„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tómas fagnar friðlýsingu Dranga og Elías er alsæll: „Drangar verða aldrei settir undir gróðapunga“

Tómas fagnar friðlýsingu Dranga og Elías er alsæll: „Drangar verða aldrei settir undir gróðapunga“
Elías Svavar Krist­ins­son harð­yrtur í garð mat­væla­ráð­herra

„Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver stór­kost­leg­asta nátt­úra sem Ísland hefur upp á að bjóða,“ skrifar Tómas Guð­bjarts­son, hjarta­læknir og nátt­úru­vernd­ar­sinni, vegna þeirrar aðgerðar Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is­ráð­herra að frið­lýsa Dranga á sein­asta degi sínum í emb­ætti sem ráð­herra umhverf­is­mála. Aðgerðin kom til umræðu á Alþingi og töldu ein­hverjir þing­manna að henni væri beint gegn áformum um að reisa Hval­ár­virkjun. Vandséð er hvernig það má vera þar sem áformað virkj­un­ar­svæði er víðs­fjarri landi Dranga.

Þeir ætl­uðu sér að ná í vatnið okkar til að stækka virkj­un­ina

„Ég er alsæll með frið­un­ina. Stórfurðu­legt að Sam­fylk­ingin tekur undir með Bergþóri Ólasyni, af öllum mönnum. Við eig­endur Dranga vorum nán­ast á einu máli um að friða landið. Þeir ætl­uðu sér að ná í vatnið okkar til að stækka virkj­un­ina. Vest­ur­verk hafði óskað eftir við­ræðum en við svöruðum ekki þessu rugli. Drangar verða aldrei settir undir gróða­punga,“ segir Elías Svavar Krist­ins­son, einn eig­enda Dranga og einn helsti bar­áttu­mað­ur­inn gegn Hval­ár­virkjun og eyði­legg­ing­unni sem myndi fylgja ef þau áform gengju eftir.

Dranga­skörð. Mynd Ólafur Már Björns­son,

Tómas Guð­bjarts­son bendir einmitt á það að land­eig­endur hafi átt frum­kvæðið og frá­far­andi ráð­herra því algjör­lega sam­kvæmur sjálfum sér með því að skrifa undir. Tómas furðar sig á því að full­trúi Árnes­hrepps hafi lagst gegn frið­lýs­ing­unni.

„Það er síðan grát­legt að full­trúi sveit­ar­fé­lags­ins hafi einn verið mót­fall­inn frið­lýs­ing­unni en enn hall­æri­legra hvernig Mið­flokks­menn reyna nú að að gera frið­lýs­ing­una tor­tryggi­lega. Er verið að veiða atkvæði eða halda menn á þeim fámenna bæ í alvöru að Hval­ár­virkjun verði að veru­leika? Rann­sókn­ar­leyfi Vest­ur­verks var ekki einu sinni end­ur­nýjað sl. vor og því útrúnnið. Sem eru frá­bærar fréttir fyrir nátt­úru Stranda og von­andi allra síð­asti naglinn í lík­istu Hval­ár­virkj­unar,“ skrifar Tómas.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins