„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óánægja með Ófærð: „Ég hafði mig í gegnum fyrstu seríu því mér fannst ég ætti að gera það“

Óánægja með Ófærð: „Ég hafði mig í gegnum fyrstu seríu því mér fannst ég ætti að gera það“
Mynd/skjá­skot RÚV

Mikil óánægja ríkir á meðal þjóð­ar­innar eftir loka­þátt­inn af Ófærð en þriðja sería þátt­anna var sýnd á RÚV síð­ustu vikur. Ófærð eru byggðir á hug­mynd Baltasar Kormákar og er hann einnig aðal­fram­leið­andi og leik­stjóri þátt­anna.

Und­an­farið hefur skap­ast mikil umræða um Ófærð í Facebook hópnum S01E01, íslenskum umræðu­hóp um þátt­araðir. „Ég hafði mig í gegnum fyrstu seríu því mér fannst ég ætti að gera það. Ákvað að tími minn væri of dýr­mætur fyrir fleiri ser­íur.“ Segir Linda en fleiri eru á sama máli. Stefán nokkur seg­ist ánægður að þátt­unum sé loks­ins lokið en svo virð­ist sem margir íslend­ingar telja sig skylduga til að horfa á íslenskt efni.

Málfar, lélegur leikur, slæm hljóð­gæði og lang­dregnar senur er eitt­hvað af því sem land­inn hafði út á að setja: „Sögu­þráð­ur­inn er svo hall­æris­legur að ég er að bug­ast yfir þessu skyldu áhorfi! Bæði þetta mót­or­hjóla­gengi og svo költið, þetta væri ekk­ert að eiga sér stað þarna! Költ liðið er ýmist í ein­hverju hör­drasli, prjón­uðu ljótu drasli eða allt í einu í ein­hverju voða fancy design. Svo þegar parið var lamið þá varla sá á þeim! Svo er ekki hægt að búa eins og þessi költ ef það væri hávetur þarna. Svo er annað, mér finnst sam­tölin svo theatrical! Þau flæða illa og eru óraun­veru­leg. Þar er Ilmur samt lang skást. Það er svo margt slæmt hægt að segja um þessa þætti!“ segir Fjóla.

„Finnst eins og það sem ger­ist í heilum þætti mætti koma fyrir á 5 mín­útum, ca allt sea­sonið gæti verið ein slöpp bíó­mynd, samt horfir maður og svekkir sig yfir þessu ..“

Þýð­and­inn Gísli Ásgeirs­son var væg­ast sagt óánægður með þriðju ser­í­una af þátt­unum og sagð í sam­tali við Frétta­blaðið : „Þetta er íslenskt efni og Íslend­ingum hættir til að tala aldrei illa um það sem á helst að selja útlend­ingum og útlend­ingar eiga að halda að sé gott. Ýmislegt, sem ekki er gott, hefur verið sett á mark­að­inn undir merkjum Nordic Noir og þessi Ófærð­ar­sería, hún var svo leið­in­leg á köflum að ég hefði tekið Barnaby fram yfir hana,“ en hann vitnar í þætt­ina Midsomer Murders þar sem rann­sókn­ar­lög­reglan Barnaby leysir ýmis morð­mál. Hann segir þætt­ina vera fín­asta efni í stutt­mynd:

„Ófærð 3 hefði alveg gert sig sem stutt­mynd. Það er hægt að taka það sem gerð­ist; mögu­legt dópsmygl sem var nú ekki meira spenn­andi en svo að rann­sókn­ar­lög­reglu­menn hrös­uðu um farm­inn í skútu í Siglu­fjarð­ar­höfn. Það var nú öll spennan. Og svo þetta óupp­lýsta morð sem er afgreitt á tíu mín­útum í rest­ina með til­heyr­andi skot­bar­daga. Þetta er fín stutt­mynd.

Fyrsta Ófærðin er sann­ar­lega lang­best og maður horfði með mik­illi ánægju á hana. Af því að hún stóð undir nafni. Það var ófært. Það vant­aði ófærð­ina í þessu. Þarna var bara verið að selja ófærð­ar­tit­il­inn, Trapped á útlensku, og verið að gera út á forna frægð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjónvarpsþættir

Vill að RÚV geri samning við Vesturport um árlegar þáttaraðir:„Allt small hér sem best mátti verða“
Menning

Vill að RÚV geri samn­ing við Vest­ur­port um árlegar þátt­araðir:„Allt small hér sem best mátti verða“

„Mikið megum við vera þakk­lát fyrir þá stór­kost­lega vel heppn­uðu þætti um líf elsku Vigdísar okkar allra, sem haldið hafa okkur hug­föngnum und­an­farin sunnu­dags­kvöld.“ Þannig hefst lof­ræða Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar um þætt­ina um Vigdísi Finn­boga­dóttur, sem slegið hafa í gegn að und­an­förnu. Jakob stingur upp á því að RÚV geri sér­stakan samn­ing við Vest­ur­port, sem gerði þætt­ina um Vigdísi, um...
Dánarorsök Love Island-stjörnunnar tilkynnt – Lést ekki vegna rafrettureykinga
Heimur

Dán­ar­or­sök Love Island-stjörn­unnar til­kynnt – Lést ekki vegna rafrett­ureyk­inga

Talið er að Love Island-stjarnan Paul Danan hafi lát­ist eftir að hann „rann og féll“ í lúxus­í­búð nálægt Bristol, sam­kvæmt breskum fjöl­miðlum. Tilkynnt var um and­lát hins 46 ára gamla leik­ara á fimmtu­dag­inn síð­ast­lið­inn, þar sem umboðs­skrif­stofa hans deildi yfir­lýs­ingu og heiðr­uðu Paul sem var sagður hafa verið „leið­ar­ljós“. Í yfir­lýs­ingu sagði meðal ann­ars: „Það er með sorg í hjarta...
Ástsæl sápuóperuleikkona látin: „Skrifaði undir tveggja ára samning og ég veit ekki hvað gerðist“
Heimursjónvarpsþættir

Ástsæl sápu­óp­eru­leik­kona látin: „Skrifaði undir tveggja ára samn­ing og ég veit ekki hvað gerð­ist“

Leslie Charleson, sem lésk í næstum 50 árum í sápu­óp­er­unni General Hospital, er látin, að því er Frank Val­ent­ini, fram­leið­andi þátt­ar­ins, stað­festi. Hún var 79 ára. „Það er með sorg sem ég til­kynni and­lát kærs vinar míns og sam­starfs­manns, Leslie Charleson,“ skrif­aði hann á sam­fé­lags­miðla í gær, 12. jan­úar. „Við­var­andi arf­leifð hennar hefur spannað næstum 50 ár á General Hospital...
Macy rauk af sviðinu í The Masked Singer: „Hef verið í þessum bransa í mörg ár og nú er ég karta“
Heimursjónvarpsþættir

Macy rauk af svið­inu í The Masked Singer: „Hef verið í þessum bransa í mörg ár og nú er ég karta“

Banda­ríska söng og leik­konan Macy Gray rauk út af svið­inu þegar í ljós að hún kæm­ist ekki áfram í þætt­inum The Masked Singer sem sýndur var í gær. The Masked Singer gengur út á að þekktir söngv­arar dul­búa sig með furðu­legum bún­ingum og taka lagið fyrir framan áhorf­endur og dóm­nefnd. Einn er svo kos­inn út í lok hvers þáttar uns...
Kaleo í nýrri kitlu úr fimmtu þáttaseríu Yellowstone – MYNDBAND
Menning

Kaleo í nýrri kitlu úr fimmtu þátta­seríu Yellowstone – MYNDBAND

Í kitlu (e. tea­ser) fyrir vænt­an­lega seríu af hinum vin­sælu stjón­varps­þáttum, Yellowstone, er að finna lag íslensku hljóm­sveit­ar­innar KALEO, en lagið heitir USA Today. Í lag­inu, sem kom út fyrr í sumar, er að finna ádeilu á síend­ur­teknar skotárasir í Banda­ríkj­unum. Yellowstone er ein vin­sælasta sjón­varps­s­ería Banda­ríkj­anna og er næsta sería, sem er sú fimmta og jafn­framt sú síð­asta, vænt­an­leg...
Rótgróin barfluga úr The Simpsons deyr: „Áhrifamikið og mjög furðulegt!“
Menning

Rótgróin bar­fluga úr The Simpsons deyr: „Áhrifa­mikið og mjög furðu­legt!“

Aukak­arakt­er­inn Larry the Barfly eða bar­flugan Larry úr The Simpsons-teikni­mynda­þátt­unum, sem Harry Shearer tal­aði fyrir, hefur nú verið skrif­aður út úr þátt­unum, eftir að hafa verið með frá upp­hafi. Þátta­ser­í­urnar eru nú orðnar 35 sem þýðir að The Simpsons er sú teikni­mynda­sería sem gengið hefur lengst í sjón­varpi allra teikni­mynda­sería. Þann 21. apríl var þátt­ur­inn „Cremains of the Day“ sýndur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins