„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á samskipti þeirra sem framhjáhald en ekki ofbeldi

Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á samskipti þeirra sem framhjáhald en ekki ofbeldi
Jón Páll Eyj­ólfs­son.

Fyrr­ver­andi leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar, Jón Páll Eyj­ólfs­son, var dæmdur í þriggja ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir nauðgun.

Lands­réttur þyngdi dóm hér­aðs­dóms um sex mán­uði.

Brotið átti sér stað árið 2008.

Lands­réttur kvað upp dóm sinn í dag; málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í nóv­em­ber árið 2020.

Þar var Jón Páll dæmdur í tveggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fang­elsi; jafn­framt dæmdur til að greiða brota­þola 2,5 millj­ónir króna í miska­bætur, en Lands­réttur breytti upp­hæð­inni í tvær millj­ónir króna.

Í árs­byrjun árið 2018 komst málið í hámæli þegar Jóni Páli var sagt upp störfum sem leik­hús­stjóra, en aðeins nokkrum vikum fyrr hafði hann til­kynnt að hann ætl­aði að hætta í mars fyrir þremur árum; vís­aði þá til fjár­hags­skorts hjá LA.

Kom í ljós seinna að hann hafði verið sak­aður um nauðgun einum tíu árum fyrr, og sam­kvæmt dómnum átti atvikið sér stað í ágúst árið 2008 – á hót­el­her­bergi í útlöndum.

Afar grófar lýs­ingar er að finna í dómi af ofbeld­inu sem Jón Páll var kærður fyrir og hann var að lokum ákærður; svo dæmdur fyrir ofbeldi og ólög­mæta nauð­ung.

Í dómi Lands­réttar kemur fram að Jón Páll hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi í her­berg­inu og haldið henni fastri.

Jón Páll lagð­ist ofan á hana og hafði við hana kyn­mök án sam­þykkis; og í átökum hafi hún fallið á gólfið; hafi Jón Páll aftrað henni að standa á fætur með því að grípa í fót­legg hennar svo hún skall mjög harka­lega með hné í gólfið og datt á bakið.

Einnig kemur fram að þá hafi Jón Páll sett hné í bringu hennar með þeim afleið­ingum að hún fékk stóran mar­blett.

Förn­ar­lamb Jóns Páls hlaut meðal ann­ars mar­bletti og sár á ýmsum stöðum; rispur og nún­ings­sár og þar að auki sprungu í slím­húð við leg­gangaop.

Daginn eftir leit­aði konan á neyð­ar­mót­töku þar sem myndir voru teknar af áverk­unum.

Í nið­ur­stöðukafla skýrslu læknis segir að hún hafi gefið grein­ar­góða sögu; verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.

Leik­hús­stjór­inn fyrr­ver­andi neit­aði sök hjá lög­reglu og fyrir hér­aðs­dómi; kann­að­ist þó við að hafa gist inni á her­bergi kon­unnar umrædda nótt: Sagðist ekk­ert muna vegna áfeng­is­neyslu.

Einnig að hann hafi enga áverka séð á kon­unni morg­un­inn eftir; ekk­ert óeðli­legt hafi verið í fari hennar að hans sögn.

Í skýrslu­tök­unni hjá lög­regl­unni sagð­ist hann muna lítið eftir atvikum næt­ur­innar; myndi til dæmis eftir að þau hefðu legið saman, og svo eftir ein­hverju bram­bolti; þau hafi dottið á milli rúmanna.

Jón Páll seg­ist hafa litið á sam­skipti þeirra um nótt­ina sem fram­hjá­hald en ekki ofbeldi.

Kom fram í gögnum máls­ins að fyrir lágu sam­skipti á Messen­ger milli Jóns Páls og kon­unnar, þar sem hann hafði við­ur­kennt að hafa beitt kon­una ofbeldi og brotið á henni gróf­lega.

Jón Páll sagð­ist hann hafa sótt sér sál­fræði­að­stoðar í kjöl­farið að kröfu fórn­ar­lambs­ins.

Fram­burður hennar fyrir dómi var met­inn trú­verð­ugur og talið að hún hafi verið sam­kvæm sjálfri sér; hefði fram­burður hennar hlotið stoð í gögnum máls­ins, og fram­burði vitna í því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Kynferðisafbrot

Rannsókn á máli Alberts lokið „Ég er saklaus“
Innlent#Kynferðisafbrot

Rannsókn á máli Alberts lokið „Ég er sak­laus“

Lög­reglan hefur lokið rann­sókn á máli Alberts Guð­munds­sonar knatt­spyrnu­manns og er það nú komið í hendur ákæru­sviðs lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samkvæmt frétt Vísis stað­festir Bylgja Hrönn Bald­urs­dóttir, lög­reglu­full­trúi hjá kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að rann­sókn á meintu kyn­ferð­is­brota­máli Alberts Guð­munds­sonar, sé lokið og komið á borð ákæru­sviðs. Albert var kærður fyrir kyn­ferð­is­brot í ágúst síð­ast­liðnum. Leikur hann með Genoa á...
Gæsluvarðhald lengt yfir Joshua – Grunaður um þriðju nauðgunina
Innlent#Kynferðisafbrot

Gæslu­varð­hald lengt yfir Joshua – Grunaður um þriðju nauðg­un­ina

Joshua ikechukwu Mogbolu hefur verið dæmdur fyrir það að nauðga tveimur konum er grun­aður um að hafa nauðgað þeirri þriðju. Hann hefur setið í gæslu­varð­haldi vegna gruns um þriðju nauðg­un­ina og hefur það verið lengt um sex mán­uði vegna almanna­hags­muna. Vísir greindi fyrst frá. Joshua sem búsettur hefur verið í Hafn­ar­firði er 21 árs gam­all er sagður hafa not­ast við...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins