„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Beggi Dan: „Síðustu vikurnar í lífi móður minnar voru henni hreinasta kvalræði“

Beggi Dan: „Síðustu vikurnar í lífi móður minnar voru henni hreinasta kvalræði“
Beggi Dan

Sonur Dönu Jóhanns­dóttur hefur skrifað opið bréf til stjórn­enda Land­spít­al­ans en móðir hans lést eftir að hafa verið sett í ótíma­bæra lífsloka­með­ferð á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja. Tilefni bréfs­ins er yfir­lýs­ing Land­spít­al­ans þar sem kemur fram að lækn­ir­inn sem rann­sak­aður er af lög­reglu í tengslum við and­lát móður bréfskrif­ara og fimm ann­arra sjúk­linga, fái enn að vinna á spít­al­anum.

Hér er bréfið í heild sinni:

Opið bréf til stjórn­enda Land­spít­al­ans vegna Skúla Gunn­laugs­sonar læknis

Land­spít­al­inn hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að Skúli Gunn­laugs­son læknir verði áfram við störf á spít­al­anum þrátt fyrir að vera við­fangs­efni lög­reglu­rann­sóknar sem snýr að and­láti fjölda sjúk­linga í hans umsjón. Þar sem mér er málið skylt finn ég mig knú­inn til að skrifa þetta bréf.

Mig langar raun­veru­lega ekki að rifja upp þessa harm­sögu en ég vil að þið, stjórn­endur spít­al­ans, séuð með­vituð um þá með­höndlun sem Skúli veitti móður minni. Eftir að hafa lesið til­kynn­ing­una ykkar dreg ég þá ályktun að þið séuð ekki með réttar upp­lýs­ingar og hafið þar af leið­andi gert mis­tök þegar þið ákváðuð að Skúli yrði áfram við vinnu á spít­al­anum.

Það sem hér kemur fram um störf Skúla er ekki bara mín skoðun og upp­lifun heldur eru þessar upp­lýs­ingar byggðar á nið­ur­stöðum rann­sóknar land­læknis á dauða móður minnar ásamt upp­lýs­ingum úr sjúkra­gögnum hennar.

Óþörf lífslokameðferð sem stóð í ellefu vikur

Móðir mín lést á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja seinni hluta árs 2019. Ellefu vikum fyrir dauða hennar lagð­ist hún inn á spít­al­ann í hvíld­ar­inn­lögn. Sam­dæg­urs var hún sett á lífsloka­með­ferð sem fyr­ir­skipuð var af Skúla Gunn­laugs­syni. Ég vil að það komi skýrt fram að hún var ekki haldin neinum sjúk­dómum eða kvillum sem ógn­uðu lífi hennar.

Lífsloka­með­ferð er úrræði sem ein­göngu á að beita á dauð­vona sjúk­linga og á slík með­ferð aðeins að standa yfir í örfáa daga. Ekki í ell­efu vikur.

„Það er álit land­læknis að STG hafi mælt fyrir um og hafið lífsloka­með­ferð án þess að stað­festa, til­greina ástæðu eða leiða full­nægj­andi líkum að því að dauð­inn hafi verið yfir­vof­andi. Enn­fremur án við­eig­andi sam­ráðs við aðstand­endur og sam­starfs­fólk.“

Skúli hafði ekki fyrir því að láta mömmu vita að hún væri að fara að deyja, hún hafði ekki hug­mynd um þessa ákvörðun. Ég er alveg viss um að hana grun­aði ekki að lækn­ir­inn, sem hún átti að geta treyst, væri búinn að fyr­ir­skipa óþarfa lífsloka­með­ferð sem myndi draga hana til dauða.

Síðustu vik­urnar í lífi móður minnar voru henni hrein­asta kval­ræði. Sýkingar voru ekki með­höndl­aðar, ekki var haldið að henni vökva, alvar­legur bæti­efna­skortur var virtur að vettugi auk þess sem risa­stór legu­sár sem gengu inn að beini fengu að grass­era. Hún fékk drep í annað eyrað, hluti af því datt af. Í þau skipti sem hlúa átti að legusár­unum þá fékk hún ekki deyf­ingu því Skúli hefur talið það óþarft að lina kvalir hennar, í það minnsta sam­þykkti hann ekki notkun deyfi­lyfja þegar kom að því að hreinsa sárin sem kvöldu hana svo sárt.

„Þetta hafði þær afleið­ingar að mati land­læknis að í ell­efu vikna langri legu hrak­aði DJ; hún var með legu­sár, nær­ing­ar­skort og sýk­ingar allt fram til and­láts­ins, sem verður að telja lík­legt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar með­ferðar sem hún hlaut.“

„Það er álit land­læknis að læknar HSS hafi sýnt af sér van­rækslu og hirðu­leysi gagn­vart aug­ljósum nær­ing­ar­vanda­málum og stað­festum bæti­efna­skorti sem hafa mögu­lega átt mik­il­vægan þátt í versn­andi ein­kennum og heilsu­far­s­vanda­málum.“

Skúli, sá hinn sami og er nýlega byrj­aður að vinna á spít­al­anum ykkar, lét dæla það miklu af slævandi lyfjum í móður mína að hún var oft algjör­lega ófær um að tjá sig. Hún starði stjörf út í loftið og það sást í augum hennar að hún var log­andi hrædd. Hún var það dofin af lyfj­unum sem Skúli lét hana inn­byrða að hún gat ekki beðið um hjálp. Oft vissi hún ekki einu sinni hvar hún var stödd.

„Það er álit land­læknis að verkja­með­ferð hafi verið rang­lega og óhóf­lega beitt við með­ferð DJ í umræddri legu.“

Oft reyndi hún að koma því til skila að hún kærði sig ekki um lyfin sem deyfðu hana, þá voru not­aðir mor­fín­plástar og þeir stað­settir þannig að hún gæti ekki rifið þá af sér.

Við systk­inin gerðum ítrek­aðar og alvar­legar athuga­semdir við með­ferð­ina á móður okkar en ekki var orðið við óskum okkar um að veita henni mann­sæm­andi með­ferð. Á fundum var blákalt logið að okkur um ástand hennar og hvers vegna Skúli tók þá ákvörðun að beita lífsloka­með­ferð þegar engar for­sendur voru fyrir slíku.

„SÁ virð­ist lítið sem ekk­ert hafa gert til þess að end­ur­skoða for­sendur og eðli lífsloka­með­ferðar DJ, þrátt fyrir sér­þekk­ingu sína á mál­efn­inu. Hann létti vissu­lega við nokkur til­felli á slæv­ing­ar­með­ferð­inni, en virð­ist ekki hafa gert mikið meira. Ekki er að finna þess merki í gögnum að SÁ hafi rætt með­ferð­ina eða grein­ingar við STG, þótt hann hafi átt að vera sér­fróður um efnið. Höf­uð­á­byrgð á með­ferð­inni var á höndum STG sem var form­lega ábyrgur fyrir með­ferð DJ í umræddum legum.“

„Embættið telur að ekki hafi aðeins verið um að ræða mis­brest á almennri fag­mennsku við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu til DJ, heldur hafi í ákveðnum til­vikum einnig verið um að ræða alvar­lega van­rækslu og mis­tök STG læknis, sem bar meg­in­á­byrgð á lækn­is­fræði­legri með­ferð DJ.“

Landlæknir stígur inn

Eftir frá­fall móður minnar sendi Eva systir mín kvörtun til land­læknis þar sem farið var fram á að emb­ættið rann­sak­aði með­ferð­ina sem leiddi til þess að mamma dó. Við því var orðið og upp­hófst þá fag­leg rann­sókn land­læknis á störfum Skúla og með­höndlun móður minnar. Fenginn var óháður sér­fræð­ingur í öldr­un­ar­lækn­ingum til að fara yfir sjúkra­gögn, grein­ingar, með­höndlun, skrán­ingar í kerfi spít­al­ans, nótur frá læknum og margt fleira.

Skúli fékk tæki­færi til að svara fyrir sig en hafði ekki einu sinni fyrir því í upp­hafi að svara erindi land­læknis þrátt fyrir að aug­ljósan alvar­leika máls­ins. Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja stóð heldur ekki sína plikt þegar kom að sam­skiptum við land­lækni.

Hrokinn í svörum Skúla til emb­ætt­is­ins var slá­andi og var greini­legt að lækn­ir­inn ætl­aði sér ekki að við­ur­kenna neinn mis­brest þrátt fyrir að aug­ljóst væri að stór­kost­leg van­ræksla hefði átt sér stað. Mér finnst rétt að benda á að í svörum sínum reynir hann að skella skuld­inni á móður mína og á okkur systk­inin, börnin hennar.

„Það er álit land­læknis að STG yfir­læknir hafi ekki staðið við sína ábyrgð og skyldur við með­ferð DJ og í stað­inn leit­ast við að varpa ábyrgð sinni á sjúk­ling­inn. “

„Það er álit land­læknis að við­brögð HSS við upp­haf­legri kvörtun þar sem fram koma afar alvar­legar ávirð­ingar og spurn­ingar um meint frá­vik og brot í veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu, séu með öllu ófull­nægj­andi og ámæl­is­verð. Með þessu hafi við­kom­andi stofnun, sem ábyrgð ber á að svara fram kominni kvörtun, sýnt bæði kvart­anda og emb­ætti land­læknis, sem er eft­ir­lits­að­ili með heil­brigð­is­þjón­ustu, óvirð­ingu.“

„Það er álit land­læknis að STG hafi ekki aðeins komið fram með ótil­hlýði­legum hætti við aðstand­endur skjól­stæð­ings síns meðan á með­ferð stóð, svo sem lýst er í kvörtun­inni og fram kemur í sjúkra­gögnum, heldur hafi hann einnig sýnt af sér ótil­hlýði­lega afstöðu og ummæli í garð aðstand­enda í andsvörum sínum í þessu máli.“

Nið­ur­stöður rann­sóknar Land­læknis eru slá­andi svo ekki sé meira sagt, það var gríð­ar­legt högg að lesa álitið sem stað­festi að það sem okkur grun­aði væri rétt.

Kærður til lögreglu vegna gruns um manndráp

Um leið og svört úttekt land­læknis barst okkur héldum við systk­inin til lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum þar sem við lögðum fram kæru á hendur Skúla og tveimur öðrum starfs­mönnum Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja. Í fram­haldi af því upp­hófst viða­mikil rann­sókn lög­reglu sem enn er í fullum gangi.

Skúli ráðinn til Landspítalans

Hún var ein­kenni­leg til­finn­ingin sem greip mig þegar ég upp­götv­aði að þið hefðuð ráðið Skúla, lækni sem grun­aður er um alvar­lega og refsi­verða hátt­semi gagn­vart sjúk­lingum, í vinnu á sjúkra­hús­inu ykkar. Þetta gerðuð þið þrátt fyrir rann­sókn land­læknis og þá stað­reynd að hann er með stöðu sak­born­ings í saka­mála­rann­sókn þar sem meint fórn­ar­lömb eru ell­efu tals­ins, af þeim létu sex lífið.

Samkvæmt fyrr­nefndri yfir­lýs­ingu er Skúli í „end­ur­hæf­ingu“. Ég vil gjarnan fá að vita í hverju sú end­ur­hæf­ing er fólgin nákvæm­lega og hvernig stendur á því að hann fær sér­með­ferð hjá Land­spít­al­anum. Mér þætti vænt um að fá svör við þessum spurn­ingum sem fyrst.

Ég mun seint skilja hvers vegna Skúli er við störf hjá ykkur á þessum tíma­punkti. Aug­ljós­lega á sjúkra­hús að vera öruggur staður og því vona ég að þið gerið það eina rétta í stöð­unni og víkið Skúla Gunn­laugs­syni úr starfi á meðan nið­ur­staða fæst í þau grafal­var­legu mál sem nú eru til rann­sóknar hjá lög­reglu. Allt annað er óásætt­an­legt.

Höfundur er Guðbjörn Dan Gunn­ars­son, kall­aður Beggi Dan, og sonur konu sem lést á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins