„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Byrjaði að hanna skartgripi búsett í Kólumbíu

Byrjaði að hanna skartgripi búsett í Kólumbíu

Erna María Dungal er eig­andi MAR Jewelry sem selur fal­lega hand­gerða skart­gripi sem hún býr til sjálf.
Sú hug­mynd að stofna fyr­ir­tækið varð til í Kólumbíu árið 2017 og sagan á bak við hug­mynd­ina er ein­stak­lega skemmti­leg.
Erna hafði búið í Kaup­manna­höfn í ár þegar hún ákvað að flytja til Kólumbíu, en það var árið 2012. Maðurinn hennar Ernu er fá Kólumbíu og bjuggu þau þar allt til árs­ins 2019. Hún seg­ist alla tíð hafa haft mik­inn áhuga á skart­gripum og haft ákveðna hug­mynd um hvers konar skart hún vildi.
Það hafi þó oft verið erfitt að finna nákvæm­lega það sem hún hafði í huga.

„Þarna úti er miklu meira fram­boð af versl­unum þar sem þú getur keypt alla litlu hlut­ina og bara búið til þitt eigið,“ segir Erna sem ákvað þá í fram­hald­inu að búa til sitt eigið skart.


„Ég fór svo­lítið að þræða þær búðir og byrj­aði að setja saman eitt­hvað sem að mig lang­aði í fyrir sjálfa mig.“

Það vatt upp á sig, en til að byrja með gerði Erna skart fyrir nán­ustu ætt­ingja.
„Tengda­móðir mín fór að biðja mig um að gera svona handa sér, og svo fóru frænkurnar að spyrja og þá byrj­aði ég að fram­leiða fleira en eitt ein­tak af sumu,“ segir Erna og hlær en í kjöl­farið kom hug­myndin að MAR Jewelry.
„Þá fædd­ist sú hug­mynd að gera síðu og undir mínu merki, það sem ég var að gera fyrir sjálfa mig.“
Ferskvatnsperlur eru meðal þess sem Erna notar í skart­gripa­gerð­ina en hún segir mjög erfitt að finna perlur. Þá eru ferskvatnsperlurnar mikið ódýr­ari en samt alveg jafn fal­legar.
Þá geri hún alla sína skart­gripi í höndum að frá­töldum eyrna­lokkum, en þá kaupir hún steypta.
„Það er það eina sem ég geri ekki í hönd­unum.“
Skartið frá MAR sker sig úr og hefur klass­ískt, fal­legt yfir­bragð sem passar bæði við fínni til­efni sem og hvers­dags.
„Ég hef alltaf viljað svona eitt­hvað aðeins öðru­vísi en það sem allir eru með,“ segir Erna og hefur henni tek­ist vel til.
Skartið frá MAR Jewelry er selt í vef­verslun en einnig í Heima decor í Vest­manna­eyjum og Garð­ars­hólma á Húsavík. Erna segir það ganga vel en von­andi verði hægt að nálg­ast skartið á fleiri stöðum fljót­lega.

Erna situr svo sann­ar­lega ekki auðum höndum. Hún rekur MAR Jewelry, er í fullu starfi hjá Iceland Travel, stundar nám í þró­un­ar­fræði við Háskóla Íslands og á fjöl­skyldu.
Hún segir stundum krefj­andi að púsla öllu saman, en henni þyki það samt skemmti­legt því áhuga­málin séu mörg.
„Mér hef gaman af að geta verið í mörgu, af því að ég hef áhuga á mörgu,“ segir hún.

Aðspurð hvort hún myndi vilja flytja aftur til Kólumbíu segir hún það ekki vera á dag­skránni.
„Aldrei að segja aldrei,“ segir hún en henni lík­aði vel að búa í Kólumbíu þrátt fyrir að þar væri margt gríð­ar­lega frá­brugðið Íslandi.

Eyrna­lokkar sem Erna gerði fyrir vin­konu sína er hún gifti sig í sumar

„Það er mjög margt ólíkt, en mjög gott að vera þar.“ Aðstæður fólks séu mjög mis­jafnar en hún hafi alltaf haft það gott.

Erna og fjöl­skylda fluttu til Íslands í byrjun árs 2019 er þeim fannst tími til kom­inn að breyta til. Hún seg­ist fegin að hafa náð að flytja áður en heims­far­ald­ur­inn skall á.
Erna horfir björtum augum til fram­tíðar og er jarð­bundin þegar kemur að mark­miðum og fram­tíð­arplönum. Tíminn muni leiða allt í ljós, en skartið frá MAR Jewelry er svo sann­ar­lega þess virði að skoða nánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#íslensk hönnun

Sigríður safnstjóri sló met í faraldrinum: „Covid var heldur betur áskorun“
Innlent#íslensk hönnun

Sigríður safn­stjóri sló met í far­aldr­inum: „Covid var heldur betur áskorun“

Íslensk hönnun hefur verið að ryðja sér til rúms síð­ustu ár og hefur verið spenn­andi að fylgj­ast með upp­gang­inum. Til okkar komu Sigríður Sigrjóns­dóttir for­stöðu­maður og Stella Stef­áns­dóttir, for­maður stjórnar, í áhuga­vert og fræð­andi spjall um hlut­verk og mögu­leika Hönn­un­ar­safns Íslands. Safn­búðin – Ljósmynd Vigfús Birg­is­son Á und­an­förnum árum hafa vin­sældir safns­ins auk­ist tölu­vert og saf­n­eign þess stækkað, sem þýðir...
Gerða Kristín er gullsmiður sem býr til hauskúpukerti
Innlent#íslensk hönnun

Gerða Kristín er gull­smiður sem býr til haus­kúpu­kerti

Gerðu Kristínu Lár­us­dóttur gull og silf­ur­smið er margt til lista lagt og hafa kerti og aðrir munir sem hún hannar og býr til, vakið verð­skuld­aða eft­ir­tekt. Gerða Kristín kláraði gull og silf­ur­smíði í Tækni­skól­anum árið 2018 og tók sveins­próf um vorið 2019. Hún var í læri hjá Stefáni Boga í Metal design. Gerða Kristín er einnig með sveins­próf í snyrtifræði...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins