„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll Óskar syrgir látinn „sambýlismann“ sinn: „Mikið var gott að deila lífinu með þér, Gutti“

Páll Óskar syrgir látinn „sambýlismann“ sinn: „Mikið var gott að deila lífinu með þér, Gutti“
Páll Óskar og Gutti Mynd: Facebook

Páll Óskar Hjálmtýrs­son, söngv­ari skrif­aði hjart­næma færslu á Facebook í gær. Kött­ur­inn hans, Gutti sem hann hefur átt síðustur 18 árin er dáinn og minn­ist Páll Óskar hans með langri og fal­legri færslu. Það er nokkuð ljóst af orðum popp­stjörn­unnar að Gutti var stór­merki­legur köttur.

„Sam­býl­is­maður minn og sálu­fé­lagi síð­ustu 18 árin, töffar­inn Gutti, sofn­aði svefn­inum langa föstu­dag­inn 10. des kl. 11.30 fyrir hádegi. Hann mætti óboð­inn í afmælið mitt 16. mars 2004, gaf sjálfan sig í afmæl­is­gjöf og lifði kónga­lífi í Paradís (vest­ur­bænum í Rvk) fram á síð­asta dag,“ skrifar Páll Óskar og á við að kött­ur­inn átti aðra eig­endur til að byrja með en stakk af og flutti til hans.

„Gutti fædd­ist í októ­ber 2002, og stakk af frá fyrri eig­anda í Þing­holt­unum vegna ósætt­an­legs ágrein­ings við annan ógeldan gaur á sama heim­ili. Gutti ákvað að labba af stað og leita sér að íbúð í 101 eða 107 og þar hófst mikið flakk sem stóð lengi yfir. Samkvæmt lög­reglu­skýrslum var Gutti hand­tek­inn tólf sinnum á sex mán­uðum (sjá mugs­hots). Hann var hand­tek­inn á djamm­inu á Prikinu, Sólon, Ramma­gerð­inni, Íslands­banka á Eiðis­torgi, Tóbaks­búð­inni Björk og Happ­drætti DAS. Hann var oft gómaður í miða­sölu Háskóla­bíós og einu sinni var hann böstaður í Sal 1 þar sem hann var að horfa á kvik­mynd Mel Gibsons „The Passion of Christ““

Gutti var ekki lengi að eigna sér heim­ili popp­stjörn­unnar.

„Þegar Gutti var búinn að gera leigu­samn­ing við mig (popp­stjarnan fékk að leigja eitt her­bergi í nýju íbúð­inni hans) var strax tekið til óspilltra mál­anna að eign­ast stærri hlut í hús­inu, garð­inum, bíla­stæð­unum, göt­unni og hverf­inu. Með ein­beittum brota­vilja buff­aði Gutti hvern þann sem veitti honum minnstu sam­keppni. Hann varð góð­kunn­ingi Dagfinns Dýra­læknis eftir ótal blóð­uga bar­daga og ég skil ekki stundum hvernig hann lifði þetta tíma­bil af. Ef ég hefði rakað allt hárið af Gutta hefði hann litið út eins og gam­all box­ari eða útsaum­aður Rambo.“

Þá segir Páll Óskar frá því hvernig hann Gutti laun­aði honum líf­gjöf­ina fyrstu þrjú árin.

„Fyrstu þrjú árin þakk­aði hann mér líf­gjöf­ina með því að veiða allt sem hafði púls. Stundum leit heim­ilið út eins og hjá keðju­sag­ar­morð­ingj­anum í Texas. Einu sinni var keyrt á önd í göt­unni fyrir framan húsið. Gutti var eina vitnið. Hann dró líkið af önd­inni af göt­unni, gegnum inn­keyrsl­una, inn í garð og tróð henni svo gegnum stofu­gluggan. Hann móðg­að­ist þegar ég varð brjál­aður og fannst ég vera van­þakk­látt pakk.“

Gutti var ekki hræddur við neitt að sögn Páls

„Hann var ekki hræddur við neitt. Einu sinni sá ég hann skella sér á „hest­bak“ á hundi sem var mun stærri en hann. Gutti not­aði hunda og jafn­vel bíl­þök til að skutla sér þónokkurn spöl og var bara að fíla útsýnið á meðan.

Gutti var ljón­gáf­aður. Það þýddi ekk­ert að reyna að æsa hann upp eða leika sér við hann með ein­verjum aðkeyptum kisu leik­föngum. Ég keypti lazer til að stríða honum, en hann fatt­aði plottið eftir sirka 2 mín­útur, stóð bara á gólf­inu og horfði í augun á mér eins og ég væri hálf­viti. Óþarfi að kaupa fleiri leik­föng inn á heim­ilð eftir það.“

Páll Óskar segir næst frá því hversu mik­ill smekkköttur Gutti var varð­andi mat.

„Gutti mjálm­aði aldrei nema þegar brýna nauð­syn bar til. „Hleyptu mér út, opn­aðu fyrir mér, gemmér að éta, það vantar mat í skál­ina, ég borða ekki mat sem er keyptur á bens­ín­stöð, ég vil bara líf­rænt ræktað Royal Canine, hvað hef ég gert til að verð­skulda þessa ömur­legu þjón­ustu?“ Hann fór alltaf í göngutúr sjö sinnum á dag, til að tékka á yfir­ráða­svæð­inu, pissa og buffa þá sem komu nálægt. Sjö sinnum á dag – allt til dauða­dags,“ skrif­aði Páll og hélt áfram. „Aðeins 15 mín­útum áður en Dag­finnur Dýra­læknir kom heim til að hjálpa Gutta að sofna svefn­inum langa, fór Gutti í sinn loka labbitúr út í garð, þótt hann gæti varla stigið í lapp­irnar né haldið haus, bara til að tékka á yfir­ráða­svæð­inu. Jafnvel við dauð­ans dyr, þá var hann ennþá á vakt.“

Lokaorð Páls Óskars eru fal­leg og ljúfsár.

„Ég mun aldrei framar kynn­ast ketti eins og Gutta. Ég er svo þakk­látur fyrir að hafa fengið að deila síð­ustu 18 árum undir sama þaki og hann. Það er stór­skrýtið að vera í íbúð­inni núna. Ég þarf stundum að spyrja mig hvaða heim­ili ég sé staddur á. Það er stór­skrýtið að snúa lykl­inum í skrá­argat­inu, opna úti­dyra­hurð­ina og af gömlum vana kallar maður hátt og snjallt „MJÁ“ og maður á von á því að heyra eitt „mjá“ svar til baka. Núna heyr­ist það ekki og það mun taka mig nokkurn tíma að kom­ast yfir það. Það er mikil sorg á heim­il­inu núna.

Blessuð sé minn­ing Gutta, sem náði að lifa í 19 ár (alls 92 mennsk ár) og var hvíld­inni feg­inn þegar nýrun hans luku keppni í síð­ustu viku. Ég er alveg í klessu hérna. Búið að vera mjög erfitt að skrifa þessa minn­ing­ar­grein og skoða allar þessar gömlu myndir. Maður grenjar og tekur svo hlát­ur­sköst inn á milli.Mikið var gott að deila líf­inu með þér, Gutti. Takk fyrir að velja mig sem lífs­föru­naut. Ég hefði ekki getað valið betri kött. REST IN POWERGUTTI (f. 10.10.2002 d. 10.12.2021)“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Séð og Heyrt

Vítalía og Arnar versluðu saman í matinn – Dýrasta ást Íslandssögunnar
Menning

Vítalía og Arnar versl­uðu saman í mat­inn – Dýrasta ást Íslands­sög­unnar

Arnar Grant og Vitalía Lazereva hafa sést saman und­an­farið. Heim­ildir Mannlífs herma að þau hafi verið saman í Krónunni á Hval­eyr­ar­holti í Hafn­ar­firði síð­degis á sunnu­dag að versla í mat­inn. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er vin­skapur Arnars og Vítalíu sterkur. Óljóst er þó hvers eðlis sam­band þeirra er en mikið upp­nám hefur fylgt þeim frá því hún upp­lýsti um meint kyn­ferð­is­legt...
Dæturnar fengu bíl í jólagjöf – sjáðu myndirnar
Menning

Dæturnar fengu bíl í jóla­gjöf – sjáðu mynd­irnar

Kar­dashian- og Jenner fjöl­skyldan hafa sýnt frá jól­unum á sam­fé­lags­miðlum, þá vakti jóla­gjöf Kris Jenner til dætra sinna mikla athygli en gaf hún þeim öllum golf­bíla í mis­mun­andi litum. Ef marka má erlenda slúð­ur­miðla eru bíl­arnir saman sagðir kosta tugi millj­óna Thank you mommy, skrifar Kim Af myndum af dæma vant­aði þó syst­urnar Kourtney Kar­dashian og Kylie Jenner í fjöl­skyldu­boðið....
Sjáðu myndina af glæsilegum Guðmundi Felix á leið á Bessastaði
Menning

Sjáðu mynd­ina af glæsi­legum Guðmundi Felix á leið á Bessa­staði

Eitt það fyrsta sem Guð­mundur Felix Grét­ars­son, oft kall­aður Hand­haf­inn, gerði við kom­una til Íslands var að skella sér í klipp­ingu. Að því loknu var honum boðið til kvöld­verðar á Bessa­staði og af því til­efni birti hann þessa mynd: Guð­mundur Felix og Sylwia, glæsi­leg á leið á Bessa­staði. Guð­mundur Felix Grét­ars­son er gang­andi krafta­verk og af honum ber­ast reglu­lega stór­kost­legar...
Fyrsta stikla The Northman komin út – Sjón er sögu ríkari
InnlentSéð og Heyrt

Fyrsta stikla The Northman komin út – Sjón er sögu rík­ari

Fyrsta stiklan fyrir stór­mynd­ina The Northman er komin á Youtube. Hand­ritið er skrifað af Sjón og leik­stjóra mynd­ar­innar Robert Eggers. Kvik­myndin er stjörnum prýdd en í aðal­hlut­verkum eru Nichole Kidman, Alex­ander Skars­gård, Willem Dafoe, Ethan Hawke, Anya Taylor-Joy, Claes Bang og okkar eigin Björk. Er þetta í fyrsta skipti sem söng­konan heims­fræga leikur í kvik­mynd síðan hún lék í Dancer...
Mynd dagsins: Guðmundur Felix: „Sami hálfvitinn“
Menning

Mynd dags­ins: Guð­mundur Felix: „Sami hálf­vit­inn“

Eitt það fyrsta sem Guð­mundur Felix Grét­ars­son, oft kall­aður Hand­haf­inn, gerði við kom­una til Íslands var að skella sér í klipp­ingu. Það gerði hann í dag og birti mynd af því til­efni á fjöl­mennri fylgj­enda­síðu sinni á Facebook. Við mynd­ina skrifar hann: „Ný klipp­ing, sami hálf­vit­inn!“ Guð­mundur Felix Grét­ars­son er gang­andi krafta­verk og af honum ber­ast reglu­lega stór­kost­legar fréttir. Eins...
Jóhannes Haukur vill selja tvær fiðlur: „Keypt í fyrra og notað í eitt ár í Suzuki námi“
Menning

Jóhannes Haukur vill selja tvær fiðlur: „Keypt í fyrra og notað í eitt ár í Suzuki námi“

Einn allra besti leik­ari Íslands­sög­unnar, Jóhannes Haukur Jóhann­es­son vill selja fiðlu sem dóttir hans not­aði í fiðlu­námi sínu, í Facebook-grúpp­unni Hljóð­færi og græjur til sölu: Skrifar: „Tvær fiðlur til sölu. Keypt í fyrra og notað í eitt ár í Suzuki námi. Litla daman komin yfir á píanó.“ Líklegt má telja að fiðl­urnar selj­ist fljótt; hver vill ekki kaupa varn­ing af...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins