„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslendingurinn Birkir Blær slær í gegn í Svíþjóð

Íslendingurinn Birkir Blær slær í gegn í Svíþjóð

Í gær­kvöldi komst Akur­eyr­ing­ur­inn, Birkir Blær Óðinsson, í úrslit sænsku Idol söng­keppn­innar á TV4.

Keppnin er afar vin­sæl í Svíþjóð og hafa margir af þekkt­ustu söngv­urum Svía tekið þátt í henni. Má þar meðal ann­ars nefna Eurovision stjörn­u­rnar Laureen, Måns Zelmerlöw og Tusse Chiza.

Óhætt er að segja að Birkir hafi unnið hug og hjörtu Svía og skal engan undra því hér er á ferð frá­bær lista­maður.

Birkir er búsettur í Gauta­borg, þar sem hann stundar tón­smíðar og upp­tökur. En fyrr á árinu gaf hann út sína fyrstu plötu, Patient, sem hægt er að hlusta á hér.

Mikil spenna fyrir norðan

Mikil spenna var í loft­inu á veit­inga­staðnum Vamos á Akureyri í gær­kvöldi, þangað sem fjöl­skylda og vinir Birkis fjöl­menntu og fylgd­ust með sínum manni. Þar braust vit­an­lega út mikil gleði þegar kunn­gert var hverjir kæmust áfram í úrslit.

Faðir Birkis, Jón Óðinn Waage, pistla­höf­undur með meiru er búsettur í Svíþjóð og var hann í salnum ásamt konu sinni og fleirum að styðja son­inn.

Birkir með föður sínum Jóni Óðni

Hér má hlusta á fyrri flutn­ing Birkis í gær­kvöldi, þar sem hann syngur lag Harry Style, Sign of the Times.

Og hér má hlusta á þann seinni, þar sem Birkir flytur lagið Are you gonna be my girl.

Það verður óneit­an­lega spenn­andi að fylgj­ast með úrslitum keppn­innar næsta föstu­dags­kvöld. Óskar Mannlíf Birki góðs gengis. Áfram Birkir Blær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins