„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Margt af þessu fólki auðgast á fénýtingu auðlinda sem við eigum öll saman“

„Margt af þessu fólki auðgast á fénýtingu auðlinda sem við eigum öll saman“
Þing­mað­ur­inn Jóhann Páll.

Nýkjör­inn þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Jóhann Páll Jóhanns­son, flutti sína fyrstu ræði á Alþingi í vik­unni. Óhætt er að segja að Jóhann hafi komið inn með trompi, en í ræðu sinni ræddi hann ójöfnuð á Íslandi.

Jóhann sagð­ist í ræðu sinni ætla fara yfir nokkrar stað­reyndir, „30 pró­sent af nýjum auði sem varð til í fyrra runnu til rík­asta 1 pró­sents­ins á Íslandi, alls 37,3 millj­arðar króna. Þetta rík­asta eitt pró­sent Íslend­inga á 902 millj­arða í eigin fé, 902 millj­arða. Þar af eiga 240 heim­ili, rík­asta 0,1 pró­sentið á Íslandi, 293 millj­arða, 293 þús­und millj­ónir.“

Segir Jóhann að ekki sé hægt að tala um eigna­stétt­ina án þess að ræða um fisk­inn í sjónum. „Margt af þessu fólki auðg­ast á fénýt­ingu auð­linda sem við eigum öll saman og sem við hér á Alþingi ráðum hvernig ráð­stafað. Í fyrra náðu arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sögu­legu hámarki. Eigendur útgerð­ar­fyr­ir­tækja fengu meira en 21 millj­arð í arð,“ segir Jóhann og heldur áfram.

„888 millj­ónir runnu til eins manns, stærsta eig­anda Brims. 715 millj­ónir til stærsta eig­anda Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum. Þannig er heim­il­is­bók­haldið þar á bæ.“

Þá ræddi Jóhann um þá sem við bág­ust kjör búa hér á landi. „Hinum megin á kúrf­unni er svo fólkið sem á ekki neitt, fólkið sem lifir á sult­ar­launum, þær þús­undir manna sem búa í óleyf­is­hús­næði vegna fátæktar og ófremd­ar­á­stands á hús­næð­is­mark­aði, óvinnu­fært fólk, öryrkjarnir sem þurfa að draga fram lífið langt undir 300 þús­und krónum á mán­uði.“

Jóhann segir að á meðan þeir rík­ustu sanki að sér þús­undir millj­óna, sitji fátæk­asta fólkið eftir ár eftir ár.

Virðist Jóhann ekki bjart­sýnn á að ástandið breyt­ist meðan núver­andi rík­is­stjórn er við völd. „Þetta eru tvö sam­fé­lög á Íslandi, tveir heimar og rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur virð­ist ekki ætla að lyfta litla fingri til að leið­rétta þennan ójöfnuð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfélg

Haukur, eiginmaður Láru Ómarsdóttur:„Ég ákvað að skella í eitt stykki hjartaáfall nú í morgunsárið“
Innlentsamfélg

Haukur, eig­in­maður Láru Ómars­dóttur:„Ég ákvað að skella í eitt stykki hjarta­á­fall nú í morg­unsárið“

Eig­in­maður fjöl­miðla­kon­unnar Láru Ómars­dóttur, Haukur Olavsson, vakn­aði við slæman verk á gaml­árs­dag, sem reynd­ist vera hjarta­á­fall. „Ég sendi ykkur öllum ára­mó­ta­kveðju þessi ára­mótin héðan frá Hring­braut­inni,“ skrifar Haukur á Facebook í gær, en hann dvelur nú á Land­spít­al­anum. „Mér fannst árið 2021 svo tíð­inda­lítið og til­breyt­inga­laust að ég ákvað að skella í eitt stykki hjarta­á­fall nú í morg­unsárið á þessum...
Tugum skápalykla Breiðholtslaugar stolið: Karlarnir kræfari við að stela lyklum
Innlentsamfélg

Tugum skápa­lykla Breið­holts­laugar stolið: Karl­arnir kræfari við að stela lyklum

Skápa­lyklar hafa ítrekað verið að hverfa úr Breið­holts­laug­inni. Á síð­ustu miss­erum hafa 64 lyklar úr skápum Breið­holts­laugar, 45 karla­megin og 19 kvenna­megin horfið á skömmum tíma. Tjónið er mikið fyrir laug­ina, en greiða þarf fyrir þetta úr rekstr­ar­fé­lagi laug­ar­innar. Nú er verið er að leggja loka­hönd á það að setja 64 lykla aftur í skápana, en starfs­menn eru að vonum...
„Heyrðu, Bubbi, þetta gæti verið tuttugu þúsundasti íbúinn.“
Menning

„Heyrðu, Bubbi, þetta gæti verið tutt­ugu þús­und­asti íbú­inn.“

Íbúar Reykja­nes­bæjar eru nú orðnir 20.000 tals­ins og reynd­ist tutt­ugu þús­und­asti íbú­inn vera dótt­ur­sonur Guð­brands Ein­ars­sonar, for­seta bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar. Í við­tali við Vísi segir Guð­brandur frá því hvernig hann brá sér frá fundi þann 4. ágúst til þess að svara í sím­ann, og fékk þá þær skemmti­legu fréttir að afa­strákur væri kom­inn í heim­inn. Fyrir á Guð­brandur tvær afastelpur. Eftir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins