„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sakar seðlabankastjóra um ritstuld: „Martröð að sjá aðra setja fram tilgátur manns“

Sakar seðlabankastjóra um ritstuld: „Martröð að sjá aðra setja fram tilgátur manns“
Berg­sveinn Birg­is­son Mynd: bokmenntaborgin.is

Berg­sveinn Birg­is­son rit­höf­undur sakar Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóra um rit­stuld í aðsendri grein á Vísi í dag.

Nýlega kom út bókin Eyjan hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson en þar fjallar hann um land­nám Íslands. Skrifar Ásgeir að bókin hafi verið lengi í smíðum, og sé afrakstur margend­ur­tek­ins lest­urs á Land­náma­bók og tengdum heim­ildum. Berg­sveinn bendir á í grein sinni að höf­undur vísi til greina og rita í neð­an­máls­greinum, en hafi þó láðst að setja heim­ilda­skrá aft­ast í bók­ina.

„Mér er málið skylt þar sem ég skrif­aði bók sem fjallar um sama efni og heitir Den svarte vik­ingen (2013, Spartacus), og kom út þrem árum síðar í íslenskri gerð undir titl­inum Leitin að svarta vík­ingnum (2016, Bjartur, hér eftir kölluð LSV). Svo ánægju­legt sem það ann­ars er fyrir höf­und að sjá til­gátur sínar og hugs­anir reif­aðar í bókum ann­arra, er það að sama skapi martröð að sjá aðra setja fram til­gátur manns án þess að umræddra verka sé getið.“

Segir Berg­sveinn að til­gáta hans end­ur­ómi í gegnum alla bók Ásgeirs.

„Nánar til­tekið er um hug­mynda­stuld að ræða, fremur en beinar til­vitn­anir, þó stundum stappi nærri. Ef byrjað er á breiðu lín­unum snýst þetta um að í áður­nefndu verki mínu (LSV) er sett fram heild­ar­til­gáta um frum­land­nám Íslands útfrá land­náms­mann­inum Geir­mundi helj­ar­skinn. Fjöl­margir fræði­menn, svo sem Helgi Guð­munds­son, Helgi Þor­láks­son og Orri Vésteins­son höfðu varpað því fram að veiðar á rost­ungum hafi getað lokkað fyrstu ævin­týra­menn­ina til Íslands, og er þessa getið í mínu riti.

Hið nýja í mínu verki var að nota mið­alda­heim­ildir, auk þess að leita til ann­arra fræði­greina, til stuðn­ings því sem ég birti og kalla efna­hags­módel veiði­menn­ingar sem ég tel hafa ein­kennt frum­land­nám Íslands, sem síðan hafi þró­ast út í meiri áherslu á land­búnað þegar veiði þvarr. Þessi veiði­menn­ing hafi byggt á veiðum á rost­ungum og öðrum sjáv­ar­spen­dýrum, vegna þess að skipa­út­gerð þess tíma hafi alger­lega verið háð slíku til reipa í skips­reiða og til verndar á tré­virki í sjó. Er þessi heild­ar­til­gáta bók­ar­innar rök­studd gegnum allt verkið.

Skemmst er frá því að segja að þessi til­gáta end­ur­ómar gegnum alla bók Ásgeirs, en ekki annað að sjá en hann hafi kom­ist að þess­ari nið­ur­stöðu af eigin ramm­leik. Á blað­síðu 42 í EHI varpar höf­undur fram þeirri til­gátu sinni, að Garðar Svav­ars­son hafi komið til Íslands með þræla sína til að veiða rost­ung fremur en að nema land. Síðan kemur löng end­ur­sögn á því hvernig strendur Íslands hafi verið kjörnar fyrir rost­unga sem lifa á skel­dýrum, húðir þess­ara dýra væru nýttar í skips­reiða og spikið hafi verið gulls ígildi. Þá telur Ásgeir að «fyrstu sigl­ingar til Íslands [hafi] haft þetta sama til­efni».“

Ásgeir hefur sagt að búast megi við til­kynn­ingu frá honum von bráðar.

Hægt er að sjá alla grein­ina hér: Stolið og rang­fært – um Eyjuna hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins