Íslenskt hestafólk hefur ákveðið að ráðast í ímyndarherferð fyrir hestamennsku hér á landi sem á nokkuð undir högg að sækja þessa dagana eftir að Mannlíf fjallaði fyrst fjölmiða um skelfilega meðferð á fylfullum hryssum.
Í fjölmennum hópi hestafólks á Facebook, Hestar og reiðmenn, er blásið til herferðar þar sem hestafólk er hvatt til þess að senda inn fallega mynd af sér og hestum þeirra með það að markmiðði að senda út jákvæða orku í hestasamfélagið hérlendis. Í tilkynningu segir:
„Á þessum tímum sem ímynd hestamennskunnar er búin að eiga undir högg að sækja skulum við henda átaki í gang undir #egelskahesta #ilovehorses. Flestir hestamenn eru gott fólk og hugsa vel um hestana sína og elska þá til tunglsins og tilbaka.“
Sjá einnig: MAST rannsakar hryllilega meðferð á blóðmerum
Matvælastofnun, MAST, rannsakar nú innihald myndbands sem sýnir hryllilega meðferð á blóðmerum hér á landi. Það er margt sem vekur athygli í myndbandinu, en einna athygliverðast er að í því sést Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka, láta elta dýraverndarsinnanna sem voru á Íslandi að taka upp myndefni af blóðmerahaldi. Arnþór ræddi við fulltrúa dýraverndunarsamtakanna til að reyna að stöðva birtingu myndefnisins,
Sjá einnig: Arnþór hjá Ísteka reyndi að stöðva myndatökufólk: „Go back to your country“
Heimildarmynd sem sýnir slæma meðferð á fylfullum hryssum við blóðtöku er nú til rannsóknar hjá Matvælastofnun. Mannlíf fjallaði fyrst um meðferðina sem sýnd er í heimildarmyndinni, síðasta föstudag en þá birti Mannlíf stiklu úr myndinni sem frumsýnd var á YouTube. Heimildarmyndin er unnin af þýsk/austurrísku dýraverndunarsamtökunum Tierschutzbund Zurich en fjallar hún um blóðtöku mera á Íslandi. Lengi hefur blóðtaka fylfullra mera verið stunduð á landinu en blóðið sem tekið er úr merunum er notað til að auka frjósemi svína til manneldis.
Sjá einnig: Faldar myndavélar sýna dýraníð: Heimildarmynd um íslenskar blóðmerar
Myndbandið er ekki fyrir viðkvæma en þar sést greinilega að verið er að níðast á hræðilegan hátt á hryssunum. Heimildarmyndin, sem finna mér hér fyrir neðan, sýnir upptökur úr földum myndavélum þar sem sjá má hryllilega meðferð á hryssunum þar sem þær eru lokaðar inni í þröngri stíu á meðan þær eru barðar með prikum og slegið í þær með viðarplönkum.




















Athugasemdir