„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Arnar opnar sig loks um brottrekstur Eiðs Smára: „Og svo erum við góðir og miklir vinir“

Arnar opnar sig loks um brottrekstur Eiðs Smára: „Og svo erum við góðir og miklir vinir“
Eiður Smári og Arnar Þór. Mynd: RÚV

Arnar Þór Við­ars­son, þjálf­ari karla­lands­liðs­ins í fót­bolta, við­ur­kennir loks að hafa tekið þátt í þeirri ákvörðun að reka góð­vin sinn og aðstoð­ar­þjálf­ara, Eið Smára Gudjohn­sen. Hann segir ákvörð­un­ina hafa verið rétta, nauð­syn­lega og þung­bæra.

Fram til þessa hefur Arnar ekki tjáð sig um brott­rekst­ur­inn, ekk­ert frekar en for­maður KSÍ, Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, sem hefur skýlt sig bak­við trúnað um per­sónu­leg mál­efni Eiðs. Arnar lands­liðs­þjálf­ari hefur nú við­ur­kennt að hann tók þátt í ákvörð­un­inni um upp­sögn­ina.

Sjá einnig: Svona var atburð­ar­rásin þegar Eiður Smári var rek­inn

Eiður var rek­inn fyrir viku síðan en í til­kynn­ingu frá KSÍ var sagt að upp­sögnin væri gerð með sam­komu­lagi stjórnar og Eiðs. Líkt og Mannlíf greindi frá teng­ist brott­rekst­ur­inn hins vegar áfeng­is­neyslu í KSÍ-partý eftir leik lands­liðs­ins gegn N-Makedóníu um miðjan mán­uð­inn. Vanda for­maður var í partý­inu og sam­kvæmt funda­gerð­inni hringdi hún í alla stjórn­ar­menn eftir heim­kom­una. Eiður Smári var svo rek­inn eftir fund stjórnar.

Sjá einnig: Eiður Smári hættur með lands­liðið: „Síðasta ár hefur verið mjög krefj­andi“

„Auðvitað var ég partur af þess­ari ákvörðun, sem var sam­eig­in­leg hjá KSÍ og Eiði. Ég er sam­mála því að hún var nauð­syn­leg, án þess að ég vilji fara nánar út í það. Þetta var erfið ákvörðun að taka, bæði fag­lega og per­sónu­lega. Við Eiður höfum þekkst lengi, spil­uðum saman í lands­lið­inu og unnum svo saman sem þjálf­arar, og svo erum við góðir og miklir vinir. Ég vil honum því allt hið besta,“ sagði Arnar Þór í sam­tali við Vísi.

„Ég vona að tím­inn leiði í ljós að þetta hafi verið rétt ákvörðun – fyrir lands­liðið, sem er mik­il­væg­ast, fyrir Eið Smára sjálfan og fyrir mig. Þetta er þung­bær ákvörðun þegar maður er að vinna með vini sínum. Þá vill maður honum allt hið besta. En í fót­bolt­anum þarf að vera hægt að aðskilja hið per­sónu­lega og vinn­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins