„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jóna Símonía – Kjötsúpan var hátíðarmatur Íslendinga og rjúpan matur fátæka mannsins

Jóna Símonía – Kjötsúpan var hátíðarmatur Íslendinga og rjúpan matur fátæka mannsins
Jóna Símonía Bjarna­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Jóna Símonía Bjarna­dóttir var fyrsti gestur í hlað­varp­inu Jóla­ser­í­unni á dög­unum.

Jóna er fróð­ari en margur um jóla­hefðir Íslend­inga í ald­anna rás. Hún segir að Þor­láks­messa hafi á vissan hátt verið hátíðs­dagur hér á árum áður. Hins­vegar hafi ákveðnar mat­ar­hefðir verið áber­andi fyrir þennan dag, sem voru þess eðlis að fólk var ekki að gera sér­stak­lega vel við sig.

„Þetta var svona loka­und­ir­bún­ingur fyrir jól. Þú fékkst kannski stundum eitt­hvað að borða sem var soðið upp úr hangi­kjöts­soð­inu en yfir­leitt varstu að borða frekar lélegan mat þennan dag, þannig séð. Af því að þá var til­hlökk­unin líka meiri að fá góða mat­inn.“

Kjötsúpa var jólamatur

Lamba­kjöt var upp­haf­legur jóla­matur Íslend­inga.

„Hangi­kjötið er til dæmis ævaforn hátíð­ar­matur sem svo ein­hvern veg­inn fór að tengj­ast jól­unum mjög. Maturinn okkar bygg­ist nátt­úru­lega á því hvernig við gátum geymt hann.

Almennt vorum við að borða súr­mat yfir vet­ur­inn, eða þá eitt­hvað sem var reykt. Svo kemur nátt­úru­lega saltið og þá er farið að salta mat.

En við Íslend­ingar höfum verið frekar íhalds­söm í jóla­mat. Það var þannig í gamla bænda­sam­fé­lag­inu að ef þú áttir kind til að slátra þá slátraðir þú henni fyrir jólin, þannig að þú fékkst nýtt kjöt. Í kjöt­súpu yfir­leitt. Þannig að kjöt­súpan var svo­lítið hátíð­ar­mat­ur­inn og til­brigði við þennan venju­lega mat sem þú ann­ars fékkst. Ef þú áttir kálf þá slátraðir þú honum og not­aðir í súpu.“

Hér kennir ýmissa grasa. Mynd/skjá­skot RÚV.

Svo komu ofnarnir

„Mér skilst að fyrst þegar menn voru að veiða rjúpu, þeir sem áttu ekki eitt­vað til að slátra til jól­anna, not­uðu þeir rjúp­una í súpu. Þetta sner­ist um það að hafa nýtt kjöt á jólum, þá yfir­leitt í kjöt­súpu og svo hafð­irðu með brauð­metið og það. Þú fékkst skammtað til jól­anna þessum hefð­bundna mat. Þannig að ég hef gjarnan sagt að ef við ætlum að halda okkur við gamla hefð, þá myndum við hafa kjöt­súpu.

En svo koma ofnar til sög­unnar. Elda­vélar með ofnum. Þá fórum við að hafa læri og hrygg, með þykkri, brúnni sósu og brún­uðum kart­öflum og svona. Þetta var algjör bylt­ing fyrir fólk sem hafði lifað báða þessa tíma. Þarna fórstu að baka meira. Smákökur og svona. Um tíma voru íslensk jól bara tertur. Tertujól skiptu meira máli en mat­ur­inn. Svo förum við nátt­úru­lega að taka inn ýmis önnur dýr, sem hafði verið áður. Á mið­öldum voru menn að borða svín og ýmis­legt. En hjá Íslend­ingum var þetta lambið, gamla góða, og svo kom svína­ham­borg­ar­hrygg­ur­inn og það allt frá Danmörku. Kom aftur inn.“

Fjórar rjúpur. Mynd/skjá­skot RÚV.

Veiddir rjúpu ef þú áttir ekki annað

Jóna segir að rjúpan, sem um ára­bil hefur verið vin­sæll jóla­matur, hafi upp­haf­lega verið nokk­urs konar jóla­matur fátæka manns­ins.

„Rjúpan var nátt­úru­lega aðgengi­leg víð­ast hvar. Þannig að þú gast farið og veitt og þurftir ekki leyfi til að ná þér í rjúpu í mat­inn. Þannig að þú gast fengið nýmetið. Og þá fórstu og gerðir það, því það hefur vænt­an­lega ekki verið neitt dap­ur­legra en það að um jól hjá fátæku fólki hefðu þau ekk­ert til jól­anna annað en þá kannski bara þennan hefð­bundna mat sem þú fékkst dags­dag­lega. Og fékkst þá kannski lítið af honum. Bara þessi hefð­bundni súr­matur og svo kannski harð­fiskur. Hann kom svo­lítið í stað­inn fyrir brauðið.

Þannig að það sem skipti svo miklu máli hér áður og fyrr var það að jólin voru góður matur, birta og svo nátt­úru­lega jóla­gjafir þegar fram í sækir. Þegar þú ferð ein­fald­lega að geta verslað jóla­gjafir.“

Hér fyrir neðan má hlusta bæði og horfa á fyrsta þátt Jóla­ser­í­unnar í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins