tvö um nótt­ina gekk lög­reglu­þjónn fram á hann, þar sem hann lá rænu­lít­ill en enn á lífi. Wagner komst til fullrar með­vit­undar og ját­aði hik­laust sök sína og einnig að hafa myrt fjöl­skyldu sína.
Hann sagð­ist hafa ætlað að fremja sjálfs­víg en ekki yrði það mögu­legt úr því sem komið var. Því þætti honum vænt um ef hann yrði bara dæmdur til dauða og háls­höggv­inn.
Að kvöldi 5. sept­em­ber var farið með Wagner á spít­ala í Vai­hingen þar sem gert var að sárum hans og vinstri hand­leggur fjar­lægður.
Wagner fékk ekki upp­fyllta ósk sína um dauða­dóm og aftöku, því hann var dæmdur til vistar á geð­veikra­hæli og þar dó hann 27. apríl árið 1938.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins