„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rúmlega milljarðs hagnaður í skugga dýraníðs – „Go back to your country“

Rúmlega milljarðs hagnaður í skugga dýraníðs – „Go back to your country“

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Ísteka hagn­að­ist um rétt tæpar 600 millj­ónir króna á síð­asta ári vegna blóð­töku úr fyl­fullum hryssum til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyfjum sem selt er til stórra lyfja­fyr­ir­tækja um allan heim. Þennan rúma hálfa millj­arð græddi fyr­ir­tækið í skugga skelfi­legrar með­ferðar á hryss­unum, líkt og Mannlíf greindi fyrst frá um síð­ast­liðna helgi.

Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins, sem Mannlíf hefur undir höndum, má sjá að fyr­ir­tækið hagn­að­ist í fyrra um tæpar 600 millj­ónir, eða 591.889.767 krónur fyrir þá sem hafa gaman af tölum. Árið þar á undan var hagn­að­ur­inn svip­aður, eða rétt rúmur hálfur millj­arður, og því hefur Ísteka grætt rúman millj­arð á tveimur árum vegna blóð­mer­anna þar sem sýnt hefur verið fram á aug­ljóst dýra­níð.

Hér má sjá hagnað áranna 2019 og 2020.

Ísteka hagn­ast því gíf­ur­lega og greiddu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins sér út 300 millj­ónir króna í arð­greiðslur um síð­ustu ármót. Þá var eigið fé félags­ins 1,65 millj­arðar króna.

Mikill gróði bænda

Árlega er tekið blóð úr ríf­lega 5.000 hryssum hér á landi, aftur fyrir þá sem hafa gaman af tölum þá voru hryss­urnar 5.036 tals­ins í fyrra, og er það gert á tveggja mán­aða tíma­bili, síð­sum­ars og að hausti. Vikulega er tekið blóð úr fyl­fullum hryss­unum, allt að 5 lítrar í senn en að hámarki átta sinnum úr hverri meri. Það þýða hátt í 40 lítrar af blóði úr hverri hryssu, eða sem nemur 15-20 pró­sentum af öllu blóð­magni hests­ins.

Fyrir þessa 5 lítra sem fást í hvert skipti fær bónd­inn 10.000 krónur, eða allt að 80.000 krónur frá hverri blóð­meri á ári. Frá öllum blóð­merum lands­ins eru íslenskir bændur því að hagn­ast um rúmar 400 millj­ónir á ári, eða 402.880.000 krónur nánar til­tekið.

Ísteka vinnur efni úr blóði mer­anna, meðal ann­ars til að auka frjó­semi svína. Blóð­takan úr fyl­fullum íslenskum hryssum hefur verið stunduð hér í rúma fjóra ára­tugi og er til­gang­ur­inn að safna horm­ón­inu eCG sem notað er til fram­leiðslu frjó­sem­is­lyfja svína til mann­eldis. Líkt og Mannlíf hefur greint frá eru hér á landi starf­andi aðeins 5 dýra­eft­ir­lits­menn, til að fylgj­ast með blóð­mer­a­iðn­aði bænda sem og með­ferð allra ann­arra dýra hér á landi.

Hryllileg meðferð

Mat­væla­stofnun, MAST, rann­sakar nú inni­hald mynd­bands sem sýnir hrylli­lega með­ferð á blóð­merum hér á landi. Í heim­ilda­mynd­inni má sjá dæmi um að hrossin séu barin og slegin, tjóðruð niður og geymd í þröngum blóð­töku­básum.

Það er margt sem vekur athygli í mynd­band­inu, en einna athygl­is­verð­ast er að í því sést Arnþór Guð­laugs­son, fram­kvæmda­stjóri Ísteka, láta elta dýra­vernd­ar­sinn­ana sem voru á Íslandi að taka upp myndefni af blóð­mera­haldi. Arnþór ræddi við full­trúa dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna til að reyna að stöðva birt­ingu myndefn­is­ins. Við þau sagði hann ákveðnum rómi: „Go back to your country.“

Mynd­bandið er alls ekki fyrir við­kvæma en þar sést greini­lega að níðst er á hræði­legan hátt á hryss­unum. Heim­ilda­myndin sýnir upp­tökur úr földum mynda­vélum þar sem sjá hryss­urnar lok­aðar inni í þröngri stíu á meðan þær eru barðar með prikum og slegið í þær með við­arplönkum.

Heim­ilda­myndin erlenda sem sýnir slæma með­ferð á fyl­fullum hryssum við blóð­töku er nú til rann­sóknar hjá Mat­væla­stofnun. Mannlíf fjall­aði fyrst um málið. Arnþór hefur ekki látið ná í sig síðan heim­ilda­myndin leit dags­ins ljós.

Í lok síð­asta árs voru hlut­hafar Ísteka fimm tals­ins: 

Hörður Krist­jáns­son ………………………………………………………………… 44,5%

Klara ehf.* ………………………………………………………………………………….. 32,3%

Hólm­fríður H. Ein­ars­dóttir ……………………………………………………… 19,2%

Arnþór Guð­laugs­son ………………………………………………………………… 3,0%

Bryndís Stef­áns­dóttir …………………………………………………………………1,0%

*Klara ehf. er í meiri­hluta eigu Harðar Krist­jáns­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins