„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landspítali vill ekki ræða alvarlegar líkamsárásir á Hrafn Jökulsson

„Við tjáum okkur ekki um mál­efni ein­stakra sjúk­linga“ Svo ein­falt er svar Land­spít­al­ans þegar Mannlíf leit­aði við­bragða um kæru á hendur sjúkra­hús­inu frá rit­höf­und­inum Hrafni Jök­uls­syni. Hann telur sig hepp­inn að vera á lífi eftir tvær alvar­legar lík­ams­árásir á geð­deild­inni og hefur kært stjórn­endur Land­spít­ala til lög­reglu, líkt og Mannlíf greindi frá í gær. Sjá

Landspítali vill ekki ræða alvarlegar líkamsárásir á Hrafn Jökulsson
„Við tjáum okkur ekki um mál­efni ein­stakra sjúk­linga“

Svo ein­falt er svar Land­spít­al­ans þegar Mannlíf leit­aði við­bragða um kæru á hendur sjúkra­hús­inu frá rit­höf­und­inum Hrafni Jök­uls­syni. Hann telur sig hepp­inn að vera á lífi eftir tvær alvar­legar lík­ams­árásir á geð­deild­inni og hefur kært stjórn­endur Land­spít­ala til lög­reglu, líkt og Mannlíf greindi frá í gær.

Sjá einnig: Hrafn Jök­uls­son tví­vegis bar­inn alvar­lega á Land­spít­al­anum: „Hann ætl­aði að drepa mig“

„Hnefar hans voru eins og stungu­skólfur. Ég hef aldrei séð slíka hnefa og þetta var eng­inn venju­legur beljaki sem var ákveð­inn í því að drepa mig,“ sagði Hrafn í sam­tali við Mannlíf.

Hrafn á Land­spít­al­anum.

Hrafn hefur ítekað verið nauð­ung­ar­vi­staður á geð­deild spít­al­ans á árinu og mætir hann fyrir Lands­rétt í dag til að tala máli sínu um lausn frá nauð­ung­ar­vist­un­inni. Þann 9. nóv­em­ber réðst annar vist­maður geð­deildar tví­vegis á rit­höf­und­inn, með þeim afleið­ingum að Hrafn rot­að­ist í fyrra skiptið og í síð­asti árásinni var honum bjargað af starfs­manni deild­ar­innar. „Þetta voru mjög grófar lík­ams­árásir, í tvígang. Í seinna skiptið kastaði starfs­maður sér fyrir höggið, líkt og sannur líf­vörður Banda­ríkja­for­seta, en það var helj­ar­högg,“ segir Hrafn.

„Hann fékk næði til að und­ir­búa sig fyrir báðar árás­irnar. Ég furða mig á því að það virð­ast engir verk­ferlar til eða við­bragðs­á­ætlun til að bregð­ast við eftir fyrri árás­ina, sem var mjög alvar­leg. Ég hef aldrei verið stein­rot­aður áður og ég skil ekki hvers vegna mað­ur­inn var ekki færður eitt­hvað annað. Það er guðs mildi að hann náði ekki að klára þriðju árás­ina, þar sem aum­ingj­ans mað­ur­inn hafði bitið það í sig að koma mér af jörð­inni,“ segir Hrafn og bætir við:

„Ég tel mig þokka­lega hepp­inn. Ég skrifa það alfarið á stjórn­endur spít­al­ans og yfir­menn heil­brigð­is­kerf­is­ins að skapa þær aðstæður að svona hættu­legir hlutir ger­ast. Atburð­ar­rásin hefði ekki þurft að vera nema örlítið önnur, þá hefði orðið enn eitt dauðs­fallið á geð­deild Land­spít­al­ans,“ segir Hrafn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins