„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hjálmar á Húsavík gaf kærustunni nýra: „Ég er mjög fallegur að innan“

Hjálmar á Húsavík gaf kærustunni nýra: „Ég er mjög fallegur að innan“

Hjálmar Bogi Haf­liða­son, bæj­ar­full­trúi á Húsavík og vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ákveðið að gefa kær­ustu sinni, Guðný Þóru Guð­munds­dóttur, annað nýra sitt. Þau höfðu slitið sam­band­inu og hún flutt erlendis þegar hún veikt­ist svo mjög af nýrna­meini að hún aug­lýsti eftir nýrna­gjöf. Sá sem svar­aði kall­inu var fyrr­ver­andi kærast­inn, Hjálmar Bogi.

Guðný fékk nýra hjá föður sínum árið 2004 sem ent­ist henni lengi. Nýrna­sjúk­dóm­ur­inn lýsir sér í háum blóð­þrýst­ingi, ofsa­þreytu, vöðva­slapp­leika, tauga­verkjum, ógleði, krömpum í fótum, lyst­ar­leysi, húð­vanda­málum og fleiru.

Rann­sóknir sýndu að Hjálmar hentar sem nýrna­gjafi og í dag hafa þau tekið saman aftur á Húsavík. Nýrna­skiptin fóru fram síð­asta þriðju­dag og gekk vel. Morg­un­blaðið ræddi við þau. „Þegar fór að halla undan fæti gerð­ist það í raun mjög hratt,“ segir Guðný.

Vegna veik­ind­anna ákvað Guðný að flytja til Noregs með börnin en hefur nú snúið til­baka, í faðm Hjálmars. „Ég tók þá ákvörðun að flytja út, þeirra vegna, og tók sömu­leiðis ákvörðun um að koma heim, þeirra vegna. Hann gat ekki leynt því hversu glaður hann var,“ sagði Guðný um við­brögð kærastans við heim­kom­unni.

„Við fórum ekk­ert beint í sleik sko,“ segir Hjálmar um fyrstu dag­ana í end­ur­nýj­uðu sam­band­inu. Hann segir líf­færa­gjöf­ina skil­yrð­is­lausa, enda hafi hann verið til­bú­inn í hana í eða utan sam­bands. „Eins og lækn­ir­inn sagði þegar ég fór í alls­herj­ar­skoðun: Ég er mjög fal­legur að innan,“ segir Hjálmar.

Guðný er kærast­anum ævin­lega þakk­lát. „Hann er að gefa mér nýtt líf. Hann er að gefa börn­unum mínum og mér dýr­mæt lífs­gæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins