„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólafur F. svakalega sár út í borgarstjórann: „Illt er að Dagur skuli sem læknir tala niður til mín“

Ólafur F. svakalega sár út í borgarstjórann: „Illt er að Dagur skuli sem læknir tala niður til mín“

Ólafur F. Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, er veru­lega sár út í Dag. B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra og segir hann tala um sig með niðr­andi hætti. Nýút­komin bók etir Dag, „Nýja Reykja­vík“, er kornið sem fyllti mæl­inn hjá Ólafi.

Ólafur ritar aðsenda grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann segir:

„Óhætt er að segja að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri fjalli með niðr­andi hætti um mig í nýrri bók sinni. Lítið fylgi mitt var við­búið eftir harka­legt ein­elti vinstri­manna á hendur mér, þar sem Dagur B. kom mjög við sögu. Dagur var sann­ar­lega þátt­tak­andi í ein­elt­inu gegn mér um langt ára­bil. Dagur stóð auk þess að lög­sókn gegn mér árið 2012 þar sem ég var að til­efn­is­lausu sak­aður um fjár­drátt. Við það lagð­ist ég í alvar­legt þung­lyndi,“ segir Ólafur.

Ólafi sárnar full­yrð­ingar borg­ar­stjóra um að hann hafi horfið alfarið af sjón­var­svið­inu eftir starfið í borg­inni. Fyrr­ver­andi borg­ar­stjór­inn segir Dag hafa kallað sig „lyg­inn óheil­inda­mann“ sem væri hald­inn „mann­fyr­ir­litn­ingu“.

„Ég held að þeir sem hafi fylgst með ljóðum mínum og lögum allt frá 2013 viti að ég er ekki horf­inn af sjón­ar­svið­inu, eins og Dagur gefur í skyn. Og ég hef fram á síð­ustu ár rétt mörgum hjálp­ar­hönd sem læknir, enda reyndur í því starfi. Illt er að Dagur skuli sem læknir tala niður til mín. Enn verra er þó að hann þegir yfir öllu því ljóta sem hann hefur gert á minn hlut,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins