„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svona var drykkjupartý KSÍ þegar Eiður Smári var rekinn – „Hver er glæpurinn?“

Svona var drykkjupartý KSÍ þegar Eiður Smári var rekinn – „Hver er glæpurinn?“

Starfs­lok Eiðs Smára Guðjohnsens og umræddan gleð­skap lands­liðs­ins voru til umræðu í hlað­varps­þætt­inum Þunga­vigtin í gær.

Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G, er þátta­stjórn­andi Þunga­vigt­ar­innar, og sagð­ist hafa verið í sam­bandi við ónefndan aðila sem var í umræddum gleð­skap fyrr í mán­uð­inum.

Rikki spurði ein­fald­lega hver glæp­ur­inn sé af hálfu Eiðs Smára:

Rikki G.

„Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir hef ég ekki náð á Eið Smára, hann hefur ekki svarað, ekk­ert frekar en KSÍ. En í dag heyrði ég í aðila sem var þarna á staðnum og svona blasir þetta við,“ sagði hann í þætt­inum Þunga­vigtin; rekur atbuðrð­ar­rás­ina:

„KSÍ býður upp á drykki eftir leik­inn á móti Norður-Makedóníu. Það liggur auð­vitað ljóst fyrir að mótið er á þessum tíma­punkti búið, verk­efn­inu er lokið og skipt­ingin er þannig að leik­menn eru á einni hæð og starfs­liðið á annarri hæð. Það er byrjað að sumbla frekar seint; leiknum lauk seint og lands­liðið átti að ferð­ast snemma morg­un­inn eftir. Allir í starfs­lið­inu fá sér rauð­vín þetta kvöld, það er gripið í spil og verið að fara yfir eitt og annað og í raun og veru lítið sofið. Starfs­liðið þarf að vakna klukkan fimm að morgni til og fara í morg­un­mat og það er ljóst að þegar að þú ert búinn að sofa lítið og fá þér aðeins í glas þá er auð­vitað mis­jafnt ástand á mönnum,“ sagði Rikki og bætti við:

„Lands­liðs­þjálf­ar­inn fer upp á her­bergi klukkan eitt­hvað og Eiður Smári situr eftir, spjallar við son sinn og annan lands­liðs­mann áður en að farið er upp á her­bergi. Eiður fer upp örlítið seinna, fór aldrei út af hót­el­inu eða neitt slíkt, það var ekk­ert vesen. Síðan var mætt í morg­un­mat­inn, illa sof­inn og þannig vindur þetta ein­hvern­veg­inn upp á sig.“

Rikki spurði í þætt­inum hver glæp­ur­inn hafi verið:

„KSÍ var búið að leggja blessun sína yfir að menn myndu fá sér í glas. Menn áttu bara síðan að mæta í morg­un­mat sem Eiður gerði að mér skilst. Það var talað um að ein­hver hefði mætt seint í rút­una, en það var hvorki Eiður né þessi leik­maður sem á að hafa farið yfir strikið í drykkju, Jón Dagur Þor­steins­son, sem gerðu það. Birkir Már Sæv­ars­son mætti of seint í rút­una og það teng­ist þessu ekki neitt. Hver er glæp­ur­inn?“

„Það er eng­inn glæpur,“ svar­aði Mikael Niku­lás­son, fót­bolta­sér­fræð­ingur þátt­ar­ins.

Ítrek­aðar til­raunir hafa verið gerðar til að leita svara vegna upp­sagnar Eiðs Smára, en aðilar sem ættu svara fjöl­miðlum um málið, innan KSÍ, hafa ekki gert það.

Reyndar sagði Ómar Smárason deild­ar­stjóri sam­skipta­sviðs sam­bands­ins í sam­tali við vef­mið­il­inn 433.is í dag að ákvörð­unin hafi verið tekin með per­sónu­leg mál­efni Eiðs Smára í huga, án þess að útskýra það nánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins