„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hödd segir það rétt að reka Eið Smára: „Loksins virðist KSÍ ætla að standa í lappirnar“

Hödd segir það rétt að reka Eið Smára: „Loksins virðist KSÍ ætla að standa í lappirnar“

Almanna­tengil­inn Hödd Vil­hjálms­dóttir segir það ein­fald­lega hafa rétta ákvörðun hjá Vöndu Sig­ur­geirs­dóttur og félögum hennar hjá KSÍ að reka Eið Smára Gudjohnesn, aðstoð­ar­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins í fót­bolta. Á meðan hann sé að glíma við sín per­sónu­legu vanda­mál sé honum eng­inn greiði gerður að vera í slíkri ábyrð­ar­stöðu.

Hödd Vil­hjálms­dóttir, almanna­teng­ill.

Hödd fjallar um brott­rekst­ur­inn og lýsir skoð­una sinni í færslu á Facebook. Þar full­yrðir hún að hefði hún sjálf við í sömu stöðu og Eiður hefði hún fengið hví­líka útreið í fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum fyrir það eitt að vera kona. En með­virknin sé svo mikil í íslensku sam­fé­lagi segir hún að útreið­ina fær KSÍ í stað Eiðs Smára.

Sjá einnig: Svona var drykkjupartý KSÍ þegar Eiður Smári var rek­inn – „Hver er glæp­ur­inn?“

„Þó svo að ég hafi verið marka­hæsti leik­maður á Pæj­u­mót­inu i Vest­manna­eyjum á síð­ustu öld hafa afrek mín í knatt­spyrnu ekki orðið fleiri. Gefum okkur samt að ég væri heims­fræg knatt­spyrnu­stjarna sem hafi leikið með lands­liði okkar Íslend­inga og stórum liðum úti í heimi. Skórnir væru nú komnir á hill­una og ég tæki að mér ýmis ábyrgða­störf tengt íslenskri knatt­spyrnu líkt og að vera aðstoð­ar­þjálf­ari kvenna­lands­liðs­ins og væri mik­ils met­inn álits­gjafi og spyrill í sjón­varpi um íþrótt­ina. Sökum þess eins að ég væri mann­leg burð­að­ist ég með bakkus í fartesk­inu (sem ég sjálf raun­veru­lega geri) og ætti erfitt með að stjórna honum á köflum. Það tæki að ber­ast fólki til eyrna að ég væri oft í ann­ar­legu ástandi víðs vegar um bæinn. Einn dag­inn mætti ég svo ölvuð í beina íþrótta­út­send­ingu í sjón­varpi og síðar hefði ég girt niður um mig og migið á Ing­ólfs­torgi og verið svo óheppin að það atvik náð­ist á mynd­band. Ég þori nán­ast að hengja mig upp á það að upp­sagn­ar­bréfin hefðu verið fljót að ber­ast mér og ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda um hvernig útreiðin í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum hefði verið. Því ég er jú kven­maður,“ segir Hödd.

Sjá einnig: Eiður Smári hættur með lands­liðið: „Síðasta ár hefur verið mjög krefj­andi“

Hödd leggur á það áherslu að Eiður Smári hafði áður fengið áminn­ingu í starfi, einmitt vegna áfeng­is­vanda­mála líkt og Mannlíf hefur greint frá, og hann hafi sjálfur lýst því yfir að hann væri að vinna í sínum málum. „Víðs­vegar í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum má í dag svo sjá með­virkni margra lands­manna. Stjórn KSÍ og aðal­þjálf­ari lands­liðs­ins eru úthrópuð sem svik­arar og þeim gefið að sök að hafa fellt Eið með því að áfengi var á boðstólum í ferð­inni. Mér hrein­lega blöskrar þetta með­virkn­is­rugl,“ segir Hödd og heldur áfram:

„Held ég í raun að Eiði hafi með upp­sögn­inni verið greiði gerður þó lík­lega sjái hann það ekki þannig. Ég þekki Eið Smára ekk­ert fyrir utan að hafa spilað við hann fót­bolta þegar ég var sjö ára gömul í Álfa­tún­inu. Þeir ein­stak­lingar sem við þekkjum sam­eig­in­lega bera honum allir virki­lega vel sög­una og það getur eng­inn sagt annað en að hann er maður sem við land­menn eigum að vera stolt af. Eiður er samt mann­legur og eftir allar þær oft rétt­mætu árásir sem hafa dunið á KSÍ und­an­farið ætla ég að hætta mér í að lýsa yfir þeirri skoðun minni að loks­ins virð­ist sam­bandið ætla að standa í lapp­irnar, hætta með­virkn­inni og taka ábyrgð. Eiði er held ég eng­inn greiði gerður með að vera haldið í þessu ábyrgð­ar­hlut­verki á meðan hann tekst á við sitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins